Nýi tíminn - 01.02.1936, Page 2
2
N Y I T í M I N N
veginn og byrjaði hann á latínu-
námi. En þótt hann væri mjög
bókhneigður, 'stefndi hugur hans
þó enn frekar út í starfslífið. Þeg-
ar Jakob var þrettán ára, tók
hann því ráðin af foreldrum sín-
nm'og kennara og hætti náminu.
Virtist honum latínunámið lítt
myndi glæða hjartfólgnustu hug-
sjónir sínar. Af sauðfénu hafði
hann þegar mikið yndi, og sá
vel og skyldi gagnið af því; enda
var hið mesta kostaland í Brenni-
ási. En fyrir Jakobi vöktu mikið
fegurri og arðmeiri sauðfjárhjarð-
ir en þær sem hann átti að venj-
ast. Enn fremur mikið betur rækt-
að land til fóðurframleiðslu, og
óþrotlegar kynbótatilraunir bú-
þeningsins. Að sluðla að þessu
virtistist honum verkefni, er sér
myndi verða hugðnæmara en
embættisrekstur. Eftir tillögum
Jakobs stofnuðu svo. sjö(?) bænd-
ur í Bárðardal sauðfjárkynbóta-
bú vorið 1855. Er það híð fyrsta
þess kyns hér á landi. Sýnir
þetta bezt'framtakið og áhugann
hjá 19 ára pilti, og ekki sízt
þegar þess er gætt, á hvaða tím-
um þetta var. í þessu augnamiði
var þá reist myndarlegt fjárhús
með hlöðu við á Arndisarstöðum
í Bárðardal. Eftir 5 ár leystist
félagið þó aftur upp, fyrir þá sök,
að flestir meðlimir þess fluttust
burtu í ýmsar áttir, en mestu
skifti þó, að Jakob var þá farinn
í aðra sveit. Félagið barþó nokk-
urn árangui, einkum að því er
vakningu snerti. Og við þetta
félag miðaði sig að sumu leyti
„Fjárræktarfélag Suður-Þingey-
inga, er stofnað var á Halldórs-
stöðum í Reykiadal árið 1896, og
var Jakob einn aðalfrumkvöðull
að.
Jakob Hálfdanarson var mjög
hneigður fyrir trésmíði. Á ung-
lingsaldri stundaði hann lítið eitt
nám í þeírri iðn, hjá föðurbróður
sínum Jóni dbrm. Jóakimssyni
á Þverá í Laxárdal. Rak hann
svo þá atvinnu ásamt bú-
skapnum fram á fimtugsaldur.
Einnig lærði hann á yngri árum
sínum að stýra plógi, sem mjög
var þó fágætt á þeim tímum-
Alla sína æfi hefir Jakob haft
hinn mesta áhuga á öllum þarf-
legum félagsmálum. Auk þess
sem áður er sagt, var hann aðal-
forgöngumaður þess, að stofna
lestrarfélag í Bárðardal, og þá
innan við tvítugt. Einnig var það
mest fyrii hans forgöngu, að
stofnað var lestrarfélag í Mývatns-
sveit árið 1858, og mun það fé-
lag vera bókaauðgast af lestrar-
félögum til sveita hér á landi.
J. H. var og mikið riðinn við
þann félagsskap er stofnaður var
í Þingeyjarsýslu veturinn 1859—
1860, og stefndi að fólksflutningi
til Brasilíu. Lagði hann síðan
allmikinn hug á að flytjast af
landi burt um næstu 7 ára skeið_
En áhrifírmest hefir það reynzt
út á við, að J. H. varð aðalhvata-
maður að stofnun „Ivaupfélags
Þingeyinga“. Vorið 1881 bauð
hann bændum í kringliggjandi
sveitum, að annast sauðasölu til
Skotlands. SYo var það að til-
hlutun sýslunefndar á fundi hinn
29. apríl 1881, að hann tók að
sér þennan starfa. Enga
vitneskju hafði Jakob þá
fengið, hvorki um ensk né dönsk
kaupfélög. Allt fyrir það tókst
þessi byrjunartilraun ágætlega.
Skozkur kaupmaður, D. R. Slim-
on, keypti fyrir tilhlutun Jakobs
2000 fjár. Borgaði hann það að
nokkru með ódýrum nauðsynja-
vörum, en afganginn með 32000
krónum í peningum. Jakob boð-
aði svo til almenns fundar þá um
haustið, er haldinn var að Grenj-
aðarstað þann 26. sept. Var á
þeim fundi stofnað hið fyrsta
kaupfélag hér á landi. Á fundi
að Þverá i Laxárdal, þann 20.
febrúar 1882, voru samþykkt lög
félagsins og stjórn kosin. Jakob
var þá falin framkvæmd á kaup-
stjórn erlendis, húsbygging á
Húsavík og afhending á öllum
vörurn félagsins og reiknings-
færsla þess. Var þetta verk afar-
umfangsmikið og erfitt og fárra
meðfæri að leysa það af hendi,
einkum þegar utn byrjun var að
ræða.
Þegar hér var komið mátti svo
að orði kveða, að Jakob væri
sjálfur alsetztur að á Húsavík,
])ótt kona hans, ásamt 6 börn-
um þeirra, væri við bú á Gríms-
stöðum til vorsins 1884. En þá
fluttist hún alfarin til Húsavíkur.
Jakob hafði þá byggt sér þar
íbúðarhús og félagið var kornið
vel á laggirnar. Kona hans var
Petrína Kristín dóttir Péturs óð-
alsbónda Jónssonar í Reykjahlíð.
Þau giftust 2. júlí 1860, en hún
deyði 19. nóv. 1707. Elzt barna
þeirra var Guðrún, er gift var
Friðriki bónda Guömundssyni frá
Grímsstöðum á Hólsfjöllum. Guð-
rún deyði ung, en lét eftir sig
eina dóttur, Laufey að nafni, sem
nú er gift hollenzkum manni, sem
Obermann heitir og er landstjóri
Hollendinga á Sumatra. Þá Jón
Ármann, áður kaupmann á Húsa-
vík, nú í Ameríku. Þá Aðalbjörg
kona Gísla læknis Péfurssonar í
Eyrardakkalæknisumdæmi. Þá
Hálfdán búandi á Tjörnnesi. Her-
dís bókhaldari og Jakobína kenn-
ari.
Borgarabréf leysti Jakob íjúní
1882 og rak smáverzlun ásamt
kaupfélagsstörfum sínum. Er
sennilegt að sá kaupskapur hafi
verið frumspor að söludeildum
kaupfélaganna.
Samkvæmt fögum „Kaupfélags
Þingeyinga“ var erindreki þess
eigi ráðinn nema til eins árs í
senn. En ætíð samdist svo, að
Jakob lét eigi af þeim starfa fyr
en vorið 1906. Hafði hann þá
unnið í fullan aldarfjórðung að
mestu leyti í þarfir almennings,
eða frá 29. apríl 1881 sem áður
segir.
Árið 1889 var stofnað jarða-
bótafélag á Húsavík, sem er þar
starfandi enn. Hefur Jakob frá
byrjun verið formaður þess. Þór-
hallur biskup Bjarnason hefir
sagt mér, að þegar hann, sem
formaður Búnaðarfél. Isl. kom á
Húsavík 1904 haíi þetta félag
Húavíkinga verið mjög blómlegt,
sem hann þakkaði Jakobi aðal-
lega. Höfðu þá um 40—50 af þorps-
búum eitthvað af ræktuðum gras-
nytjum og áttu meira eða minna
af skepnum. Annálaði hann mik-
ið þá vinnu, sem Jakob hefði
lagt í að bókfæra með frábærri
mákvæmni öll störf félagsmanna
og arð og afnot af ræktuðu landi
og skepnum þeirra. S>rnir þetta
ljóst starsvilja, áhuga og ósér-
þlægni Jakobs, þótt á gamals-
aldri væri.
í sýslunefnd fyrir Skútustaða-
hrepp og Húsavíkurhrepp hefir
Jakob setið til samans í 35 ár,
og hefir ætíð reynst farsæll og
tillögugóður. Þá var hann 5 ár í
stjórnarnefnd búnaðarskólans á
Hólum í Hjaltadal.
Afgreiðslu „Sameinaða gufu-
skipafélagsins“ hefir hann haft
síðan 1885.
Eftir eldgosið á Mývatnsöræf-
um 1875 þurfti að leggja nýjan
veg yfir öræfin og varða hann.
Fól amtmaður Jakobi að standa
fyrir þeim starfa, þótt eigi hefði
hann áður stundað vegalagningu.
Stóð þetta yfir í þrjú vor, eða
árin 1878—1880. Var það fyrir
tilstilli Jakobs, aö þá var byggt
sæluhús úr steini við Jökulsá á
Fjöllum. Kostaði það um 2800
kr. Var Jakobi einnig falin um-
sjón með verkinu. Á því húsi
var hin mesta nauðsyn.
Jakob varð fyrstur manna til
að halda úti skrifuðum sveita-
blöðum hér á landi. Stofnaði
hann þau I870, og hafa þau ver-
ið stöðugt síðan í Mývatnssveit.
Sumarið 1874 mætti J. H. á Þing-
vallafundi samkvæmt kostningu
héraðsbúa. Sat hann bæði þar og
í Reykjavík hátíðahöld konungs.
Eitt hið síðasta, er Jakob hef-
ir haft á hendi, er þátttaka hans
í stofnun timbursmíðaverkstæði
á Húsavík, er gengur fyrir vatni.
Var það sett á stofn 1904. Við
störf á verkstæðinu hefir Jakob
mist þrjá fmgur hægri handar.
Störf þau, sem J. H. hefir unn-
ið að og leyst af hendi með
sæmd, eru því mörg og margvís-
leg. Hver gagnsemdarmaður hann
heíir reynst, má þakka hans
mikla framfaraáhuga, félagslyndi,
hreinskilni og ósérplægni. Hann
hefir einnig haft mjög fjölhæfar
gáfur og er víðlesinn. Mestu
skiftir þó, að Jakob hefir ætíð
verið svo valinkunnur sæmdar-
maður í hvívetna, að allir hafa
borið fylsta traust til hans. Rögn-
valdur byggingameistari Ólafs-
son minnist hans í bréfi til mín
árið 1914 með þessum orðum:
„Ég sá J. H. fyrst, að mig minn-
ir, haustið 1905. Var hann þá á
ferð á ísafirði. Mér leist hann
þegar vel; mikill og karlmann-
legur, sviphreinn og því likur, að
hann myndi áræðinn en þó var-
færinn. Hann er þannig gerður
hann gleymist varla þeim, sem
einu sinni hafa haft kynni af
honum- Virtist mér minningunni
fylgja meiri hlýja en á sér stað
um flesta eftir svipaða kynn-
ingu“.
tlermann Jönasson.
mmmmmmmmmmxmmm
88
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
Vinnufatagerð
íslandsh.f.
R e y k j a v í k
■
■
allar tegundir
vinnufatnaðar
fyrir fullorðna,
unglinga, börn
framleiðir:
***&?<&
Hentugustu fötin til leika og nta-fa.
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
83
838383838383838383838383838383838383838383838383838383