Faxi - 01.10.1999, Blaðsíða 6
Prýðilegur árangur
íþróttafólks af Suður-
nesjum hefur töluvert
verið á döfinni að undanförnu.
Hér er þó meiningin að flytja
brennipunktinn talsvert aftar í
öldina - allt aftur á miðjan 4.
áratuginn. Enda þótt skipulegt
íþróttastarf í Keflavík væri þá
að sönnu enn nokkuð laust í
reipum vöktu íþróttaviðburðir
einatt mikla athygli, engu síður
en nú. Einn slíkur viðburður
sker sig þó nokkuð úr og var
lengi í minnum hafður. Sagt var
að meðan Helgi Hjörvar lýsti
viðureign Keflvíkinga og Reyk-
víkinga í þeirri grein í útvarp-
inu hefði öll Keflavíkin staðið á
öndinni við viðtækin; hefur
spenningnum verið líkt við það
að Keflvíkingar kepptu til úr-
slita í fótbolta nú á dögum. Þessi
grein var reiptog og á því sviði
höfðu Keflvíkingar í fullu tré
við hvern sem var og jafnvel
gott betur.
Þetta er si|>ui lið vaskra Keflvíkinga í reiptogi á íþróttavellinum í Reykjavík uni miðjan fjórða áratug ald-
arinnar. Fremst er Jóhann Bergmann og síðan koma Pórður Pétursson, Hreggviður Bergmann, Skúli
Pálsson, Þorsteinn Eggertsson, Sigurbjörn Guðnason, Axel Pálsson og Guðmundur Pálsson.
54 FAXI