Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1981, Side 16

Faxi - 01.10.1981, Side 16
Fram, fram fylking, forfium okkur hœttu frá . . . Svartsengisferð Foreldra- og kennarafélagsins Laugardaginn 26. sept. sl. gekkst Foreldra- og kennarafé- lag Barnaskólans í Keflavík fyrir hópferö foreldra, kennara og nemenda, í Svartsengi. Lengi haföi félagiö áformað að efna til slíkrar feröar, en ekki komið því í framkvæmd fyrr, enda um all nokkurt fyrirtæki að ræða, þegar haft er í huga að þátttakendur í feröinni voru um 900. Rútur fluttu ferðafólkið til og frá útivistarsvæðinu og heppnaöist feröin í alla staöi sérlega vel og átti sólríkt og gott veður auk hressandi fjallgöngu og alls konar leikja og söngs, hvað mestan þátt í að gera ferð- ina skemmtilega og eftirminni- lega. Allir virtust taka þátt í gamninu eftir því sem hæfileikar gáfu frekast tilefni til og var ánægjulegt að verða vitni að allri þeirri fjölbreytni leikja og skemmtilegheita sem fengist var við. Engum blöðum er um það að fletta, að ferð sú sem hér um ræðir, er hinn ákjósanlegasti vettvangur til að efla tengslin milli heimilaogskóla, aukasam- kennd og kynni bæjarbua og varpa fyrir róða kynslóöabilinu margumrædda. Allir viömælendur mínir í ferð- inni voru á einu máli um að feröin væri ánægjuleg, og svona ferðir yrðu hér eftir fastur liður í félagsstarfinu. Svartsengi naut lofsamlegra ummæla fjöldans, enda staöur- inn hinn ákjósanlegasti til slíkra samfunda, auk þess að bjóða upp á hentugar brekkur til vetr- aríþrótta, þegar því er aö skipta. Haft var á orði að oft væri farið langt yfir skammt þegar ferðast væri í þeim tilgangi að njóta hollrar og hressandi útivistar, og í Ijósi fenginnar reynslu væri trú- lega ekki úr vegi að félagið kynnti fleiri unaðsreiti, Svarts- engi líka, hér í nágrenninu, í næstu fjölskylduferðum sem farnar verða. Að endingu nota ég tækifærið til að óska Foreldra- og kennara- félagi Barnaskólans í Keflavík allra heilla um leið og ég þakka ferðafélögunum samveruna í Svartsengisferðinni. K.A.J. Hlaupifi I skarfilfi Grindvíkingar, athugið Gjalddagar útsvars og aðstöðugjalda eru 1. hvers mánaðar. Vinsamlegast greiðið á gjalddögum. Forðist dráttarvexti og annan óþarfa kostnað. Bæjarritari Brekkubúðin: Brekkubúðin er ekki opin um helgar, aöeins opiö virka daga frá kl. 9—18, nema föstudaga til kl. 19. Komið og skoðið vöruúrvalið, það gæti sannað hið forn- kveðna, ,,Þaðeroft íkoti karlssem kóngserekki í ranni“. Brekkubúðin Tjarnargötu 31, Keflavík, síml: 2150. InnRömmun SuDURnesjfl Vatnsnesvegi 12 Keflavík - Sími 3598 ALHLIÐA INNRÖMMUN. ’OPIÐ 1-6 VIRKA DAGA OG 10-12 LAUGARDAGA. Mlkið úrval af hollenskum myndarömmum, hring- laga og sporöskjulaga römmum. - Vönduö vara. Þaö sem búiö er aö lofa er nú tilbúið. Þeir sem eiga eldrl pant- anir, vitjl þeirra nú þegar því annars veröa þær seidar fyrir kostnaöi. ROSENTHAL Glæsilegar gjafavörur. Aöeins þaö besta. MÁLVERKASALA m.a. verk eftir Gunnar Orn o.fl. Mikiö úrval af hinum sfvlnsælu BLÓMAMÁLVERKUM. Kosta Boda vörurnar fyrirliggjandi. Mjög hentugar gjafavörur. FAXI - 136

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.