Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1999, Side 2

Faxi - 01.10.1999, Side 2
3. TÖLUBLAÐ - 59. ÁRGANGUR Útget'andi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Afgreiðsla: Vallargata 17, sími 421 1114. Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri, Geirmundur Kristinsson, Þorsteinn Erlingsson og Hannes Einarsson Netfang ritstj.: bholm@ismennt.is Hönnun, setning, umbrot, litgreining, filmuvinna og prentun: Stapaprent ehf. Gróftn 13c • 230 Keflavík Sími: 421 4388 • Fax: 421 1180 Netfang: stapapr@centrum.is Meðal efnis: ♦ Eh'narstekkur ♦ Gufuskálar í Leiru ♦ Tilviljun eða fyrirboði? ♦ Kraftar í kögglum ♦ Prestsvarðan ♦ Ljós og myrkur ♦ Gistu í kastala frá 15. öld ♦ Globe verkefnið ♦ ípróttafélagið Kári ♦ Málfundafélag Njarðvíkur ♦ Eftirminnilegir róðrar Forsíðumynd Faxa að þessu sinni er frá hinu nýja Bláa lóni en það hefur nú verið flutt spölkorn frá orkuveri Hitaveitu Suðurnesja. Eins og niynd Oddgeirs Karlssonar ber með sér eru húsakynni og hið nýja lón mikið augnayndi og hefur aðsókn aukist til muna við flutninginn. Nánar verður fjallað um Bláa lónið og aðrar byggingar í Svartsengi í næsta blaði. Ritstjóraspjall: Málfundafélagið Faxi 60 ára Þann 10. október 1939 stofnuðu eftirtaldir sex menn Málfundafélagið Faxa: Ingvi Loftsson, Guðni Magnússon, Margeir jónsson, Ragnar Guðleifsson, Valtýr Guðjónsson og Hallgrímur Th. Björnsson. Fljótlega bættust við peir Danival Danivalsson, Einar Norð- fjörð, Ingimundur Jónsson og Sverrir Júlíusson. Um pað bil sem fyrsta starfsárinu lauk bættust íhópinn peir Páll S. Pálsson og Þórður Helgason. Þar með voru Faxafélagarnir orðnir tólf og pað hafa peir síðan verið öll pessi sexti'u ár. Rökhugsun og rökræður Eins og í örðum málfundafélögum var megintilgangur fálagsins að félags- menn pjálfuðu ræðumennsku og rökfærslur. Fundir voru ífyrstunni viku- lega en var síðan fækkað niður íað vera hálfsmánaðarlega yfir vetrarmánuð- ina. Fyrir hvern fund er valinn framsögumaður sem ákveður sér viðfangs- efni og flytur um pað um 20 - 30 mínútna framsögu. Það er síðan skylda annarra fundamanna að taka til máls og ræða framsöguna. Um pessar mundir eru fundir félagsins orðnir um 800 talsins og par sem hver fundur stendur ávallt íprjá klukkutíma má áætla að Faxafélagarnir hafi talað sam- fellt í um 100 daga. Virkir t félagsmálum svæðisins Fyrstu starfsár Faxa var félagið mjög virkur pátttakandi ífélagslífinu. Þær póttu merkilegar skemmtanirnar sem Faxi stóð fyrir pví par var menningin ífyrirrúmi. Og alla tíð hafa félagar Faxa verið virkir pátttakendur íbæjarlíf- inu á ýmsan hátt, m.a. hafa oftast nær verið einn eða fleiri bæjarfulltrúar t' félaginu á hverjum tíma. í desember árið 1939 réðust Faxafélagar ípað stór- virki að gefa út blað sem einnig hlaut nafið Faxi. Var markmiðið með pví framtaki að skapa grundvöll fyrir umræðu og fréttaflutning af framfaramál- um á Suðurnesjum. Blaðið hefur ávallt komið út síðan og heldur pví upp á sitt sextíu ára afmæli á næsta ári. Núverandi Faxafélagar leggja metnað sinn í að bæði félagið og blaðið haldi áfram að starfa um ókomin ár og horfa fram á spennandi tíma á nýrri öld. HH. 50 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.