Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1999, Blaðsíða 3

Faxi - 01.10.1999, Blaðsíða 3
FAXI Oklóber 1999 Skúli Magnússon: ^lmdr&tehhur Skammt ofan við þjóðveginn í gegnum Leiruna, nánar til tekið í vestur eða suð- vestur frá vegamótunum niður að gamla bænuin á Stóra-Hólmi og gamla golfskálanum, en austan og innan við elstu þjóðleiðina, sem lá neöan Langholts út í Garð, af vestanverðum Berghólunum, er lítill grasi gróinn hóll eða gróin þúfa, sem kölluö er Elínarstekkur. Þar var að sögn heygð Elín, niðursetningur frá Gufuskálum, sem dó á dularfullan hátt ál8. öld. Sögn þessa og staðsetningu stekksins hef ég eftir ábendingum Ólafs Sigurjónssonar frá Litla-Hólmi. Þegar bílvegur var lagður um Leiruna, um og eftir 1920, var honum valið stæði ofan við byggðina, skammt austan Elínarstekks. Þessi vegur var síðan breikkaður, eins og fleiri þjóðvegir á árum seinni heimsstyrjaldarinnar, og náði þá upp undir stekkinn, sem var skammt ofan við veginn. Þegar þjóðvegur- inn um Leiruna var malbikaður, um og eftir 1980, var enn höggvið nærri hvílustað Elínar en þó ekki til tjóns. ÖRLÖG NIÐURSETNINGS Það var sumarið 1787 að Elín Stefánsdóttir, blá- snauður niðursetningur á Gufuskálum, fannst örend í snærisspotta í hjalli þar skammt frá bænum. Vegna deilna hennar og vinnumanns, þar á bænum, þótti dauði hennar ekki einleikinn. Haldgóðar vísbendingar fengust þó ekki unt að Elín hefði verið myrt, þrátt fyrir réttarhöld. Þess vegna var talið að hún hefði tekið líf sitt í skyndi- legu æði, sem að hefði að borið um nótt. Elín var því, samkvæmt kirkju- og landslögum, heygð utan vígðrar moldar og var holað niður utan túngarðs í Leirunni, í sauðfjárstekk frá bænurn á Gufuskálum. Láti Elínar og aðdraganda þess, svo og hulun líks hennar og frágangi þess, er lýst í Dóma- og þing- bókum Gullbringusýslu. Óttuðust grafaramir að Elín gengi aftur og skáru höfuð hennar af um hálsinn, lögðu líkið á grúfu, en lögðu höfuðið við þjóhnapp- ana. Átti það að tryggja að hún lægi kyir. Fyrir meðferðina á líkinu hlutu mennirnir dóma og ákúrur yfirvalda. En aldrei fór neinum sögum af ókyrrleika sem eignaður var þessari ólánsömu konu. Ef einhvem tíma verður farið í frekari vegagerð þarna ofan við þjóðveginn í Leirunni eða aðrar framkvæmdir, er rétt að huga áður að fomum minj- um á þessum slóðum og kanna hóla og þúfur skammt ofan við veginn og flytja bein Elínar í kirkjugarðinn á Utskálum, komi þau í Ijós. Þar eiga þau að hvíla. Þá loks kæmist Elín Stefánsdóttir í sátt við guð og menn, hlutskipti sem hún hlaut aldrei í lífi sínu og við dauða. Jón Hclgason ritstjóri skráði skilmerkilega frá- sögn af dauða og greftrun Elínar 1787, í Sunnudags- blað Tímans 9. febrúar 1969, bls. 108-112. Þar studdist Jón við Dórna- og bréfabækur Gull- bringusýslu. I frásögn Jóns kemur þó hvergi fram hvar Gufu- skálastekkur var. þar sem Elín var urðuð, en fyrr- nefndur heimildarmaður minn og gamall vinur, Ólafur frá Litla-Hólmi, benti mér á stekkinn ofan við þjóðveginn á ferðum okkar úti í Leiru. Ólafur kallaði stekkinn aldrei annað en Elínarstekk, en í heimildum Jóns Helgasonar, virðist hann nefndur Gufuskálastekkur og hefur það að líkindum verið upprunalegt nafn hans. Eftir greftrun Elínar hefur nafn stekksins breyst en hið eldra heiti líklega fallið úr daglegu máli og gleymst. . Elínarstekkur: Þegar kevrt er út í Garð frá Kellavík er Elínarstekkur á vinstri hönd, eins og sjá má er Inn- Garðurinn á næsta leiti. FAXI 51

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.