Faxi - 01.10.1981, Side 19
vilja, æfa sig í skotum á
skotsvæði félagsins; en sé
enginn af stjórnendum félagsins
viðstaddur, skal sá, er tekur við
lyklinum, eður biður forseta fé-
lagsins um hann, ábyrgjast skot-
húsið, og það, sem í því er, og
skulu félagsmenn gæta hinnar
mestu varkárni er þeir skjóta.
Eigi má heldur neinn skjóta til
þess að æfa sig í skotum nema
skotmerkið sé reist bæði á skot-
húsinu og á skotveggnum, svo
að þeir, er framhjá ganga, geti
vitað hvernig á stendur. Brjóti
einhver á móti þessu, skal hann
gjalda 32 sk. sekt í félagssjóð.
16. gr.
Stjrón félagsins skal útvega
silkibönd, bundin í lykkjur; skal
á þau festa silfurplötu, og skal
hver félagsmaður vera skyldur'
að kaupa einkenni þetta, og bera
það ætíð á brjósti, þá er félags-
menn eigi fundi með sér;
gleymist einhverjum þetta, skal
hann í félagssjóð gjalda 16 sk.
17. gr.
Hver sá er hæfir annað hvort
ramma þann, sem er utanum
spóninn, eða þá með hvítu og
svörtu köflunum, skal í félags-
sjóð gjalda 4 sk. fyrir hvert því-
líkt skot.
18. gr.
Verði það sannað, að einhver
félagsmaður hafi við haft meið-
andi orð við annan félagsmann,
verður hann í fyrsta skipti sekt-
aður, en stjórn félagsins og 2
aðrir félagsmenn ákveða upp-
hæð sektarinnar. En komi slíkt
optar fyrir, varðar það burt-
rekstur úr félaginu."
Þannig hjóðar hinn langi og
ýtarlegi lagabálkur félagsins. Er
Ijóst, að strangar og nákvæmar
reglur hafa gilt um skotkeppnir,
enda hefur orðið að viðhafa alla
varúð við slíkar samkomur.
Af 15. grein í II. kafla, sést að
forseti félagsins hefur geyml
lykilinn að Skothúsinu og leyft
aðgang að skotsvæðinu. Aug-
Ijóst er hvers vegna húsið var
haft fyrir ofan Duustún, ofan við
byggðina. Eðlilega var stór-
hættulegt að hafa skotsvæðið
nálægt byggð, og því hefur fé-
lagið fengið aðstöðu ofan við
þorpið, á melum, þar sem minni
hætta var af mannaferðum, en
hús voru engin í nágrenninu, og
ekki nær en viö götuslóðann,
sem nú heitir Vesturgata. Það
var því rúmt um þá Skotfélaga á
góðviðrisdögum þegar þeir
þreyttu íþrótt sína og drógu
Dannebrog að hún, þann fána er
landsfeðurnir suður við Eyrar-
sund höfðu fengið að gjöf
forðum frá guði almáttugum, í
orrustu á meginlandinu.
Skotfélagið var fyrst og fremst
afþreyingarfélag efnamanna.
Tómthúsmenn og vinnumenn
komu þar lítið við sögu. En fé-
lagið var fyrsta íþróttafélag sem
vitað er um í Keflavík.
Eins og áðursegir voru prent-
uð hlutabréf, eða ,,Actíur“, sem
aðeins félagsmönnum stóð til
boða, samkvæmt texta á bak-
hlið þeirra. Þar eru prentuð
nokkur ákvæði um hlutafé og
greiðslu á því, samþykkt 27. des.
1870. Þar segir, að félagið fái
lán, allt að 300 rd. í 5 ríkisdala
hlutabréfum, sem síðan renti sig
um 4% á ári, og verði endurgreitt
í fyrsta sinn 31. maí 1872. Fyrir-
hugað hús verðurveðvegnalán-
tökunnar. Húsið skal bruna-
tryggt. Við andlát félagsmanns
skulu hlutabréf útborguð.
Annars er texti hlutabréfanna
prentaður á dönsku, og verður
birtur hérstafrétturáeftir. Bréfin
virðast hafa verið gefin tvisvar
út. I fyrrá sinn með stjórnarsam-
þykkt 31. maí 1871, seinnaskipti
6. jan. 1872. Eins og lögin, eru
hlutabréfin prentuð í prent-
smiðju Einars Þórðarsonar í
Reykjavík.
Athyglisvert er, að hlutabréf
eru ekki skilakyld til opinberra
safna, en eru meðhöndluð eins
og peningaseðlar. Því erfengur
að þessum bréfum.
Á framhlið bréfanna var prent-
að með stórum stöfum, efst á
blaöinu:
„Keblavík og Omegne Skytte-
forening".
Fyrir ofan er númer bréfsins
útfyllt af gjaldkera. Síðan kemur
eftirfarandi texti;
,,Til Ihændehaveren af dette
Beviis betaler Keblavík og
Omegne Skytteforening 5 - er
fem Rigsdaler Rigsmönt með 4%
Renter pr Annum til hvert Aare
31te mai og Capitalen meðfuldt
Belöb 5 Rd. R.M. ifölge Amorti-
sation overrensstemmende med
Selskabets Vedtægt.
Bestyrelsen for Keblavík &
Omegns Skytteforening den
31te Mai 1871."
Eins og áður segir er texti
seinna bréfsins sem prentað var
sá sami, en dagsetning stjórnar-
samþykktar er 6. jan. 1872.
Hins vegar kemur fram, að út-
gáfa bréfanna 1872 er ,,2. sería",
og hefur félagsstjórnin heimild
til að hækka heildarupphæð
lánsins í 500 ríkisdali við útgáfu
hennar. Hefur það og verið gert
úr því bréfin voru þá prentuð.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd af forsíðu bréfsins frá
1871, er prentað skraut um-
hverfis nafn félagsins, en til
vinstri er dálkur sem rentur
skyldu færðar inn á.
Textinn á bakhlið bréfanna er
og samhljóða. Þar er að finna
ákvæði um lántökuna, og réttfé-
lagsmanna í sambandi við bréf-
in og eignarrét þeirra. Einnig á-
kvæði um brunatryggingu Skot-
hússin.
Textinn hljóðar þannig orö-
rétt:
„Keblavík & Omegns Skytte-
forenings Vedtægt den 27de
December 1870.
1. Til Opförelsen af et Skyde-
huus optager Foreningen til
den 31te Maí d. A. et Laan af
circa 300 Rd. R.M. í Actier
paa 5 Rd. som tilbagebetales
með 25 Rd. aarlig, saaledes
at der aarlig til nævnte Dato
under tilbörlig Control, vil
blive udtrukne 5 Actier, sem
derefter udbetales af Sel-
skabets Kasser imod Acti-
ernes Tilbagelevering med
Renter til Lodtrækningens
Dato. Förste Afbetaling find-
er Sted den 31te Mai 1872.
2. Af det skyldige Belöb betales
Renter 4% pr Annum ved
Kasseren til hvert Aars 31te
Mai og afskives paa det ud-
færdigede Beviis.
3. Som Sikkerhed for Gjælden
stiller Selskabet som Pant,
med förste Priorited, den
paatænkte nye Bygning.
4. Selskabets faste Bygninger
holdes assurerede for Brand-
skade.
5. Actietegningen skeer kun
ved Foreningens Medlemm-
er. Actierne maa ikke af-
hændes udenfor Selskabet.
Ved Dödsfald af en Actie-
haver, skal Foreningen være
forpligted til að udbetale til
vedkommende Arvinger det
paagjældende Belöb af Acti-
erne med paalöbende Renter
tilUdbetalingsdagen, hvor-
efter Actierne amortiseres.
6. Ethvert Medlem, som han 1
Actie eller flere, har, foruden
sin egen Stemme som Med-
lem, 1 Stemme hvor hvert
Actie, naar des ved given lei-
lighed bliver Tale om Bygn-
ingene Udvidelse Reparati-
oner etc.“
Keflavík, 3. jan. 1981.
Skúli Magnússon
Sandgerðingar
- Miðnesingar
Munið að fjórði gjalddagi útsvara og að-
stöðugjalda er 1. nóvember n.k.
Greiðið á gjalddögum.
Forðist dráttarvexti.
Sveitarstjóri Miðneshrepps
Bókasafn Njarðvíkur
Grunnskólanum
Útiánstímar:
mánudaga: kl. 4-8
þriðjudaga: kl. 3-7
miðvikudaga: kl. 3-7
fimmtudaga: kl. 7-10
laugardaga: kl. 1-3
Bókavörður
FAXI - 139