Faxi

Volume

Faxi - 01.05.2008, Page 17

Faxi - 01.05.2008, Page 17
Með sól í hjarta og söng á vörum við setjumst niður í grænni laut. I lágu kjarri við kveikjum eldinn, kakó hitum og eldum graut. Morgunninn rann upp, bjartur og fagur. Fánahylling, hafragrautur, tjaldskoðun og aðr- ir fastir liðir. Þá var kominn tími til að leggja af stað í gönguferðir. Þeir, sem fóru í styttri gönguna, gengu á K.eili, Trölladyngju og Eld- borg, en hún er gamall, rauður eldgígur. Mos- inn í gígnum var svo þykkur þá, að rnaður sökk djúpt niður, líkt og verið væri að vaða snjó. Eldborgin er aðeins um 70 fet á hæð. Á milli hennar og Trölladyngju er mikill jarðhiti, og víða gufar úr jörðinni. Þarna á jarðhitasvæð- inu var talsvert um svarta snigla, sem gátu orð- ið upp í 5-7 sentimetrar á lengd. Þeir, sem fóru í lengri gönguna, gengu með- íram Oddafelli og stefndu á Selsvelli. I leiðinni var Hverinn eini skoðaður, en hann hefur átt það til að hverfa og koma síðan aftur upp á allt öðrum stað. Eftir góða göngu komum við svo niður á Selsvelli. I bók Árna Ola, Strönd og Vogar, er eftirfar- andi lýsing doktors Bjarna Sæmundssonar á Selsvöllum: „Einn fallegasti staðurinn á Suðurkjálkanum, °g einn sá sem verðast er að sjá þar, eru Sels- vellir, vestan undir algrænni hlíðinni á Sels- vallaljalli, sem er miðhlutinn af Vesturháls- inum. Þeir ná milli hrauns og hlíðar 2!4 km, rennisléttir og vel grösugir. Tveir lækir úr hlíð- mni renna yfir vellina og hverfa svo í hraun- ið. Er þarna mjög kvöldfagurt í góðu veðri, iðjagræn hlíðin á aðra hönd, en opið útsýni til Hraunsels, Vatnsfells, Keilis, Driffells o.fl.“ Þorvaldur Thoroddsen var líka hrifinn af Selsvöllum, er hann kom þangað og gisti þar 1 tjaldi. Hann sagði, að þar væri fríðara land °§ byggilegra heldur en víða þar, sem mikil byggð er, nógar slægjur á völlunum og ágæt beit í hálsinum. Hann hélt, að þar mundu vel geta staðið 2-3 bæir. Þegar við vorum búin að hvíla okkur og nmra, héldum við áfram. Nú var farið yfir Núpshlíðarhálsinn og á Vigdísarvelli, en þar var áður búið, eða til ársins 1905, en þá hrundu öll hús eða stórskemmdust í jarðskjálfta. Sá, er Þá bjó á Vigdísarvöllum og var síðasti bóndinn Þar, hét Bjarni ívarsson. Flutti hann með fólk °g búfénað að Narfakoti í Innri-Njarðvík. Rak hann búsmalann þangað yfir hraun og vegleys- ur. Næst var stefnan tekin á Djúpavatn. Þar iengum við okkur fótabað, en vorum vöruð við að vaða ol' langt útí, því vatnið væri bæði kalt °g snardýpkaði. Þarna lukum við nestinu okk- ar, enda veitti ekki af að létta byrðarnar, því hópurinn var nú farinn að þreytast. , Nú var stefnan tekin meðfram Trölladyngju. Á leiðinni var Rauðihver skoðaður og síðan gengið niður á Höskuldarvelli, og þar með var hringnum lokað. Það var þreyttur en glað- ur hópur, sem skilaði sér í tjaldbúðir, eftir vel heppnaða gönguferð, og við tók bráðskemmti- legur varðeldur, sem stóð til miðnættis, enda þótt bálið væri aðeins ímyndað, því eldivið- urinn var uppurinn - en sólin sló rauðgullnum bjarma sínum á skátana og tjöldin. Enn logar sólin á Súlnatindi, og senn fer nóttin um dalsins kinn, og skuggar lengjast og skátinn þreytist, hann skríður sæll í pokann sinn. Og skáta dreymir í værðarvoðum um varðeld, kakó og nýjan dag. Af háum hrotum þá titra tjöldin í takti, einmitt, við þetta lag. Talað hafði verið um það um kvöldið, að yrði gott veður með morgninum, væri upplagt fyrir Selsvallafarana að bregða sér á Keili. Morg- unninn rann upp nteð lognblíðu og glamp- andi sól, svo veðrið gat ekki verið betra. Ekki fóru nú allir í Keilisgönguna. Sumir voru með harðsperrur eða hælsæri og vildu heldur safna kröftum fyrir heimferðina. Þeir sem fóru, tóku daginn snemma og lögðu upp eftir fánahyllingu og morgunmat. Tveir úr hópnum höfðu þó yfirgefið tjaldbúðirnar strax eftir fótaferð, af því að þeir þurftu að komast fyrri hluta dags til byggða. Nú þurfti að klöngrast yfir úfið hraunið. Það var alls ekki greiðfært að Keili. Enda þótt fjall- ið sé ekki ýkja hátt, eða aðeins 375 m, gat verið nokkurt puð að komast upp, því mikið er um skriður, og maður rennur iðulega hálft skref niður l'yrir hveil skref upp. Er upp á hátindinn var kornið, blasti við okk- ur skrautlegur kexpakki, með erlendri áprent- un. Hvernig í ósköpunum hafði þessi kexpakki komizt upp á tind Keilis óskemmdur og óveðr- aður? Svona gómsætt gráfíkjukex fékkst ekki i búðum á Islandi á stríðsárunum. Hafði máski stór fugl frá útlöndum borið hann hingað? En þegar pakkinn var opnaður, var ekkert kex í honum, aðeins lítill miði, sem á var skrif- að: Borðuðum úr pakkanum kl. 11 - Gunni Gerðu og Bötti, en það voru þessir tveir, sem höfðu þurft að flýta sér til byggða. Þeir skruppu þá í leiðinni á Keili til að sitja einir að þessu ófáanlega, gómsæta kexi. Piltamir eru kunnari nútímafólki sem Gunnar Eyjólfsson leikari og prófessor Þorbjöm Karlsson. En við nutum útsýnisins yfir Reykjanesskag- ann og skrifuðum í gestabókina, sem þama er geymd í vörðu, áður en við héldum niður aft- ur. Við komumst, án áfalla, í tjaldbúðimar. Þar beið okkar sætsúpa, sem kokkamir geymdu handa okkur. Við vomm hálf hissa á, hvað þeir ætluðu okkur mikið, því kornið var langt framyfir matartíma. En - hvaða bragð var þetta annars af súpunni? Olíubragð? Hvað hafði nú skeð? Og skýringin kom. Prímushausinn hafði stíflazt, og þegar þeir fóru að gera við hann, spýtti hann olíu beint í súpupottinn. Þessvegna fengum við nú svona stóran skammt af súpu. En súpunni voru gerð lítil skil, hún fékk bara að renna beint niður í hraunið, sem væntanlega væri talið mengunarslys nú. Nú var kominn tími til að taka sarnan dótið og halda heim. Við þrifum eftir okkur og grófum ruslið, en það var siður hjá okkur, skátunum, að ganga vel frá öllu og valda engum spjöllum. Nú var haldið af stað heim, eftir mjög góða og skemmtilega helgi, en nokkrir urðu þó eftir til að binda upp á hestana. Svo tóku hestasvein- arnir við, og eftir 1 'Æ tíma voru þeir búnir að ná Itópnum. Þegar við komum svo í Kúagerði, beið okkar bíll (eða bílar) til að koma okkur heim, og þangað komum við svo endurnærð eftir ógleymanlega útileguhelgi. Helga Kristinsdóttir FAXI 17

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.