Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1980, Síða 31

Faxi - 01.12.1980, Síða 31
MINNING Kalmann Sigurðsson frá Stað í Höfnum Fæddur 8. nóvember 1904 Dáinn 5. nóvember 1980 Föstudaginn 21. nóvembers.l. var jarðsettur frá Kirkjuvogs- kirkju Kalmann Sigurðsson, út- vegsbóndi frá Stað í Höfnum. Hann lést að Landakotsspítala í Reykjavík 5. nóvember, eftir fárra vikna legu þar. Kalmann var fæddur 8. nóvember 1904 að Junkaragerði í Höfnum, sonur hjónanna Pál- ínu Jónsdóttur og Sigurðar Jónssonar, er þar bjuggu. Kalmann ólst upp í föðurhúsum ásamt systkinum sínum, þeim Sigurlfnu, sem var elst og er enn á lífi búsett í Reykjavík og Jóni og Helgu, sem bæði eru dáin. Árið 1931 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Ingunni Guðmondsdóttur, ættaðri frá Kolbeinsvík í Strandasýslu. Hófu þau búskaþ sinn að Junk- aragerði og bjuggu þar í 7 ár. Siguröur faðir hans hafði látist nokkru áöur og Sigurlína gift og búsett í Reykjavík en Pálína móðir hans bjó áfram í Junkara- gerði með börnum sínum þeim Jóni og Helgu. í Junkaragerði fæddust þeim Kalmanni og Ingunni 3 börn, tvíburasysturn- ar Guðrún og Sigríður, sem báðar eru búsettar vestan hafs og sonurinn Bragi, sem lést tæþra tveggja ára. Dóttursonur þeirra Ólafur Kalmann ólst uþp hjá þeim. Eftir 7 ára búsetu aö Junkara- gerði fluttu þau inn í Kirkjuvogs- hverfi. Þar byggði Kalmann húsið Stað og fékk til aðstoðar við sig vin sinn Hinrik Ivarsson í Merkinesi, en báðir voru þeir smiðir góðir. Á Stað hefur fjöl- skyldan búið síöan. Kalmann var hraustur, athafnasamur drengur og tók ungur þátt í daglegum störfum til stuðnings viö heimili sitt og foreldra í harðri lífsbaráttu, að hætti þess tíma. Strax eftir fermingu fór hann að róa á opnum árabáti með föður sínum og var í skiprúmi hjá honum þar til að hann eignaðist eigin bát. Sjómennskan var honum í blóð borin og varð hans ævistarf. Nokkrar ær, ein kú, og dálítil jaröarafnot voru þó lengst af nýtt til búbætis samhliða sjófanginu, sem færði þó heimil- inu alla tið þá björg er til þurfti til hagsældar og traustrar afkomu. Það er hörð og óvægin lífsbar- átta aö eiga nær alla afkomu sína og fjölskyldu sinnar undir sjósókn á lítilli opinni trillu út á opið ólgandi úthaf við rastarvæng einnar straumhörð- ustu og yggldustu rastarhérvið land. Stundum var Kalmann einn á báti, en oftar hafði hann háseta. Jón bróðir hans reri lengi með honum og síðarólaf- ur uppeldissonur hans. Allir voru þeir harðduglegir sjómenn og kunnu vel til verka. Umhirðu og viðhaldi Kalmanns á bátnum og öllu þvi er að sjósókninni laut var við brugðið. Virðing hans fyrir farkostinum og starfsgrein- inni var augljós. Kannske var þetta uppspretta að allri hans farsæld og velgengni í fang- brögðum við Ægi. Hann nam ungur af föður sínum reynlsu liðinna alda og tók síðan í þjón- ustu sína uþþbyggingu og tækni líðandi stundar eftir þvi sem aðstæður leyfðu í tiltölulega vanbúinni heimabyggð, erhann yfirgaf þó aldrei í leit að auöveld- ari lífsháttum. (allmarga áratugi vissi ég hver Kalmann frá Junkaragerði var, hafði veitt honum eftirtekt sökum hógværðar og þrúð- mennsku og á síðari árum fékk ég nánari kynni af því að hjá honum var þetta ekki uppgerð eða sjónarspil. Upplag, uppeldi og síðan samspil við dyntótt náttúruöflin munu hafa átt ríkan þátt í sterkri skaþgerð hans. Ég hygg að hann hafi ekki átt neinn óvin eða andsnúinn nágranna, en hins vegar marga góða vini. Litla byggðarlagið, sem var hjartkært heimkynni hans alla æfi, er nú snauðara eftir aö hann sést ekki lengur ganga þar glaður milli vina eða ýta úr vör sínu litla fleyi. Staður hefur misst þá forsjá og vernd, sem Kalmann veitti alla tíð. Ingunni og Ólafi verður það þungbær raun, einnig dætrunum og fjöl- skyldum þeirra í fjarlægð. öllum þeim er það þó huggun harmi gegn að vita, að hann var tfaust- ur trúmaður og hafði oft á ör- lagastundu beðið. Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi, þar mig í þinni gæslu geym ó, Guð minn, allsvaldandi. Og það má fullvíst telja að honum verði falinn farkosturþar i landi friðarins og honum ætlað aö taka á móti og ferja ástvinina, þegar þar að kemur, í höfn á frið- arlandi. Ingunni og börnum hennar sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Ragnheiöur og Jón Tómasson EGILL ÞORFINNSSON: Hugleiðing um báta Suðurnesjamanna Fiskveiöar hafa verið f rá fy rstu tíð aðalatvinnuvegur Suður- nesjamanna og bendir fátt til þess að breytist að ráði í náinni framtíð. Þaö er því ekki úr vegi að athuga ástand og aldurfiskibát- anna sem fólkiö byggir afkomu sfna á aö mestu leyti, beint og óbeint. í ársbyrjun 1971 voru sem næst 100 bátar undir hundrað rúmlestum í eigu Suðurnesja- manna, er þá átt við þilfarsbáta frá ca. 10 rúmlestir að stærð og meðalaldur þeirra 15,8 ár. Sama ár eru ca. 28 bátar yfir 100 rúmlestir í eigu Suðurnesja- manna og meðalaldur þeirra 6,75ár. (lokársinssemeraðliöa þ.e. í nóv. eru ca. 90 bátar undir 100 rúmlestum í eigu Suður- nesjamanna og meðalaldur 21 ár, þá eru 41 bátur yfir 100 rúmlestir og meöalaldur 15,4 ár. Skuttogarar eru 6, meðalaldur 6,5 ár. Þess skal getið að hluti báta- flotans hefur verið endurbættur af tækjum og vélum og nokkrir stærri bátanna verið yfirbyggð- ir og lengdir sérstaklega með loðnuveiðar í huga. [ framhaldi af þessu sést að meginhluti bátaflota Suður- nesjamanna er orðinn alltof gamall og meðsama áframhaldi verður stór hluti bátaflotans úr sér gengið rusl að fáum árum liðnum, sem enginn sjómaður vill vera á. Viöhorf manna til útgerðar er að breytast og kemur til með að breytast mun meira á næstu árum, sérstaklega er varðar fiskibátana. Spá mín er sú að í framtíðinni verði allir fiskibátar með yfir- byggt þilfar allt niður í 50-60 tonna stærð. Þeir veröi t.d. búnir miklu meiri sjálfvirkni ( sam- bandi við spil og notkun þeirra. Þá verði búönaöur í eldhúsi sjálfvirkari þannig að ekki þurfi kokka á landróðabáta. Búnaður í lest verði gjörbreyttur og fiskur í þar til geröum löndunarköss- um sem skipt er um viö löndun og fleira þessu líkt. Til þess að hægt verði að koma við nýjungum í bátunum verðurað breyta lagi bátannaog aðhæfa það komandi tækni. Að lokum þetta, ef Suður- nesjamenn gera ekki átak í að endurnýja bátaflotann á næstu árum, verður á Suðurnesjum elliheimili íslenskra fiskibáta, eins og nú stefnir, þó að það sé viðurkennt að bátaútgerö hentar Suðurnesjum ekki síður en t.d. togaraútgerð. GLEÐILEG JÓL! Farsælt komandi ár! Þökkum starfsfólki öllu á sjó og landi, Grindvíkingum, svo og öörum viöskiptavinum liðnaárið. Utgerðarfélagið ÞORBJÖRN hf. Grindavik FAXI - 195
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.