Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1999, Side 10

Faxi - 01.10.1999, Side 10
Fyrsta „rafstöðin” í Keflavík var í flskhúsinu handan við aðgerðarmennina á myndinni. Fiskhús þetta var lengst af kallað Stakkshús. Glöggt má sjá hvernig fvrstu Ijósastaurarnir í þorpinu litu út. Kærkomin rafmagnsljósin mögnuðu stórum ævintýraljómann á þessu mikla athafnasvæði, sem aðgerð- arplönin upp af Miðbrvggjunni voru. Ljósm: Björgvin G. Magnússon árið 1932. Stundum gleymist nútíðarfóiki að Ijósið og hitinn hafa ekki alltaf verið jafn eðlilegur partur af tilverunni og nú þykir sjálfsagt. Á fyrri tíð var reynt að spara bæði Ijósfæri og eldsneyti eins og nokkur kostur gafst, enda hvort tveggja dýrt. Um aldamótin mátti að sönnu merkja nokkra breytingu í átt til nútímalegri hátta; þá höfðu margir eignast ágæta ofna í hús sín og steinolíulampar leystu gömlu lýsiskolurnar af hólmi. Að öðru leyti fór það eftir efnahag og smekk hvernig lýsingu og húshitun var háttað á hverju heimili. < Myrkrið utanhúss var hins vegar það sama og áður; jafn draugalegt og uggvænlegt eða þvert á móti kærkom- ið ef þurfti að læðupokast eitthvað í skjóli þess. Nú er joess að minnast að sveitarfélagið hafði að vísu ráðist í að setja upp nokkur götuljós árið 1894. Frá því sagði m.a. í Fjallkonunni og því bætt við að ljósin hefðu verið fimm og þótt helst til fá. Að öðru leyti er fregnin alltof fáorð, ekki er minnst á hvar þau hafi verið þessi Ijós, né af hvaða tagi. Tnilegast er þó að þetta hafi verið svonefnd karbítljós og að þeim hafi verið kornið fyrir við Hafn- argötuna. Vangaveltur af þessu tagi eru þó þarflitlar því skemmst er frá því að segja að ljósanna naut ekki lengi við og þegar Jón Guðmundsson smið- ur fór að yrkja um Keflavík árið 1906 sagði hann: Þar sem við loftið lýðir sjá, luktarstafna, en forðum gjörðu firðar þá fyrirhrafna. Gömlu Ijósastauramir fengu þannig nýtt hlutverk - sem sé að vera átylla fyrir lúinn krumma og kannski fleiri góða fugla. Bæjarbúar fengu liins veg- ar myrkrið aftur. Olafur Jón Jónsson, sem fæddist í Keflavík árið 1907, minnisl uppvaxtaráranna svo: „Og það var betra að vera ekki mik- ið á ferð austur í plássi eftir að farið var að skyggja því það var virkilega draugalegt að fara framhjá Norðfjörðs- húsunum - hvergi Ijós, nenia e.t.v. ein- hver týra í gluggunum. Þá voru nú ekki götuljósin, og ekki cinu sinni komið rafmagn." 58 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.