Íslendingur - 18.12.1986, Qupperneq 16
sU’ncUuðuv
Gleðileg jól 1
Aðalgeir og Viðar hf. verður Aðalgeir Finnson hf.
Islendingur
biður
landsmönnum
árs og friðar
Nýlega var fyrirtækjasam-
steypunni Aðalgeir og Viðar
hf. og íspan hf. skipt upp, og í
framhaldi af því, hefur verið
stofnað hlutafélagið Aðalgeir
Finnsson, byggingarverktakar.
Hið nýja fyrirtæki yfirtekur
alla starfsemi sem Aðalgeir
og Viðar hf. hafði með hönd-
um, en engar breytingar
verða á rekstri eða skuld-
bindingum \egna verktaka-
starfseminnar.
Fyrirtækið er að hefja
byggingu á 17 íbúða fjölbýlis-
húsi að Melasíðu 5, en á því
svæði hefur fyrirtækið látið
hanna þrjú fjölbýlishús með
samtals 51 íbúð. Stjórn
Verkamannabústaða á Akur-
eyri hefur fest kaup á 12
íbúðum í fjölbýlishúsinu að
Melasíðu 5, og að sögn
Aðalgeirs Finnssonar, hefur
mikið verið spurt um þær
íbúðir sem lausar eru, en
óvissa um endanlegar láns-
fjárhæðir frá Húsnæðismála-
stofnun orðið til þess að engir
endanlegir samningar hafa
verið gerðir, þau mál væru
hins vegar að leysast um
þessar mundir, og sagðist
Aðalgeir búast við að nokkúr
fjörkippur kæmi í íbúða-
byggingar á Akureyri á vori
komanda.
Fram kom hjá Aðalgeir,
að í vetur yrðu aðalverkefni
fyrirtækisins viðhaldsverkefni
fyrir ýmsa aðila, auk þess
sem unnið yrði að smíði
innréttinga í fjölbýlishúsiðað
Melasíðu 5.
Auk framkvæmda við
ofannefnt fjölbýlishús, sagð-
ist Aðalgeir ráðgera að hefja
byggingu eins og tveggja
hæða raðhúss við Múlasíðu
komandi vor, og væri ekki
annað að sjá, af fyrirspurn-
um, en að von væri á bjártari
tíð fyrir byggingariðnaðinn á
Akureyri.
15%
gáfaðri?
Fyrir nokkru voru opnuð
tilboð á Húsavík í bygg-
ingu fyrir hið opinbera.
Öll voru tilboðin húsvísk
að uppruna, og öll voru
þau u.þ.b. 95% af kostn-
aðaráætlun hönnuða. Á
Akureyri hefur það hins
vegar verið lenska undan-
farið, að tilboð verktaka
séu 'lægst um 80% af
kostnaðarverði. í tilefni af
þessu varð verðandi hita-
veitustjóra akureyringa,
Frans Árnasyni, það að
orði, að nú hefði sannast
að húsvíkingar væru 15%
gáfaðri en akureyringar.
I þessu er allnokkur
sannleikur fólginn, í raun
er það ekki bæjarfélaginu
til góðs, að verktakar sjái
sig tilneydda til að bjóða
svo lágt til að hafa vinnu
fyrir fólk og vélar, enda
hefur dregið verulega úr
krafti akureyrskra verk-
taka vegna þessa, og jafn-
vel búist við að einhverjir
heltist úr lestinni.
Norðurlandskjördæmi eystra:
Listi sjálfstæðismanna samþykktur
Á fundi Kjördæmisráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í Norðurlandskjördæmi eystra, sem
haldinn var fyrir skömmu var gengið endan-
lega frá framboðslista flokksins í kjördæm-
inu við alþingiskosningar þær sem væntan-
lega verða 25. apríl nk.
Listan skipa:
1. Halldór Blöndal, alþingismaður,
Akureyri
2. Björn Dagbjartsson, alþingismaður,
Mývatnssveit
3. Tómas Ingi Olrich, menntaskólakennari,
Akureyri
4. Vigfús Jónsson, bóndi, S.-Þingeyjarsýslu
5. Margrét Kristinsdóttir, kennari,
Akureyri
6. Svavar Magnússon, framkv.stjóri,
Ólafsfirði
7. Heigi Þorsteinsson, framkv.stjóri,
Dalvík
8. Davíð Stefánsson, nemi, Akureyri
9. Birna Sigurbjörnsdóttir, hjúkrunarfr.,
Akureyri
10. Magnús Stefánsson, bóndi, Fagraskógi
11. Kristín Kjartansdóttir, húsmóðir,
Þórshöfn
12. Valdimar Kjartansson, útgerðarmaður,
Hauganesi
13. Helgi Ólafsson, rafvirki, Raufarhöfn
14. Gísli Jónsson, menntaskólakennari,
Akureyri
Formaður kjördæmisráðs, Sigurður
Hannesson, Akureyri, kynnti listann, og gaf
fundarmönnum kost á að segja álit sitt á
skipaninni.
Stefán Sigtryggsson, Akureyri, var eini
fundarmaðurinn sem sá ástæðu til að taka til
máls, en hann skýrði frá því, að hann hefði
gefið kost á sér til setu í 6. eða 7. sæti listans,
en Stefán varð í sjötta sæti í prófkjöri flokks-
ins sem haldið var 18. október s.l. með um
43% gildra atkvæða. Vakti Stefán athygli á
því að það virtist ekki duga akureyringi að
hafa slíkan stuðning meðal sjálfstæðismanna
til að hljóta eitt af síðustu aðalsætum listans.
í samtali við blaðið kom fram hjá
Stefáni, að með þessu hefði hann verið að
vekja athygli á þeim hrepparígssjónarmið-
um sem ráðið hefðu listaskipaninni, og þeirri
staðreynd, að þrátt fyrir að kjörfylgi Sjálf-
stæðisflokksins í kjördæminu væri um 65%
akureyrskt, þá væru ekki nema þrír akureyr-
ingar í aðalsætum listans. Kjördæmisráð
samþykkti listann með öllum greiddum
atkvæðum.
Prófkjör Sjálfstæðisilokksins í Norðurlandskjördæmi Eystra:
1. 2. 3. 4. 5.
Halldór Blöndal 654 154 64 34 13 949
Björn Dagbjartsson 156 482 (638) 120 54 37 849
Tómas Ingi Olrich 101 141 246 (488) 124 62 674
Vigfús Jónsson 60 101 183 132 (446) 90 536
Margrét Kristinsdóttir 41 66 149 180 131 567
Stefán Sigtryggsson 21 59 185 104 74 443
Birna Sigurbjörnsdóttir 10 25 82 76 79 272
Tryggvi Helgason 4 8 20 21 40 93
Hér birtast lokatölur í prófkjöri sjálfstæðismanna, sem fram fór hinn 18. s.l. Tölur í svigum
tákna samtölu atkvæða í listasæti.