Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.2008, Blaðsíða 16

Faxi - 01.05.2008, Blaðsíða 16
Skátaútilega á verzlunarmannahelgi 1943 - Brot úr óhirtri minningabók Helgu Kristinsdóttur að var að koma verzlunarmanna- helgi og skátafélagið Heiðabúar í Keflavík að fara í útilegu - og nú tók þátt í sinni fyrstu stórútilegu nýlega stofnuð kvennasveit innan félagsins, 3. sveit. Stefnan var tekin á Höskuldarvelli. Bíll var fenginn til að koma hópnum inn í Kúagerði, en ekki man ég, hvernig bíll var not- aður að þessu sinni, hvort farið var á tveimur bílum eða famar tvær ferðir. Oftast var þó farið á vömbílum, og sátu þá allir í hnapp á pallinum og breiddu yfir sig segl til að skýla sér fyrir regni eða ryki, en þá vom vegir malarbomir og holóttir og allt á kafi í ryki, ef þurrkur var. Þegar komið var í Kúagerði, var eftir 2 'á-3 tíma ganga upp á Höskuldarvelli. Allir urðu að bera farangur sinn, bakpoka, svefnpoka, tjöld, nesti og stundum vatn, en það fór eftir veð- urfari. Ekki var talið æskilegt að bera mikið „gos“, því glerið var alltof þungt - þá vom ekki komnar til sögunnar plastfiöskur. Oft höfðum við með okkur suðusúkkulaði, sítrónu og rab- arbara til að draga úr sárasta þorstanum. I þetta skipti var þó hafður svolítið annar háttur á. A laugardagsmorgninum fóm tveir skátar úr 1. sveit upp á Höskuldarvellit með hesta, klyljaða tjöldum, mat og matarílátum fyrir þennan 42 manna hóp, sem ætlaði að dvelja á „Völlunum“ yfir helgina, 15 skát- Helga Kristinsdóttir. Myndin er tekin uin iniójan fimmta áratuginn. astúlkur, 19 skátadrengi og 8 gesti. Það voru félagsforinginn, Helgi S. Jónsson, og deildar- foringinn, Gunnar Þ. Þorsteinsson, sem stjóm- uðu ferðinni. Er gangan hófst meðfram hraunjaðrinum, fór það eftir veðri og vindum, hvað við vorum lengi á göngu, en að þessu sinni sýndu veð- urguðirnir okkur sína beztu hlið. Öðru hverju gengum við yfir hraunfláka og eftir kindagöt- um. I hrauninu eru ákaflega fallegir, grónir bollar og gjótur, en alltaf varð maður að gæta sín að detta ekki og meiðast. A þessari göngu var stefnt á smá skarð í Trölladyngju. Gerði maður það, var komið svo til beint á tjaldstað. Af og til var tekin smá hvíld, því þetta gat verið þreytandi ganga., ekki sízt þegar bera þurfti mikinn farangur, auk síns hefðbundna búnaðar, svo sem fána, fánastöng, vatn, ef þurrkar höfðu staðið lengi, eldhús- tjald, prímus og potta, meðal annars til að elda sameiginlegan hafragraut á morgnana og hita kakó á kvöldin. Ekki mátti heldur gleyma elds- neytinu, olíunni á prímusinn, en allt þetta urðu „kokkarnir", sem skipaðir vom íyrir hverja útilegu, að sjá um. Þegar komið var á „Vellina“, var mikið áhyggjuefni, hve langt væri nú í vatn, en lækur rennur úr Djúpavatni mislangt eftir völlunum. Fór það eftir veðurfari, hvort hann þornaði upp, en þá þurfti að elta hann langt upp í fjall. Núna reyndist þó allt í lagi, lækurinn rann nið- ur vellina. Þegar búið var að tjalda og afmarka tjald- búðir, var liðið að kvöldmat. Þá tóku allir upp nestið sitt og nutu þess að borða. Nestið var oftast grautur, brauð með kæfu eða osti, harð- fiskur, soðið kjöt og mjólk. Síðan var farið að huga að varðeldinum, finna stað og eldsneyti. Aðrir fóru að sækja vatn í kakó og graut, og smávegis fyrir morgunþrifin. Nú var setzt við varðeldinn, sungið, hlegið og sagðar sögur og brandarar, en á eftir var drukkið kakó og borð- að kex. Tíminn leið hratt og mál að hvíla sig, því á morgun átti að fara í göngu. 16 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.