Faxi - 01.10.1981, Page 4
hvor um sig möguleika á 24 tal-
rásum, og var álitið að þeir
mundu anna símaumferð til út-
landa um ófyrirsjánalegan tíma.
Þegar strengirnir voru teknir í
notkun á árunum 1962 og 1963
varð mikil aukning á símaum-
ferð einkum til Evrópu, og þótti
Ijóst upp úr 1970, að Scotice
mundi fullnýtast innan fárra ára.
Eftir umfangsmikla könnun á
því hvaða leið vaeri hagkvæmust
til að mæta þeirri aukningu á
símaumferð, sem hafði orðið á
nær því hverju ári síðan 1962,
ákvað þáverandi samgönguráð-
herra, árið 1976, að gengið
skyldi til nýrra samninga við
Mikla norræna ritsímafélagið
meö það fyrir augum að byggö
yrfti jarðstöö á íslandi og gervi-
hnettir teknir i notkun fyrir sam-
bönd milli íslands og annarra
landa.
Nýr samningur var síðan
undirritaður18. marz 1977. Sam-
kvæmt samningnum byggja rík-
isstjórnin og Mikla norræna rit-
símafélagiö jarðstöö á (slandi og
á íslenska ríkiö meiri hluta í
stöðinni. Var þegar í stað hafist
NÝKOMIÐ
GÓLF-
PARKET
Hagstœtt verð.
JÁRN & SKIP
Sími 1505 - 2616
handa um undirbúning fyrir
jarðstöðina og verkið viö hana
boðið út á alþjóðavettvangi. Sjö
fyrirtæki buðu í verkið og var
samið við lægstbjóðanda,
bandarískt fyrirtæki. Við opnun
jarðstöðvarinnar voru teknar i
notkun 10 talrásir við Frankfurt i
V-Þýskalandi og varsímnotend-
um um leið gefinn kostur á að
velja sjálfir númer í flestum lönd-
um Evrópu. ( þessu skyni hafði
samhliða jarðstöðinni verið
byggð sjálfvirk utanlandsmið-
stöð.
Nú ári seinna eru 35 talrásir
tengdar um jarðstöðina til ann-
arra jarðstöðva til viðbótar þeim
línum sem eru í Scotice og lce-
can. Vegna mjög aukins fjölda
samtala, einkum til Norður-
landa, er fyrirsjáanlegt að enn
þurfi að fjölga talrásum á næst-
unni. Einn af kostum jarðstöðv-
arinnar er, aö hægt er að fjölga
rásum nær ótakmarkað með til-
tölulega litlum viðbótum í tækja-
búnaöi.
Jarðstöðin Skyggnir notar
gervitungl alþjóðasamtaka, sem
kallast Intelsat, en (sland hefur
verið aðili í samtökunum síðan
1973. Tunglin eru i tæpl. 36000
km hæð yfir miðbaug og starfa
sem endurvarpsstöðvar. Til þess
að geta tekið á móti sendingum
gervitunglanna yfir órafjarlægð-
ir, er nauðsynlegt að loftnet
jarðstöðvarinnar hafi stórt flat-
armál. Loftnet Skyggnis er32 m í
þvermál og vegur yfir 250 tonn.
Skyggnir hefur útbúnað til að
senda sjónvarpsmyndir upp í
gervitungl og taka við myndum
þaðan, sem koma frá öðrum
jarðstöðvum.
Tek að mér almenna gröfuvinnu
Hef til leigu M.F. 70. - Uppl. í síma 1423.
Jóhann Sigvaldason, Nónvöröu 11, Keflavík
íbúar
Gerðahrepps
Þeir sem flutt hafa í Gerðahrepp á þessu ári,
eða eftir 1. desember 1980 eru hvattir til að
tilkynna aösetursskipti nú þegar á skrifstofu
Gerðahrepps.
Húsráðendur eru ábyrgir fyrir tilkynninga-
skyldu þeirra sem brott hafa fluttst.
Sveitarstjóri
Útgerðarmenn - Skipstjórar
FYRIRLIGGJANDI;
Ábót
Færaefni
Bryggjubönd
Tóg, frá 20-26 mm
Baujur
Bujuluktir
Bambus
Línusteinar
Goggar
Stingir
Hakar
Blakkir
Lásar
Kósir
LÍTIÐ VIÐ í JÁRN & SKIP
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Simi 1505
FAXI - 124