Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1981, Blaðsíða 9

Faxi - 01.10.1981, Blaðsíða 9
Ólafshús. Eitt af yfirgefnu húsunum. Sóley gylllr grundlna en skammt er I grágrýtishjallana. Myndina tók Ásta Ólafsdóttir 1973. tekjan. Allur eldiviður var mór sem stunginn var upp og þurrk- aður. Hnausarnir voru stungnir í sundur og grindaðir á grafar- bakkanum. Grindað var þannig að móflögunum var stillt hvorri upp við aðra eins og væri verið að búa til spilaborg. Þegar mór- inn var orðinn þurr, svona um mitt sumar, var hann tekinn saman og látinn í stóra hrauka sem kallaðir voru desjar. Hlaðið var utan með (vejulega voru þær kringlóttar) og svo kastað í miðj- una. Þetta var kallað að desja móinn. Hann varsvoflutturheim á hestum á haustin eins og geymsluhúsnæðið leyfði. Það sem eftir var, var svo flutt heim á sleðum að vetrinum. Alltaf var einhver af heimilinu sendur- norður á Strandir ,,á brún", á vorin, til þess að fá egg og fugl til heimilisnota. Þaðvoru mikil búdrýgindi í mat og var sjálfsagt og nauðsynlegt hverju heimili. Eggin voru notuð til matar á meðan þau fengust, bæði ný og stropuð. Fuglinn var plokkaður og sviðinn og siðan saltaður, en líka soðinn og geymdur súrsaður. Allt fiður var notað í sængurföt. Þetta var að sjálfsögðu svart- fugl. Venjulega byrjaði sláttur í júlí og var ætíð ,,borið út“ á laugar- degi. Einu amboðin voru orf, Ijár og hrífa. Allt var heimasmíðað, tindarnir líka. Efnið í þá var keypt í kaupstað og kallað ,,brúnbris“. Ljáir voru bæði dengdir og lagðir á hverfisstein. Við vorum oft þreytt börnin þegar við vorum látin snúa undir, og svo var brýnt með steinbrýni. Um sláttinn var alltaf mjög mikið að gera, unnið frá morgni til kvölds. Á sunnudög- um var aldrei unnið við slátt, en hey var þurrkað, þ.e. rifjað og rakað upp ef þurfti. Þegar búið var að þurrka töðuna og koma henni í hlöðu voru ,,töðugjöld“, og var alltaf slátrað lambi. Eftir þaö var heyjað á engjum og stóð það fram íseptember, enfóreftir veðri. Oftast voru nóg hey, nema 1918, en þá voru lítil hey. Þegar heyskap var lokið og búiö að koma heim mónum, byrjuðu haustróðrar frá Látrum. Þeir voru oftast stopulir enda veður orðin slæm og því stopular gæftir. Göngur voru frekar auðveldar í Sléttuhreppi, að minnsta kosti þegar maður ber saman við gangnaferöir hér sunnanlands, sem taka sjö til átta daga á hest- um. Það var stutt á fjall og okkar fé úr Miðvík var réttað á Látrum. Slátrað var heima til heimilis, saltað og hengt upp (reykt), soðið slátur og látið í súr. Eitt- hvað mun hafa verið selt í kaup- stað. Ég minnist þess að þegar ég gifti mig þá gaf pabbi mér kind. Eg seldi hana og fékk fyrir hana saumavél. Þjóðtrú og hindurvitni Árið 1907 eða 1908 man ég eftir atviki sem enn er óskýrt. Það var um hávetur og leiðinda- veður. Um kvöldið fór að heyr- ast undárlegt hljóð eins og í skipsflautu. Fyrst var haldið að þetta væri flaut í skipi, sem oft lágu inni á víkinni ívondum veðr- um. Það reyndist þó ekki vera og sló óhug á fólkið. Þetta heyrðist í tvö kvöld en svo ekki meir, og svo gleymdist þetta. Um það bil tveim árum síðar heyrðist þetta aftur í mjög vondu veðri, en nú reyndist þetta vera frá togara sem strandað hafði á sandinum fyrir botni Aðalvíkur. Nokkur spölur er niður að sjó, eða um 15-20 mínútna gangur. Þegar birti var strax farið að huga að skipinu sem nú sást í fjörunni, en mikið brim var og mjög mikill bylur. Tveir menn sáust á lífi, en ekkert var hægt að gera. Menn stóðu samt yfir þessu og reyndu að kasta línu um borð, sem auð- vitað náði alltof skammt. Það var hörmulegt að horfa á þetta og geta ekkert gert. Lík þessara tveggja manna rak upp á sand- inn seinna, en fleiri sáust aldrei. Togarinn sökk síðan í sandinn á næstu árum og varð aldrei komist um borð í hann. Eftir að togarinn strandaði, var talið að það sem heyrðist tvemur árum áður hefði verið fyrirboði þessa hörmulega slyss. Margir trúðu á huldufólk. Þeg- ar móðir mín gekk með fyrsta barn sitt, dreymdi hana konu sem sagðist búa nálægt henni og heita Finnbjörg. Hún vildi láta koma upp nafni sínu. Móðir mín trúði að þetta væri huldukona og lét barnið sem vardrengur, heita Finnbjörn. Ég vissi um fleiri svona dæmi, að börn væru látin heita eftir huldufólki sem birtust konum í draumi. Einnig var trúað á tilvist ,,nykurs“, og vil ég geta um eitt dæmi þess sem ég man vel sjálf. Þegar Valdi bróðir minn var eitt sinn að smala, sá hann Ijósgráan hest (en svoleið- is hest áttum við) og reyndi hann að ná honum. Þetta var uppi á hjalla þar sem hestarnir héldu sig aldrei, en hann var það ung- ur, að hann hugsaði ekki út í það. Hann elti hestinn nokkuð en tókst ekki að ná honum, en sagði frá þessu þegar hann kom heim. Því var almennt trúað að þetta hafi verið ,,nykur“. Al- menningur trúði líka á fylgjur, sem kæmu á undan fólki meö ýmsum hætti, í draumi eða á annan hátt. Mérersérlegaminn- isstætt eitt slíkt dæmi. Valdi bróöir minn, sem þá var smá- barn, veiktist snögglega nætur- tíma. Um morguninn kom maður, Guðni Kjartansson úr Hælavík. Faðir minn fór til dyra og ég elti hann eins barna er siður, og heyrði því það sem þeim fór á milli. Pabbi sagði: ,,Þú sækir illa að.“ Svarar þá Guðni: ,,Guð hjálpi mér, hver varð fyrir því? Ég ætlaði að koma í gær- kvöldi en það varð úrað ég gisti í Stakkadal." Það orð lá á að eitthvað slæmt fylgdi Guðna, og eftir þessu að dæma virtist hann vita urw það. Bróðir minn var lengi veikureftirþetta. Ég heyrði líka frásagnir um fjöru-lalla og annars konar skrímsli. Álaga- blettir voru til á hverri jörð og var aldrei við þeim hreyft. Líka var talað um drauga. Fylgjur, eins og Stakkadals-Móri og Marðar- eyrar-Móri og taldir voru fylgja vissum ættum eða fjölskyldum, voru staðreynd sem flestirtrúðu á. Unglingsárin Ég fermdist fjórtán ára að Staö í Aðalvík. Prestur var sr. Runólfur Magnús Jónsson. Ég gekk til spurninga í eina viku fyrir ferminguna og var þá í Þverdal hjá Herborgu Kjartans- dóttur, móðurömmu minni. Þau voru fimmtán börnin sem fermd- ust um leið og ég. Eftir ferming- una var ég áfram heima og hjálpaði til við öll störf sem til féllu úti og inni. Haustið sem ég varð sextán ára, í desember, var ég fanggæsla hjá pabba og bræðrum mínum á Látrum. Það var það fyrsta sem ég vann ann- ars staðar en heima. Vorið eftir var ég atur fanggæsla hjá pabba í Skáladal, en þaðan var róið á vorin. Róiö var á árabát með lóðir og voru þeir sex á bátnum. Ég hafði mat fyrir þá alla, sauð fisk og graut, en brauö höfðu þeir aö heiman. Ég þvoöi líka af þeim sjóvettlinga og sokka- plögg. ( kaup fékk ég stærsta fiskinn í hverjum róðri og var það haft sér, og man ég aö fyrir kaupið keypti ég bláa mjög fal- lega dragt. Ég átti hana til spari í mörg ár. Vorið eftir, þá sautján ára, var ég líka fanggæsla á sama stað. Þá fékk pabbi aðra stúlku til að hjálpa til heima á meðan, sem var eldri og dug- legri en ég var, til að hirð skepn- urnar og hjálpa til við sauöburð- inn. Haustið áður, eða þegar ég varð sautján ára, fór ég í Hús- mæðraskólann á (safirði. For- stöðukonan var Fjóla Stefáns- dóttir. Skólinn stóð í fjóra mán- uði. Ég lærði þarmikið, bóklegt, saumaskap og matreiðslu. Pabbi kostaði mig og hafði líka kostað Margréti systur mína á sama skóla árið áður. Óhætt er að segja að þetta haf i verið sjald- gæft á þeim tíma, en þó man ég eftir einni stúlku úr hreppnum sem var þar um leið og ég. Gifting og fullorðinsár Um haustið 1917, 17. nóvem- ber, giftist ég unnusta mínum, Ólafi Helga Hjálmarssyni frá Stakkadal. Elsti bróðir minn, Finnbjörn, gifti sig um leið unn- ustu sinni, Helgu Kristjánsdótt- ur frá ísafirði. Þetta var því syst- kinabrúðkaup. Við giftum okkur í baðstofunni heima í Miðvík. Niðri var dálítil stofa og þar vai veislan, hangikjöt og kaffi. Stof- an var tjölduð innan með hvítu lérefti, en hún var ómáluð eins og öll hús í þá daga. Finnbjörn bróðir var verslunarstjóri hjá Ásgeirsverslun á Látrum og mun hafa keypt léreftið þar. Við not- uðum það svo í rúmfatnað á eftir. Ólafur og Finnbjörn kost- uðu veisluna sjálfir að mestu leyti. Ég hef oft óskað þess að til væri mynd af okkur eins og við vorum þá. Ég fékk lánaðan skautfald, en notaði fermingar- kjólinn minn, sem var mjög fal- legur hvítur kjóll. Mamma þaföi keypt hann af læknisdótturinni á Hesteyri á sínum tíma, þar sem hún hafði ekki haft ástæðurtil að sauma á mig peysuföt fyrirferm- inguna, eins og hún hafði gert þegar Margrét systir mín fermd- Framh. á sfðu 142 FAXI - 129

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.