Faxi - 01.08.1977, Side 24
Þessvegna er sumarf ríid
á Flórída
ógleymanlegt ævintýri
Flórída er Mekka sóldýrkandans. Þar sést varla ský
á himni, - um 360 sólardagar á ári. Hitinn er þægi-
legur (27-28° C á sumrin) hressandi gola blæs
af hafi. Sjórinn og strendurnar eru óvíöa hreinni.
Llrvals hótel og aðeins steinsnar frá ströndinni.
Amerískur matur, sem engan svíkur. ,,Það er ofur
auðvelt að komast til Flórída: með Flugleiðum
til New York og þaðan með flugi eða áætlunarbíl
suður á bóginn“. Orlofsdvöl á Flórída er ódýrari
en margur heldur (og reyndar hagstæðust á
sumrin). Allt þetta gerir Flórída aö frábærum
ferðamannastáð - og þó er kannski það mikil-
vægasta enn ótaliö, - svo sem:
Flórída er notalegur staður. Þar er vinsælt að búa,
ferðamenn flykkjast þangað - og fílar, Ijón, nas-
hyrningar og flest önnur villidýr Afríku njóta þar
lífsins. Dýrin eru þar í víðlendum görðum, þar sem
þau ganga frjáls, en ferðamenn aka um í bílum
og lestum, og virða þau fyrir sér út um gluggana.
Frumskóga
ferð
Heimsókn
í Disneyheim
Disney World á Flórída er einn óvenjulegasti
skemmtigarður heims. Þar eru gestir í einni deild-
inni á meðal kúreka og landnema, í annari fara þeir
í ævintýraleg ferðalög um ókunn lönd og stunda
náttúruskoðun í þeirri þriðju. Síðast en ekki síst er
þar undraheimur bernskunnar, þar sem Jumbó,
Öskubuska og Mikki vinurinn mús bregða á leik.
Hluti skemmtunarinnar er að ferðast um svæðið í
furöulegustu farartækjum, - strætisvögnum frá
siöustu aldamótum, einteinungslestum sem benda
fram til næstu aldamóta, hestvögnum, fljótaskipum
og kanúum.
FLUCFÉLAG
ÍSLA/VDS
LOFTLtlOIR
i
GRAHK OG HONNUN