Faxi - 01.10.1999, Blaðsíða 19
FAXl (IklíiliiM' I!)!)!)
Birgir Guðnason kom nýlega með tvær litlar fundargerðarbækur til þar greinir frá starfsemi tveggja félaga sem bæði voru stofnuð og starfrækt
ritstjóra Faxa en þær bækur hafði hann fundið er hann var að fara í byrjun aldarinnar í Innri-Njarðvík. Pessum bókum verður væntanlega
í gegnum ýmis gögn föðurs síns, Guðna heitins Magnússonar mál- fundinn staður á Hyggðasafni Suðurnesja en hér á eftir verður stiklað á því
ara. Ekki er vafi á því að fundargerðarbækur þessar hafa sögulegt gildi því helsta sem fundargerðarbækurnar segja frá.
?(J J \
Þann 5. janúar 1913 var íþróttafélagið Kári
stofnað í Njarðvík af eftirtöldum:
Agúst Pálmason fomiaður
Sigurgeir Guðmundsson ritari
Kristinn Jóel Magnússon gjaldkeri
Aðalsteinn Theodór Magnússon
Þoibergur Magnússon
Sigurbjöm Magnússon
Kristinn Jónsson
Pétur Oskar Magnússon
Guðni Magnússon
Gunnar Guðmundsson
Þónnóður Svansson
Þennan dag var haldinn fyrsti fundur félagsins og
voru allir niættir utan Þonnóðs. Annar fundurinn var
síðan haldinn þann 12. sama mánaðar og voru þá
Sigurgeir, Sigurbjörn og Kristinn forfallaðir. Fjórði
fundur var síðan viku seinna, eða þann 26. og voru
þá Gísli, Gunnar og Þormóður forfallaðir. Á fimmta
fundinum, þann 2. febrúar, voru Sigurgeir, Kristinn
og Guðni forfallaðir en þá gengu þeir Egill Jónas-
son, Magnús Magnússon og Þorvaldur Jóhannesson
í félagið.
Sjötti fundurinn var haldinn 9. febrúar og var þá
bæði teflt og glímt. Egill Jónasson tilkynnti forföll
en Þonnóður, Kristinn og Guðni voru fjarverandi. Á
sjöunda fundinum, þann 16. febrúar, mættu allir
nema Gísli og Toggi en Guðmundur Stefánsson
gekk í félagið.
8. fundur - 2. niars.
9. fundur - 9. mars.
Hér vekur athygli að nú verður langt hlé á æfingum.
En líklegt er að þegar kom fram á vertíðina hafi ekki
verið mikill tími til skipulagðra íþróttaæfinga. Næsti
fundur var haldinn þann 2. nóvember. Nýr félagi,
Ásbjöm 0. Jónsson, gekk þá í félagið og það var
teflt og æfíngar stundaðar.
11. fundur - 7. nóvember. Tafl og æfingar.
12. fundur - 9. nóvember. Tafl og æftngar.
13. fundur-16. nóvember. Tellt.
14. fundur - 7. desember. Tafl og leikir.
15. fundur-21. desember. Teflt.
16. fundur - 28. desember. Glímt.
17. fundurinn var haldinn 25. janúar 1914 og var
hann jafnframt aðalfundur félagsins. Stjórnin var
endurkjörin og það var samþykkt að breyta 3. grein
laga þannig að í staðinn fyrir orðin: fyrir 10. janúar
konti í janúar ár hvert. Samþykkt var og að breyta 4.
grein þannig að hækka árstillag meðlima úr 25 aur-
unt í 50 aura. Þess var og getiö í fundargerðinni að
Toggi og ytrahverfismenn hefðu verið fjarverandi.
Að loknum aðalfundarstöifum var tcllt.
18. fundur -15. febrúar. Tafl og glíma.
Næsti fundur sem skráður er var aðalfundur þann
10. janúar 1915 og virðist það vera 19. fundurinn
þótt liann sé skráður sent 20. fundur. Þetta er leiðrétl
síðar. I stjórn voru kjörnir jteir Sigurgeir Guðmunds-
son formaður. Kristinn J. Magnússon gjaldkeri og
Sigurbjöm Magnússon ritari. Félagsmenn voru alls
tólf. Fundinum lauk með æfingum í tafli og glírnu.
20. fundur -17. janúar. Staifað að skák og glímu.
21. fundur - 24. janúar. Staifað að glímu en ekki
skák.
22. fundur -31. janúar. Glímt.
23. fundur - 14. febrúar. Starfað að glímu. í fundar-
gerðinni kemur fram að fundað sé á venjulegtim
stað og tíma. Ekki er tekið fram hvar sá staður er og
ekki veit Birgir urn þennan stað. Væri mjög gott ef
lesendur gætu upplýst um það.
24. fundur - 28. febrúar. Allir mættir - glímt.
25. fundur - 14. mars. Allir félagsmenn voru mættir
og að auki 5 utanfélagsmenn sem æfðu glímu með
félagsmönnum. Skák var einnig tefld.
Og síðan ekki söguna meir. Ekki er meira skrifað i
þessa ágætu fundargerðarbók Iþóttafélagsins Kára.
Afdrif félagsins eru því okkur ókunn í þessum skrif-
uðum ot'ðum. Er hér með auglýst eftir frekari upp-
lýsingum.
HH
FAXI 67