Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1980, Page 72

Faxi - 01.12.1980, Page 72
flutti Sigvaldi til Grindavíkur haustið 1929. Góð og mikil húsakynni voru í Garöhúsum, enda margt í heimili að jafnaði. Þó mun nú hafa þrengst mjög um húsrými er 7 manna fjöl- skylda flutti inn á heimilið, sem þurfti auk fjölskylduhús- næðis sérstofur fyrir læknis- þjónustuna. Báðir voru þeir Einar í Garðhúsum og Sigvaldi Kaldalóns örir í lund og skap- ríkir nokkuð. Aldrei heyrðist þó annað en báðir nytu fyllsta olnbogarýmis í sam- búðinni, enda báðir kvæntir öðlingskonum, sem skyldu vel sitt hlutverk og kunnu að stjórna fjölmennu heimili með aga og tillitssemi. Samtímis var hafin bygg- ing hins nýja læknisseturs og safna til þess fjár meðal hreppsbúa. Gekk hvort tveggja með ágætum. Hið nýja hús var byggt úr timbri og járnklætt, tvær hæðir með kjallara, vandað að frágangi, gott íbúðarhús- næði með lækningastofu og lyfjageymslu. Læknishjónin sköpuðu þarna brátt glæsi- legt heimili þar sem fór saman hagsýni húsmóður- innar og næm listhneigð húsbóndans. Líklegt er , sé miðað við störf og aðstöðu héraðs- lækna í strjálbýli á þessu tímabili, að Sigvaldi hafi hér starfað við hagkvæmar að- stæður og unað sér vel þann tíma er hann átti heima í Grindavík. Vetrarvertíðin var oft anna- söm í Grindavík. Þá fjölgaði íbúunum verulega og var oft kvillasamt. Við erfiða vinnu við sjóinn, vökur og vosbúð, hætti sjómönnum mjög til að fá slæm fingurmein, sem oft var erfitt að fást við og því voru menn oft handlama og frá vinnu lengri eða skemmri tíma. Reyndust nú viðbrigðin mikil, að hafa lækni á staðn- um, sem gott var að leita til. Sigvaldi naut trausts Grind- víkinga sem læknir. Sjúkl- inga sína annaðist hann af mikilli umhyggju og væri um meiri háttar sjúkdómstilfelli að ræða var hann ekki í rónni fyrr en sjúklingurinn var kominn í sjúkrahús þar sem hann gat notið fyllstu læknis- hjálpar og hjúkrunar. Vegna kynna og reynslu af lækni sínum, Sigvalda Kaldalóns, undu Grindvíkingar því illa að fá ekki lækni er Sigvaldi varð að láta af störfum vegna heilsuleysis, en nú hafði rýmkast um húsnæði hjá Keflvíkingum og hafa hér- aðslæknar Keflavíkurlæknis- héraðs setið þar síðan. Heimili þeirra læknishjón- anna í Grindavík var mikið menningarheimili. Sigvaldi átti mjög vandað útvarps- tæki er vinir hans vestra höfðu gefið honum. Væri hann ekki að sinna skyldu- störfum var hann oftast að finna við hljóðfæri sitt eða útvarpstækið, þar sem hann hlustaði á sígilda tónlist, út- lenda eða innlenda. Hann var óþreytandi að útskýra og fá aðra til að skilja og njóta þess besta, sem hann þekkti í heimi tónanna. Ævisögur höfundanna voru rifjaðar upp, maður skyldi vita deili á lifskjörum þeirra sem gáfu sia í verkum sínum. 1 Grindavík samdi Kalda- lóns mörg sönglög. Mig grunar að innst inni hafi Kaldalóns kveinkað sér ör- lítið undan tómlætislegum umsögnum sumra gagnrýn- enda um sönglög hans. En þjóðin unni og söng lögin hans og hann vissi, að í þjóðarsálinni myndi lifa hinn varanlegi dómur um söng- lög hans þegar skvaldur nú- tímans væri þagnað. Sigvaldi Kaldalóns lét almenn félagsmál allmikið til sín taka og vildi vekja menningarblæ í vitund fólksins í mannlegu samfél- agi. Kvenfélag Grindavíkur vígði samkomuhús sitt, Kvenfélagshúsið eins og það var nefnt, árið 1930. Hið nýja hús lyfti undir margskonar menningarstarafsemi. Mörg leikrit voru æfð og leikin. Studdi Kaldalóns þessa starfsemi á margan háttæfði sönglög með leikurum og lék undir á leiksýningum. Margir ágætir gestir áttu leið til Grindavíkur á þessum árum fyrir atbeina Kven- félagsins. Veit ég að Kalda- lóns greiddi mjög fyrir því, að Synir Margrótar og Sigvalda Kaldalóns. Standandi: Eggert (t.v.) og Snæ- björn, en viö boröiö sitja Guömundur og Sigvaldi (t.h.) söngvarar, fyrirlesarar og fræðimenn létu til sín heyra í hinu nýja samkomuhúsi. Nokkrum sinnum efndu þeir bræður Kaldalóns og Eggert til söngskemmtana í samkomuhúsinu og er Eggert taldi mál að kveðja sönggyðjuna og hætta að syngja opinberlega héldu þeir kveðjuhljómleika þar, þá hygg ég að harpa þeirra bræðra hafi hljómað tærast. Báðir voru þeirbræðurvið- kvæmir, næmir fyrir utanað- komandi áhrifum, áttu báðir í sálu sinni dýrlega strengi, sem hljómuðu yndislega á góðri stundu. Ég hygg, að enginn sem þarna var gleymi nokkurn tíma þessu kveðju- kvöldi. Um mörg ár var Kaldalóns æðstitemplar í Góðtemplara- reglunni í Grindavík. Veitti" hann þar ágæta fræðslu um skaðsemi áfengis. Hann fékk marga vini sína úr Reykjavík til kvöldfundar í stúkunni. Minnisstæðastir þeirra manna eru mér Pétur Sigurðsson erindreki og Friðrik Ásmundsson Brekk- an rithöfundur, fluttu báðir snjöll og fræðandi erindi. Mjög var jafnan gestkvæmt á heimili þeirra hjóna Mar- grétar og Sigvalda. Þau voru elskulegir veitendur, háir sem lágir nutu sömu hlýju og gestrisni. Af þjóðkunnum mönnum, sem oft komu á heimili læknishjónanna eru mér einna m i n n isstæðasti r Ríkharður Jónsson mynd- skeri, Ragnar Ásgeirs- son garðyrkjuráðunautur og Sr. Bjarni Jónsson dóm- kirkjuprestur. Allir voru þessir menn miklir vinir þeirra hjóna. Gunnlaugur Scheving listmálari dvaldi oft hjá Kaldalóns, þá urðu til sumar hinar stórbrotnu sjáv- armyndir Gunnlaugs. Sumarið 1945 veiktist Kaldalóns skýndilega, fékk heilablæðingu. Hann lamaðist mikið og átti örðugt um mál. Við ágæta hjúkrun konu sinnar, komst hann aftur til nokkurrar heilsu. Ég gleymi því aldrei, er Sigvaldi komst á fætur og var studdur inn í herbergið, sem hann vann jafnan í að tón- smíðum sínum, augun hvörfluðu að flygelinu og hjá því settist hann, fingurnir léku ekki lengur um nótna- borðið - höfug tár hrundu niður vangann. Starfsdeg- inum var lokiö. Sigvaldi Kaldalóns unni heitt æskustöðvum sínum í Reykjavík og að loknum Framh. á bls. 197 FAXI - 236
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.