Nýi tíminn - 01.02.1936, Page 1

Nýi tíminn - 01.02.1936, Page 1
Aldarminning Jakobs H á I f d a n a rso n a r Frá frelsisbaráttu íslenzkrar alþýðu Jakob Hálídanarson 1 dag er hundrað ára afmæli Jakobs Hálfdánarsonar, föður samvinnunnar á íslandi. Nýi Tím- inn hefir tileinkað þetta tölublað sitt minningu hans og mun gefa lesendum sínum yfirlit yfir lífs- starf hans og baráttu eftir því, sem rúm leyfir. Jakob var sprottinn upp úr þeim jarðvegi íslenzks þjóðlífs, sem kaldast og harðast hefir blásið um: Faðir hans, Hálfdán Jóakimsson, var leiguliði og bjó í Brenniási, heiðarbýli efst á Fljóts- heiði, Bárðardalsmegin. Vonbjart- ur hófHálfdán búskapsinn á þessu eyðikoti, byggði hann upp húsin og gerði miklar bætur á jörðinni, eftir því sem kraftar leyfðu, en fyrir ofbeldi og yfirgang um- boðsmanns þjóðjarða í sýslunni, varð ‘Hálfdán að hrökklast burt af kotinu, eftir að hafa fórnað kröftum sínum og fjölskyldu sinnar um tuttugu ára skeið því til endurreisnar. Þetta grimma hlutskifti leigubóndans, að láta hann þræla sjálfum sér og fjöl- skyldu sinni út í marga áratugi, reka hann síðan burt af jörðinni og sölsa þannig ávextina af striti hans endurgjaldslaust undir sig, fékk mjög á Jakob. Enda hafði það orðið fjölskyldu hans dýr- keypt; Jakob var hið eina barn Hálfdánar (af alls 11), sem náði fullum þroska, hin dóu á bernsku aldri; þoldu ekki aðbúðina í þessum „Sumarhúsum" Hálfdáns Jóakimssonar, féllu í sjálfstæðis- baráttu hans. Ríkti æ síðan í huga Jakobs reiði og hatur til þess leiguliðafyrirkomulags, sem hafði bakað fjölskyldu hans á- þján og ástvinamissi. Um þessar mundir, var mikið talað um Brasilíufarir. Vonsvikinn og nap- ur í huga fór Jakob að hugsa til að flytja af landi burt, en þó varð, fyrir einhverja tilviljun, ekki úr því. Forsjónin hafði ætl- að honum önnur og þýðingar- meiri störf. Reynsla sú og kynni, sem Jakob hafði af lífsbaráttu hins fátæka, íslenzka leiguliða mótaði lífsviðhorf hans og hug- sjónir, vígði hann til æfilangrar þjónustu í baráttu hinna féflettu, kúguðu og réttlausu stéttar- bræðra hans. Jakob segir frá því í æfisögu sinni, að hann átti enga jafnaldra til þess að leika sér við og muni það hafa átt sinn þátt í því, að hugur hans beindist snemma að hinum alvarlegri efn- um. Enda var hann ekki nema 19 ára er hann gekkst fyrir stofnun sauðfjárkynbótabús. Hjá Jakobi bar snemma á miklum á- huga fyrir öllum samtökum og félagsskap. „Las ég oft um fé- lagsskap og fannst hann vera al- máttugur ,...“ segir Jakob í æfisögu sinni sinni. Þetta var kenning hans. En það varð meira en kenning hans; mun ekki auð- fundið fegurra dæmi, þar sem kenning og athöfn fylgjast að, en í æfiferli hans. Trú Jakobs á fé- lagsskap og samtök var næsta merkileg, svo mjög sem félags- þroski manna var skammt á veg kominn á þeim tímum, en orka sú, sem honum tókst að leysa úr læðingi og nýta til hagsbóta fyr- ir almenning í Þingeyjarsýslu, sýndi eftirminnilega að hún var á rökuni byggð. Jakob dó á Mýrarkoti á Tjör- nesi 30. janúar 1919 hjá Hálf- dáni syni sínum. Var hann þá nær 83 ára og mjög slitinn og fyrirgengilegur. Einkum voru mikil brögð að minnisleysi hans, þó mundi hann jafnan bezt það er fyrir lengstu var hjá liðið. Öll þau mörgu málefni, er Jakob starfaði að heima í sýslu, bundu hann svo, að hann fór lítið í lang- ferðir, enda fóru efni hans, þau er hann átti, beint og óbeint í þarfir þess málefnis, er hann setti sjálfum sér og fjölskyldu sinni miklu ofar. Jakob sóttist aldrei eftir metorðum, þótt hann héldi fast fram þeim málum er honum var trúað fyrir. Framkvæmdir Kaupfélags Þingeyinga hafði hann með höndum í 25 ár og var þó jafn fátækur og þá hann fyrst leit dagsins ljós í Brenni- ási 1836. Leiðin frá Brenniási í Mýrar- kot er stutt, — mjög stutt. Ja- kob hefir sýnt okkur, að það er hægt að fá sig fullþreyttan á svo stuttri leið. Fast hefir verið stig- ið niður á stundum og mun þeim veitast það erfitt, ef einhverjir kynnu að hafa hug á því, að af- má þau hin djúpU spor er Jakob hefir látið eftir sig í Þingeyjar- sýslu. Framhald mun verði á þeirri hagsmunabaráttu, sem Ja- kob sýndi og sannaði að var hin eina rétta leið. Nýi Tíminn birtir hér grein úr „Óðni“ 1. tbl. XIII. árg. 1917 eftir hinn þjóðkunna merkis- mann Hermann Jónasson alþm. og skólastj. á Hólum, var hann samtíðarmaður Jakobs og hafði af honum mjög náin kynni. Er greinin svo heimildarík um æfi Jakobs, að ekki verður frekar á kosið. Hann er fæddur 5. febr. 1836 í Brenniási, sem er heióarbýli og og telst til Bárðardals í Suður- Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans vorii: Hálfdán Jóakimsson og Að- albjörg Sigurðardóttir. Voru þau af ráðsettu. atorkusömu og val- inkunuu bændafólki þar í sýslu komin. Dvaldi Jakob þar hjá for- eldrum sínum til 1856. Þá flutt- ist hann um vorið að Grímsstöð- um við Mývatn með meirihluta bús föður síns, og bjó þar með ráðskonu eitt ár. Vorið 1857 fluftist svo faðir hans alfarinn á jörðina. En vorið 1861 byrjaði Jakob sjólfur búskap á henni. Snemma kom það í ljós að Jakob var mjög vel gefinn, og að því skapi bókhneigður. Átti því að Iáta hann ganjp Skóla- f i

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.