Faxi - 01.05.2008, Blaðsíða 3
ú * 1 > .. 4. M í\ 1 f\u ' .
WKKr ml'jl ■■nMBHSBsnnmyuuujCii e
TM
byggja á bjargi úr höggnu grjóti en það þótti
°f kostnaðarsamt. Asbjörn og Ingveldur voru
stórefnað athafnafólk. Þau buðust til að Ijár-
Wagna kirkjubygginguna ef þeirra óskaleið
yrði farin. Á það var að sjálfsögðu fallist.
Kirkjan er alíslensk smíð en heiðurinn af því
a Magnús Magnússon frá Miðhúsum í Garði
sem bæði teiknaði þetta fallega guðshús, hjó til
steininn og stjórnaði verkinu.
Hitaveitulögn í kirkjuna
Þess má geta hér, að nýlokið er lögn á hitaveitu
1 kirkjuna með laglegum látlausum ofnum,
emnig köldu vatni ásamt handlaug með heitu
°g köldu vatni. Undir vaskinum eru einnig
kranar fyrir vatnið til að auðvelda þrif á kirkj-
unni. Gamli Njarðvíkurbærinn sem var ætt-
aróðal Ásbjarnar, en er nú safnhús og stend-
ur alveg í námunda við kirkjuna, fær nú um
þessar mundir myndarlega viðgerð og end-
urnýjun innanhúss að tilstuðlan bæjarstjórans
1 Reykjanesbæ, Árna Sigfússonar, sem tekið Einar G. Olafsson stcndur hér iNjardvíkurkirkju við innrammað skjal frá 1886 þar sem
hefur þessu öllu á mjög jákvæðan hátt. prófasturinn i Görðum leggur til við hiskup Islands að Asbjórn Olafsson verði heiðraður
Eftir að framkvæmdum er lokið er mein- opinherlega. Einari rennur hlóðið til skyldunnar - Asbjörn var langafi hans.
Bréf til biskupsins yfir Islandi
Eftirfarandi bréf skrifaði Þórarinn Böðvarsson prófastur í Görðum til biskupsins yfir íslandi
10. september 1886. Þórarinn fékk þau eftirmæli að hann verði „ávallt talinn í flokki hinna
þjóðmerkustu íslendinga síðari helming nítjándu aldar, afskiptamikill á landsmálum, ósér-
hlífinn iðjumaður og ríkur höfðingi í héraði.“
„Hjer með leyfi jeg mjer að senda Biskupnum yfir Islandi úrdrátt úr vísitasíu og úttektabók
Kjalarnesþings prófastsdæmis um hina nýju steinkirkju, sem bóndinn Ásbjörn Olafsson í
Innri-Njarðvík hefir byggt þar. Tók hann við kirkju þessari í laklegu standi og með léttum
efnum og byggði hana fyrst úr timbri ár 1858, en tók það hús nú niður og byggði mjög
trausta og álitlega steinkirkju. Leyfi jeg mjer að leggja það til, að hann fái opinbera við-
urkenningu fyrir þetta mikla sómaverk, sem er sjaldgæfa á þessum tímum.
Eg hef óskað þess að fá reikning yfir bygginguna en eigi meðtekið annan reikning en upp-
teiknun þá, sem jeg legg hjer með. Hitt er mjer kunnugt að sjaldgæf hagsýni hefir verið við
höfð við bygginguna.
Virðingarjyllst,
Þórarinn Bödvarsson.
ingin að hafa bæði kirkjuna og safnhúsið opið
yfir sumannánuðina samtímis, svo sömu að-
ilar geti sýnt og sinnt þeim er vilja líta inn á
hvorn staðinn sem er, eða báða. Ég vil nefna
það hér að formaður sóknarnefndar Sigmundur
Eyþórsson hefur verið mér stoð og styrkur við
framkvæmdimar á kirkjunni og kann ég hon-
um þakkir fyrir.
Þakkir
Ennfremur þakka ég þeim hjá Húsafriðunar-
nefnd ríkisins sem að þessu komu, ráðlegging-
ar þeirrra og frábært samstarf. Að endingu vil
ég þakka framlög sem bárust frá eftirtöldum
niðjurn hjónanna Ásbjamar og Ingveldar: Auði
Stefánsdóttur, Ólafíu Ásbjamardóttur, Ólafi
Ásbjamarsyni Hilmars, Eddu Alexandersdótt-
ur, Erni Hólmjám, Steinunni Ólafsdóttur, Ólafi
E. Ólafssyni, Birni R. Einarssyni, Gunnari
Björnssyni og Ólafi Gunnarssyni, rithöfundi.
FAXI 3