Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.11.1930, Side 5

Bræðrabandið - 01.11.1930, Side 5
BRÆÐRABANDIÐ 85 til þess að öll systkinin geti haft gagn af henni. „Morgenvagten" framsetur einn ritn- ingarstað fyrir livern dag í árinu, og eins og nafn hennar bendir til, ber að lesa þennan ritningarstað um leið og risið er úr rekkju að morgni dags. Reynslan hefir sýnt oss, að þetta veitir ómetanlegan styrk til að sigra sjerhverja freistingu, er kann að mæta oss þann daginn, og hjálp í öllum okkar daglegu störfum. Tilgangurinn hjá hinum k-æru systkinum okkar um alla jörðina er, að komast til fullkominnar hlýðni við hinn mikla, kæra Föður á himnum, því að með þvi heiðrast Faðirinn og Frelsar- inn, sem vjer erum vitni fyrir hjer á jörðu. Og einmitt með því er lokað munni óvinarins, Satans, sem ávalt ákærir okkur, ef við gjörum eitthvert glappaskot. Sjá Opb. 12, 10. 11. En inunið eftir þvf, systkini mín, að við verð- um öll „að vinna sigur í krafti Krists og orðs þess, sem við vitnum um.“ Leyfið mjer að spyrja ykkur í bróð- erni: „Er það ekki nauðsynlegt að þekkja það Orð, sem við eigum að vitna um, og sem á að gefa okkur kraft til að sigra erki-óvininn?“ — Jú, vissulega! Þess vegna er það sjerstaklega tvent, sem vinur vor á himnum hefir gefið oss, til þess að við getum lært að þekkja hans orð; en það er: 1. Hvíldardagsskólinn 2. „Morgenvagten". „Morgenvagten" sýnir okkur ekki ein- ungis þann ritningarstað, sem á að vera inngangur að morgunbæn vorri þann og þann daginn, hún gefur okkur einnig leiðbeiningu í að lesa Biblíuna frá ein- um enda til annars á einu ári. Hún bendir okkur á, hversu marga kapitula okkur ber að lesa hvern daginn, til þess að þetta geti orðið. Að lesa hvern ritningarstað, sem til- heyrir hverjum deginum, samkvæmt „Morgenvagten", er þó það nauðsyn- legasta, og ætti því sjerhvert heimili eða hver einasti aðventisti að hafa „Morgen- vagten“ og fylgja henni nákvæmlega. Aðrar bækur. Jafnframt þvi að lesa Biblíuna er ágætt að lesa aðrar góðar og uppbyggjandi bækur. Meistari vor á himnum hefir gefið oss fjölda af ágætum bókum, og þá sjerstaklega gegn um anda spádóms- ins. Þess vegna höfum við fengið frá bræðrum vorum í aðalkonferensinum lestrarnámskeið svo kölluð. Þessi lestr- arnámskeið eru ekki nein þvingun eða ófrávikjanlegar fyrirskipanir, heldur að- eins bróðurlegar leiðbeiningar i frjálsum lestri, til þess að geta setn fyrst komist til fullkomnunar i Jesú Kristi. Sjá Kól. 1, 28. Lestrarnámskeiðin eru mismunandi fyrir hin mismunandi lönd, og geta gripið yfir eina eða fleiri bækur. Við höfum ekki margar bækur til að velja um hjer á íslandi, en við höfum samt minsta kosti eina, sem systkini vor um alla jörðina lesa aftur og aftur. En þessi bók er „Deilan Mikla“: Þetta er skínandi góð bók, hvað alt innihald snertir; og ætti að vera til á sjerhverju heimili og vera lesin af hverj- um einasta aðventista. En þú segir ef til vill: „Já, þá bók hefi jeg lesiö fyrir löngu!" Já, gott og vel, vinur minn. En það gjörir ekkert til. Það eru margir, meðal vor, sem hafa lesið hana tvisvar sinnum, þrisvar sinnum, já, ef til vill suma kafla hennar meira en fimm sinnum. En þessir segja: „Jeg klára aldrei að lesa þá bók. Alt af finn jeg eitthvað nýtt, sem jeg hefi ekki fyr gefiö gaum. . .“ Það er sjerstaklega af eftirfarandi

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.