Árbók 1931 - 1932 - 01.01.1931, Page 51
49
þessarar hátíðar liafði einn félagsmaður ort hvatn-
ingardrápu allmikla til verzlunarmanna og annar
félagsmaður samið lag við, en söngflokkurinn flutti
hvorttveggja til hinna hrifnæmu áheyranda. Söng-
stjóri var þá Páll Halldórsson, kennari (ekki Stýri-
mannaskólans), sem tekið hafði við stjórn flokks-
ins þá um haustið.
Sama vetur söng flokkurinn nokkur lög i gamla
útvarpið. Eg geri ekki ráð fyrir, að Rcykvíking-
ar, sem vanir eru góðum karlakórssöng, hafi orðið
mjög snortnir, en lielzt er eg ó því, að heimasæt-
urnar úti um sveilir landsins liafi hugsað hlýtt til
okkar á eftir.
Þennan vetur var sungið á skemmtunum hjá
ýmsum félögum hér í hæ, enda var þá mikill kraft-
ur í flokknum, sem óefað ber að færa söngstjóran-
um til tekna að miklu leyti.
Um þetta leyti eða 13. jan. 1929 tók flokkurinn
rögg á sig og efndi til söngskemmtunar af eigin
ramleik, ekki þó í Rcykjavík, heldur var leitað
suður með sjó, og hafnað í Keflavík. Var ekki laust
við að menn væru hálf-skjálfraddaðir til að byrja
með og heimtuðu sumir stríðsöl, til þess að taka
úr sér skjálftann, en söngstjórinn aftók það með
öllu. Söngurinn tókst vel og voru Keflvíkingar
mjög ánægðir og þakklátir okkur fyrir komuna.
Auðvitað var dans á eftir og söngniennirnir ])á
mjög eftirsóttir lijá blómarósum Keflavíkur, því
„allar vildu meyjar með Ingólfi ganga.“
Næsta sporið var stigið til Akraness. Þangað fór
flokkurinn 11. maí 1929 og söng þar fyrir húsfylli
4