Faxi

Volume

Faxi - 01.08.1977, Page 24

Faxi - 01.08.1977, Page 24
Þessvegna er sumarf ríid á Flórída ógleymanlegt ævintýri Flórída er Mekka sóldýrkandans. Þar sést varla ský á himni, - um 360 sólardagar á ári. Hitinn er þægi- legur (27-28° C á sumrin) hressandi gola blæs af hafi. Sjórinn og strendurnar eru óvíöa hreinni. Llrvals hótel og aðeins steinsnar frá ströndinni. Amerískur matur, sem engan svíkur. ,,Það er ofur auðvelt að komast til Flórída: með Flugleiðum til New York og þaðan með flugi eða áætlunarbíl suður á bóginn“. Orlofsdvöl á Flórída er ódýrari en margur heldur (og reyndar hagstæðust á sumrin). Allt þetta gerir Flórída aö frábærum ferðamannastáð - og þó er kannski það mikil- vægasta enn ótaliö, - svo sem: Flórída er notalegur staður. Þar er vinsælt að búa, ferðamenn flykkjast þangað - og fílar, Ijón, nas- hyrningar og flest önnur villidýr Afríku njóta þar lífsins. Dýrin eru þar í víðlendum görðum, þar sem þau ganga frjáls, en ferðamenn aka um í bílum og lestum, og virða þau fyrir sér út um gluggana. Frumskóga ferð Heimsókn í Disneyheim Disney World á Flórída er einn óvenjulegasti skemmtigarður heims. Þar eru gestir í einni deild- inni á meðal kúreka og landnema, í annari fara þeir í ævintýraleg ferðalög um ókunn lönd og stunda náttúruskoðun í þeirri þriðju. Síðast en ekki síst er þar undraheimur bernskunnar, þar sem Jumbó, Öskubuska og Mikki vinurinn mús bregða á leik. Hluti skemmtunarinnar er að ferðast um svæðið í furöulegustu farartækjum, - strætisvögnum frá siöustu aldamótum, einteinungslestum sem benda fram til næstu aldamóta, hestvögnum, fljótaskipum og kanúum. FLUCFÉLAG ÍSLA/VDS LOFTLtlOIR i GRAHK OG HONNUN

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.