Faxi

Volume

Faxi - 01.10.1981, Page 7

Faxi - 01.10.1981, Page 7
Viðburðarík ævi Sigríður Jóna Þorbergsdóttir rifjar upp það helsta er fyrir hana bar á langri ævi. Þegar landnámsmenn helguðu sér land til eignar og ábúðar á íslandi, voru nokkur grundvallaratriði höfð i huga meðan enn var hægt að velja sér aðsetur, ef átrúnaður var þá ekki látinn ráða. Margir landnámsmanna voru vikingar, eða þekktu vel til ránsferða og ofbeldis, sem virðist þá hafa verið virtur tíðar- andi, a.m.k. i þessum heimshluta. Þeir höfðu margir sjálfir orðið fyrir yfirgangi og aðför sér sterkari foringja og vildu sjálfsagt búa við tryggari og frjálsari lifshætti. Vafalaust hefur þvi þótt mikilvægt að hugsanlegir óvinir eða ránsmenn ættu ekki greiða aðför að híbýlum manna. Þó kann fæóuöflunar- möguleiki að hafa verið ifyrirrúmi. Ætla má að landfegurð hafi lika átt nokkurn þátt i vali á bæjarstæði, - þvíað mörg voru þau valin af mikilli smekkvisi og áugljósri tilfínningu fyrir fegurð og hagkvæmni. Sléttuhreppur eða Aðalvíkin bjuggu yfir mörgum þeim eiginleikum, er gerðu staðinn fýsilegan til landnáms. Sjófang auðfengið upp við landsteina og fiskur í vötnum, beitarland allgott fyrir bústofn og erfitt fyrir ofbeldismenn að koma að búendum óviðbúnum. Sumarfegurð mikil, sem ásamt öðru vó upp á móti löngum og stundum hörðum vetri. Enda varþarna blómleg byggð fram undir miðja þessa öld. Árferði var þar misjafnt eins og alls staðar annars staðar á íslandi, en jafnan komst fólk vel af. Það hafði langa reynslu i að nýta það sem þvi gafst úr sjó og af landsins gæðum. Það undi vel við sitt. Notaði timann vel til hagnýtra starfa og frístundir til heimanáms og skemmtana eftir föngum. Lífsbaráttan var þvi strangur skóli. Egg og fugl - nýmeti úr þjarginu, kostaði stundum blóðfórn og löng gat biðin orðið eftir fyrirvinnunni, sem lagt hafði út i skammdegissortann á litlu fleyi, knúnu áfram afhandafli fárra manna. Við þessar aðstæður þróaðist þolgæði, skapfesta og manndómur, enda hefur margt ágætra íslendinga átt rætur i þessum jarðvegi. Siðari heimsstyrjöldin olli viða aldahvörfum. Aðalvikin fór ekki varhluta af vá þeirrar vopnahriðar. Þessi fagra byggð gjöreyddist. Fólkiö dreifðist i allar áttir. Margt ágætra Sléttu- hreppinga flutti hingað á Suðurnesin og settist hér að. Þegar rætt er við þá um yfirgefna heimabyggð þeirra finnur maður ylinn frá hugskoti þeirra og söknuð i minningunni um frjáls- ræði og fegurð æskustöðvanna. Til fyrirmyndar er tryggð þeirra við héraöið og þau mannvirki sem enn standa, og voru þeim helg, s.s. kirkjan, sem þeir hafa endurbyggt og lag- fært. Eitt aldamótabarnið sem enn lifir, Sigriður Jóna Þorbergs- dóttir, hefur átt mjög viðburðaríka ævi. Hún er stálminnug og segir vel frá. Það má segja að i frásögn hennar tengist fornöld nútiðinni. Dóttir hennar, Ásta Ólafsdóttir, sem hingað fluttist, en býr nú í Reykjavík, hefur skráð frásögnina eftir móður sinni. . _ hressum okkur á einhvern hátt. Margt stendur til boöa. Körfuboltavertíöin er hafin. Valur hefur tapað fyrsta leikn- um fyrir Njarðvík, og Keflavík á að leika við Hauka 10. okt. Nóg verður að gera, bæði við æfing- ar og að horfa á skemmtilega leiki, bæði í Njarðvíkurljóna- gryfjunni og í Keflavík. Þetta tækifæri viljum viö nota til að hvetja fólk til að horfa á leiki unga fólksins, því þar má sjá margt sem gleöur augað. Handboltavertíöin er líka haf- in. Keflvíkingar æfa nú stíft undir stjórn Gunnlaugs Hjálmarsson- ar. Hann stefnir örugglega á 2. deild ef ég þekki hann rétt. Og ekki skortir efnin hér í bæ. Skíðafélag er nýstofnað og í vetur verður tekin í notkun þjón- ustumiðstöö í Bláfjöllum. Ekki er að efa að þangað eiga margir eftir að sækja. Og þá má nefna badminton, júdó, borðtennis, sund o.m.fl. Mætið öll hress, verið þið bless. H.H. Fyrstu minningar Eg heiti Sigríður Jóna Þor- bergsdóttir og er fædd 2. des. 1899. Fyrstu minningar mínar eru úr Efri-Miðvík í Sléttuhreppi, en þar er ég fædd og uppalin. Gamli bærinn var torfbær með timburgafli og 6 rúðu glugga. Þrjú rúm voru öðrum megin en tvö hinum megin. Kamína var á miðju gólfi rétt innan við hler- ann sem var yfir stigaopinu. Baðstofan var portbyggð, glugg- ar í báðum göflum, niðri var svo stofa og búr og svolítill gangur þar sem stiginn lá upp. Hurðin fram í bæjardyrnar var lokuð meö dragsteini. í bæjardyrum voru dyr beggja megin, öðrum megin inn í hlööuna og hinum megin inn i eldhúsið (hlóðaeld- hús) og fjósiö. Síöan var stór hurð sem lá út, þarna gengu allir um, fólkið og kýrnar, sem voru oft þrjár og oftast kálfur líka. Það var vel hlýtt í baðstofunni og ég man ekki eftir mér áður en kam- ínan kom. Á morgnana var gefið heitt mjólkurbland og líklega brauð með, en grautur um tíu- leytið og kaffisopi um hádegið. Kl. þrú var soöinn fiskur, á kvöldin var svo grautur og súr- meti. Ég man þetta ekki nógu vel. Síðar var breytt um matar- tíma, soöinn matur kl. tólf og kaffi kl. þrjú á daginn og mun ég þá hafa verið 10 ára. Á kvöldin var súrsaöur matur og grautur, sem oftast var hafragrautur. Fornir heimilishættir í bæjardyrunum var kvörnin og þar var malað bankabygg í grauta og lummur. Þetta var nú samt alveg að leggjast niður um það leyti sem ég byrja að muna eftir mér. Eldri bræður mínir voru látnir mala. Brauðin voru bökuð í hlóðunum. Rúgdeigiö var hnoöað og látið á plötu sem látin var yfir eldinn og síðan var potti hvolft yfir. Glóð og moði var raöað í kring og bætt á, á meöan fólk var vakandi. Morg- uninn eftir var brauðið bakað. Stundum fengum við heitt brauö á morgnana meö smjöri, þegar það var til, annars floti (lýsis- bræöingur). Við fengum alltaf nóg að borða, þó margt væri í heimili, bæði börn og vinnuhjú. Á hlóðunum voru líka bakaðar lummur úr möluðu bankabyggi. Plata var lögð yfir glóöina og bakað á henni. Á sama hátt voru bakaðar sumardagskökur sem hnoðaðar voru úr bankabyggi. Þær voru helst bakaðar fyrir sumardaginn fyrsta og gamlárs- dag og notaðar i skammtinn, ásamt hangikjöti og harðfiski. Þessi matarskömmtun var að leggjast niður um þaö leyti sem ég man eftir mér. Flatkökur úr rúgmjöli voru bakaðar á sama hátt og lummur, og voru borð- aðar daglega. Slgriður Jóna Þorbjörnsdóttlr Pabbi las alltaf húslestur á sunnudögum og hátíðisdögum og á föstunni, og voru passíu- sálmar sungnir á eftir. Annars var oft farið til kirkju á hátíðum, sérstaklega pabbi, en hann var meðhjálpari í nokkur ár. Á jólun- um var góður matur og mjög há- tíðlegt. Kerti voru heimatilbúin fyrstu árin sem ég man eftir mér og var okkur gefið sitt kertið hvoru. Það varvakaðallanóttina ef hægt var, en ég var alltaf ónýt að vaka á kvöldin. Oftast var spil- að á spil, púkk og fleira. Ég lærði að lesa í Nýja testa- mentinu, því ekkert var til staf- rófskver. Foreldrar mínir kenndu mér aö lesa og einnig að draga til stafs. Ég var að verða ellefu ára þegar ég fór í skóla að Hesteyri. Ég var hjá Guðjóni Kristjánssyni og Kristínu Arn- órsdóttur á Langavelli. Þau áttu sína dótturina hvort (voru bæði ekkjufólk). Pálína G., árinu eldri en ég (nú nýlátin), og Fríða Sig- urðardóttir, árinu yngri en ég, kennari og nú til heimilis að Há- túni 10. Við fylgdumst allar í skólann og voru öll börnin á sama tíma. Kristín Runólfsdóttir var þá kennari á Hesteyri og var góður kennari. Kennsla hófst fyrst á Hesteyri 1884, en 1904 var nýbyggt þing- hús hreþþsins tekið til skóla- halds þar. 1899 var reistur nýr skóli á Látrum, sem bændur reistu af miklum myndarskap og gáfu síðan hreppnum. Föður- bróðir minn, Pálmi Jónsson bóndi í Rekavík, gaf alla máttar- viði í skólann og allir sem gátu gáfu bæði efni og vinnu. Eftir það var kennsla á Látrum og Hesteyri meðan byggð hélst í hreþpnum. Farkennsla var á Ströndum og Sæbóli, en mikið var um að börnum væri komið fyrir nálægt þessum tveim skól- um yfirveturinn. 1933varbyggð- ur nýr skóli á Sæbóli. Ég var svo í skóla á Látrum næstu tvo vetur, en þá lauk skólagöngu minni en við tók fullnaðarpróf fjórtán ára. Þarvar ég hjá Jóni Hjálmarssyni og Karitas Guðnadóttur, og elsta dóttir þeirra var árinu yngri en ég og fylgdumst við í skólann. FAXI - 127

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.