Árblik - 01.05.1930, Blaðsíða 5

Árblik - 01.05.1930, Blaðsíða 5
ARBLIK 5 hingað yfir um fyrir mörgum ár- um — eins og þið svo nefnið. Nokkrir vinir lians tóku á móti honum og hann gladdist mjög af því, að þeir skyldu koma svona aila leib niður til jarðar að vísa honum veginn þangað sem hann átti að fara. jaað var svið ná- lægt jörðinni og ekki hátt uppi, og eins og jeg sagði var hann mjög ánægður. {->vj aö þar hlotn- aðst honum næði eftir mikið strit og armæðu og stríð sitt við fá- tæktina og einnig fjekk hann þar nægan tíma til að fara og kanna ali, sem honum var þar nýtt og fagurt að sjá. Honum var þetta sannarlegt Himnaríki og allir voru elskulegir við hann og hann ham- ingjusamur hjá þeim. Einhvern dag — svo jeg tali á ykkar máli — kom hár andi frá æðra sviði eftir götunni að heimili skósmiðsins og gekk inn. Hann var þá að lesa í bók, sem hann hafði fundið í húsinu þeg- ar hann kom þangað og honum var sagt að þar ætti bústaður hans að vera. Sá er kom ávarp- aði hann jarðneska nafninu hans — jeg man ekki hvað það var — og skósmiðuriun stóð upp. »Hvað lest þú, vinur minn«, mælti sá er kom. »það er nú ekki mikið, sem mig getur varðað . það er rjett svo að jeg fylgist með í því. það er auðsjáanlega samið handa þeim er búa á æðri sviðum en þessu.* »Og í hverju skyni var bók þessi samin, spurði sá enn, er kom*. »Hún segir frá háum sviðum og mikluni fyrii tækjum. Um að koma skipulagi á stóran hóp af konum og körlum á sviðunum fyrir ofan í þjónustu Föðurins. þar eru leiðbeiningar fyrir þá, sem eiga að stjórna öllu þessu og þess vegna varðar bókin mig ekki sem stendur. En ef til vill hefi jeg einhvern tíma gagn af henni þegar að mjög langur tími er liðinn. Hvernig hún komst hingað veit jeg ekkert um.< þá tók hinn hái Andi bókina, ljet hana aftur og fjekk skósmiðn- uin hana þegjandi. En er hinn tók við henni roðnaði hann og varð utan við sig. því að þarna á kápur.ni skinu hvítir og rauðir gimsteinar settir þannig, að þar mátti lesa nafn hans. »Hvað er þetta,c sagði hann, »eftir þessu hef jeg ekki tekið áður«. »Og þó er þetta nafnið þitt eins og þú sjerð og bókin er samin til þess að fræða þig. því vita skalt þú, vinur minn, að þetta svið er þjer að eins ætlað til stuítrar hvíldar. Nú ert þú búinn að njóta hennar og verður að byrja á starfi þínu. Og það er eigi hjer heldur á hi..u æðra sviði, sem bók þessi segir frá«,

x

Árblik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árblik
https://timarit.is/publication/680

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.