Faxi

Árgangur

Faxi - 01.07.1980, Blaðsíða 3

Faxi - 01.07.1980, Blaðsíða 3
Ólafur Oddur Jónsson: Tónlistarlíf „Ef tónlistin nærir kærleik- ann, - leikið þá áfram". Eitthvað á þessa leið kemst Shakespeare að orði í einu verka sinna. Um- mæli hans minna á gildi tónlist- arinnar og tónlistarlífs og koma nú í hugann, þegar enn einum starfsvetri Tónlistarskóla og Tónlistarfélags Keflavikur er lokið. Gildi tónlistar er margþætt og henni veröur ekki gerð skil af fá- kunnandi leikmanni. En sem tónlistarunnandi er ég þakklátur þeim sem Ijúka upp fyrir öðrum heimi tónanna. Það er gæfa Keflavíkur, sem á mjög marga hæfa tónlistar- menn, að góðir kennarar hafa starfaö við Tónlistarskólann. Starf þeirra er lyftistöng öllu tónlistar- og menningarlífi. Einnig er vert að þakka aukinn skilning bæjaryfirvalda bæði á málefnum skólans og félagsins. Það er gott til þess að vita, þegar menn vilja hlú að því sem gefur lífinu fyllingu og innihald. Starfsemi skólans hefur veriö markviss í vetur sem endranær. Unnur Pálsdóttir bað kom fram á vortónleikum skólans og burtfarartónleikum Unnar Pálsdóttur. Það er gleði- efni öllum sem að þessum mál- um vinna, þegar vel tekst til. II. Tónlistarfélagið og skólinn eru tvær greinar á sama meiði. Stryktarfélagsgjöld félagsins nafa nær öll runnið til skólans og Því lítið verið eftir til tónleika- halds. Það er undravert hvernig tekist hefur að efna til tónleika á undanförnum árum. Aukinn í Keflavík skilningur bæjaryfirvalda hefur hleypt nýju blóði í starfsemi fé- lagsins. Nú eru einnig allir styrktarmeðlimir fullgildir félagar og geta því látið til sín taka ef áhugi er fyrir hendi. Þann 28. febrúar fór félagið inn á nýja braut með því að fá jazzhljómsveit Guðmundar Ing- ólfssonar ásamt Viðari Alfreðs- syni o.fl. til þess að leika á jazz- kvöldi í Tónlistarskólanum við Austurgötu. Jazz konsertinn var vel sóttur og vel þeginn, einkum af ungu fólki. Þarna mátti sjá mörg ný antílit, sem alla jafna koma ekki á tónleika skólans og félagsins. Menn skemmtu sér konunglega við að hlusta á þá f élaga leika lög eins og I hear music, Be my love, Brúðarmars o.fl. Viðar, Guð- mundur Ingólfsson og nafni hans Steingrimsson fóru á kost- um ásamt Pálma Gunnarssyni. Aldrei hafði mér komiö til hugar að leika mætti Litfríð og Ijóshærð jafn fallega í jazzút- setningu og þeir félagar gerðu. III. Nokkrir ungir menn fengu góða hugmynd um menningar- daga á Suðurnesjum, - hug- mynd, sem þeir fylgdu síðan eft- ir og var hrint í framkvæmd af fjölmörgu áhugasömu fólki. Menningarvakan „Fiskur undan steini“ gaf góða innsýn í menn- mgarlíf á Suðurnesjum, sem á sér djúpar rætur í hljóðlátu starfi einstaklinga og félaga. Sinfóniuhljómsveit fslands hélt tónleika í Félagsbíói og má segja að það hafi verið hápunkt- ur menningardaganna. Tónlist- arfélagið tryggði komu hljóm- sveitarinnar ásamt fleiri aðilum, en hljómsveitin kom hingað fyrir milligöngu skólastjóra og þeirra kennara tónlistarskólans, sem leika með hljómsveitinni. Hljómsveitin hóf tónleikana með því að leika forleikinn að Leynibrúðkaupinu eftir Cima- rosa. Leynibrúðkaupið varleikið í Vin 1792. Þá urðu menn svo heillaðir, aö hljómsveitarmönn- um var haldin mikil veisla, þar sem ekkert var til sparað. Síðan voru hljómlistarmennirnir beðn- ir að endurtaka allt saman. Von- andi er komið á leynibrúðkaup milli hljómsveitarinnar og Suð- urnesja og við megum vænta þess að hljómsveitin leiki hér sem oftast. Unnur Pálsdóttir lék fiðlu- konsert eftir Bruch með hljóm- sveitinni. Það tókst henni með miklum ágætum. Það hlýtur að vera stór stund fyrir kennara hennar, Árna Arinbjarnar, að sjá þannig ávöxt af starfi sínu. Ég hef ekki gert mér grein fyrir hve erfitt hljóðfæri fiðlan er, fyrr en ég las lýsingu Itzhak Perlmans í Newsweek nýverið. Að ná rétt- um tón á fiðlu krefst mjög næms eyra og mikillar vinnu og inn- sæis. Ef Unnur heldur áfram með sama hætti og hingað til, gæti svo farið að Suðurnesin eignuöust sína Kyung-Wha- Chung. Ragnheiður Guðmundsdóttir söng Vorgyðjan kemur, Sakn- aðarljóð og Draumalandið, svo unnun var af. Sinfóníutónleik- arnir voru í alla staði mjög ánægjulegir. Vortónleikar skólans voru þann 7. maí, burtfarartónleikar Unnar þann 17. og skólanum var slitið þann 18. maí. Allir þessir tónleikar sýndu að efnivið vantar ekki á Suðurnesj- um. Hæfileikafólk er hér á hverju strái og vonandi veitist mönnum gæfa til aö hlú að því Karlakór Keflavíkur var að venju með vorsamsöng hér í Keflavík. Kórinn söng þrjú kvöld í Félagsbíói við mikla aðsókn og ágætar undirtektir. Söngstjóri að þessu sinni var Sigurður Demetz Fransson. Hann er þjóð- kunnur söngkennari og er léttur og skemmtinn við stjórnarstörf. Tónstokkurinn gengur kannski ekki alltaf hefðbundna leið. Demetz veit að hér á noröur- hjara kann fólk vel að meta tónlist, jafnvel svo að það er reiðubúiö aö gangast undirslíkt tónatak, að það finni svalandi töfra þess hríslast niður bak og brjóst. Jafnframt þekkir hann, nú orðiö, svo vel okkar þungu og dulúðugu skapgerð, sem sjald- an leyfir hláturkirtlunum að fá útrás, að hann telurekki sakaog vart vera á kostnað hljómlistar- innar þó viðstöddum sé veitt hláturmildi í nokkrum mæli. Það má fullyrða, að enginn fór von- svikinn heim frá þessum kvöld- stundum með Karlakór Kefla- víkur. Einsöngvarar voru Haukur Þórðarson, Steinn Erlingsson og Sverrir Guðmundsson. Jón M. Kristinsson var líka í þeirra hópi, en veiktist. ( hans stað sungu hinir sitt lagið hvort að auki og tókst það ekki síður en annað í söngskránni. Þeirfengu mjög góðar undirtektir eins og kórinn allur, sem auk endur- tekninga varð að syngja auka- lög. Séra Ölafur Oddur Jónsson sem hingað til. Eitt er víst að tón- listin göfgar mannlífið. ,,Ef tón- listin nærir kærleikann, - leikið þá áfram". Undirleik annaðist Ragnheið- ur Skúladóttir af smekkvisi og öryggi að vanda. Mikiö blóma- flóð gekk yfir sviðið til þeirra, sem þakklætisvottur fyrir ágæta kvöldstund og viðurkenning fyrir mikið starf, sem kórfélagar leggja að mörkum. Að loknum samsöngvum hér hélt kórinn í söngferðalag til Akraness, Ólafsvíkur og Stykk- ishólms. Hann söng á öllum þessum stöðum við ágætar und- irtektir, en fremur slaka aðsókn. J.T. TRESMIDAVERHST. J-AKOB \ARNAR" Nýbyggingar - Viðhald Breytingar Onnumst alla aimenna trésmíðavinnu úti sem inni. Timavinna - Föst tilboð. Fitjabraut 24, Njarðvík.s. 3440 Heimasimar: 2281, 3673, 3894 Samsöngur Karlakórs Keflavíkur FAXI - 83

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.