Faxi

Volume

Faxi - 01.10.1981, Page 17

Faxi - 01.10.1981, Page 17
Fyrsta íþróttafélagið: Skotfélag Keflavíkur Það var sumarið 1979, sem Einar Bragi rithöfundur, benti mér á að gögn frá Skotfélaginu í Keflavík lægju í plöggum, sem komu á Þjóðskjalasafn úrdánar- búi Jóns Jenssonar dómara í landsyrfirrétti. Jón var sonur Jens rektors Menntaskólans í Reykjavík, en Jens var bróðir Jóns forseta. Var góö vinátta meö þeim bræðrum og dvaldi Jón oft í húsi Jens, er hann var á alþingi. Jón Jensson virðist hafa verið sérstaklega mikill hirðumaður á smáprent, og því er margt merki- legt að finna í safni hans. Sér- staklega er mikið af prentuðum gögnum varðandi félög á sl. öld. Er ég athugaði safn Jóns, komu í Ijós prentuð lög Skotfé- lags Keflavíkur ásamt ,,Actíum“ eða hlutabréfum sem gefin voru út vegna byggingar Skothúss- ins 1871. Sáég strax, að hérvoru komin stórmerk gögn varðandi keflvíska sögu. Þegar ég athugaði greinar Helga S. Jónssonar um Skotfé- lagið, í Faxa 1951, kom í Ijós, að réttast var að endurprenta lög félagsins í Faxa, þar sem sér- prent þeirra er svo fágætt. Veit ég aðeins um eitt eintak af þeim í eigu Keflvíkings, fyrir utan ein- takið sem er á Þjóðskjalasafni og sem hér verður farið eftir. Helgi víkur að vísu nokkuð að lögum félagsins í greinum sin- um, en það er svo lítið að rétt þykir að endurprenta þau hér eftir útgáfunni frá 1873. Lögin voru færð inn í fundarbók fé- lagsins, sem varðveitt er í Byggðasafninu. En þar sem málið á þeim er svo dönskuskot- ið, er tæplega gerlegt að lögin verði prentuð i heild eftir því handriti. Hins vegar er útgáfan frá 1873 mun betri úr garði gerð, og málið þar auðskilið hverjum nú- tímamanni. Einar Þórðarson í Reykjavík prentaði félagslögin og tóku þau gildi 1. jan. 1873, eins og 19. gr. II. kafla ber með sér. Bæklingur- inn er alls 8 blaðsíður í litlu broti. Áður en kemur að sjálfum fé- lagslögunum langar mig til að drepa á nokkra punkta úr sögu Skotfélagsins. Erstuðst við þrjár greinar eftir Helga S. Jónsson, í Faxa 1951. Skotfélagið var stofnað 21. nóv. 1869 í Keflavík Stofnendur voru 15, úr Keflavík og Njarðvík. Aðallega efnamenn, kaup- og verslunarmenn úr kaupstaðn- um og bændur úr nágrenninu. Á stofnfundi voru kosnir þrír menn í stjórn: P.L. Levinsen, faktor hjá Duus, Ólafur Norðfjörð og Hans Duus, kaupmaður. Á fundi 13. des. sama árvoru teknir inn sjö nýirfélagsmenn, af Ströndinni, úr Innri-njarðvík og Höfnum. Vafalaust hefur félagið verið stofnað fyrir atbeina manna í Keflavík, enda hafa þeir þekkt svipuð félög annars staðar, t.d. í Reykjavík. Það kom því að sjálfu sér að samkomustaður félags- ins var í Keflavík. Á fundinum 13. des. voru lög félagsins samþykkt samhljóða, en þau skyldu færð inn í fundar- bókina. Hefur sú innskrift vafa- laust veriö látin nægja, þar til lögin vpru prentuð í Reykjavík 1873. Fram kemur að fundar- gerðir eru að mestu á dönsku, en nokkrar fundargerðir hafa verið íslenskaðar ásamt lögunum. Trúlega hafa lögin aldrei verið prentuð á dönsku, enda þótt Skotfélag Rvíkur léti prenta sin lög á dönsku 1870. ( Reykjavíkurfélaginu voru margir Danir, og miklu fleiri en í þvi keflvíska. ( Keflavík voru danskir félagar tæplega fleiri en 3 við stofnun félagsins, en Hans Duus var íslenskur í móðurætt, og ýmsir íslendingar rituöu nöfn sín á dönsku, t.d. Jens Pétur Thomsen, Ólafur Norðfjörð o.fl. Skotfélagið háði keppnismót við Reykjavíkurfélagið og einnig þreyttu félagsmenn keppnir sín á milli. Voru jafnan vegleg verðlaun i boði, og mun eitthvað hafa varðveist af þeim i Byggða- safninu. 1871 byggðu skotfélagarsam- komuhús sem stóð ofan túns við Duus-húsin. Þar stóð það fram yfir 1887, en var flutt á lóð Jón Ólafssonar við Vesturgötu (sjá greinar eftir Guðna Magnússon um Bindindishreyfinguna í Kefla vík, í Faxa 1969-1970). Húsbygginguna fjármögn- uðu félagsmenn með útgáfu hlutabréfa, eða ,,Actíum“, eins og hlutirnir eru kallaðir í fundar- bók. Urðu miklar umræður á fundum um hvort hlutabréfin skyldu prentuð á dönsku eða is- lensku. Þrettán greiddu dönsk- unni atkvæði en sex voru með ís- lenskunni. Síðar var samþykkt að greiða mætti hlutabréfin með innskrift í reikning félagsins í verslunum. Hlutirnir voru síðan útleysanlegir. Fundarbók félagsins nær til ársins 1873, og hefurfélagiö þá ef til vill hætt starfi. En Skothús- ið stóð áfram, og t.d. var stúkan Vonin stofnuð þar 1887 (sjá grein Guðna í nóv.-blaði Faxa 1969, um bindindishreyfinguna í Keflavík). Skotfélagið er fyrsta félag sem vitað er um í Keflavík. Skothúsið fyrsta samkomuhúsið, og hluta- félagið í sambandi við það eitt það elsta sem þekkt er á svæð- inu, með þátttöku innlendra manna. Og nú þegar lög og hlutabréf félagsins eru komin fram, eru heimildir um félagið í heild sinni mjög merkar og fá- gætar, þar sem hér virðist vera um upphaf samkomuhalds að ræða í bænum. Birtast nú félagslögin stafrétt eftir útgáfunni frá 1873. Eru þau í tveimur megin köflum og 24 greinum. Fyrst segir frá stjórn félagsins, síðan ýtarlega frá skotkeppnum. LÖG skotfélagsins í Keflavík og nágrenni hennar. I. Embættismenn félagsins. 1. gr. a. Þessirskulu verastjórnendur félagsins: 1 formaður, 2 sam- stjórnendur; skulu þeir kosn- ir árlega, og ræður atkvæða- fjöldi kosningu. b. Veröi menn, þá er skotið er að spæni (ved Skiveskydn- ing), eigi á eitt sáttir um ein- hvern hlut, sem vel kann að bera, og einkum ef stjórn fé- lagsins skyldi eigi vera á eitt sátt, skal kjósa 2 félagsmenn til þessaðskera úr málum, og skulu menn hlýta úrskurði þeirra. Svo skal og að fara ef stjórn félagsins er eigi við- stödd á félagsfundum. LÖG skctfé.lagsins i Kcflavik og nágrcnui hennar. I. Einbættismenn félagsins. 1- ,gr. a. J>essir skulu vera stjórnenclur fólagsins: 1 forseti og 2 samstjórncndur; skulu ]>eir kosnir úrlega, og ræður at- kvseðafjöldi kosningu. b. Yerði menn, pá er skotið er að spæni (ved Skiveskyd- ning), eigi á eitt sáttir um einlivern ldut, sem vel kann að að bera, og einkum ef stjórn fölagsins skyldi eigi vera á eitt sátt, skal kjósa 2 fölagsmenn, til pess að skera úr málum, og skulu menn hlíta úrskurði peirra. Svo skal og að fara ef stjórn fölagsins er eigi viðstödd á félagsfundum. c. Ank pessa skal velja gjaldkera einn, er skal heimta inn tekjur fölagsins, og greiða úr fölagssjóði gjöld pess. d. Svo skal og velja einn endurskoðanda reikninganna; skal hann yfirlíta reikning pann yfir tekjur og gjöld fölagsins, er árlega skal leggja fram á alsherjarsam- komu fölagsins. e. Loks skal einn ritari kosinn; skal hann á fölagsfundum rita í gjörðabók fölagsins pað er á fundunum gjörist, og rita pað, er rita parf, í skotbókina. 2. gr. Úr pví fölagið er á komið, og hefir sampykkt lög sín. Kápusiöa af lögum Skotfélagsins. sem voru gefin út 1873. FAXI - 137

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.