Bræðrabandið - 01.09.1935, Blaðsíða 7

Bræðrabandið - 01.09.1935, Blaðsíða 7
BRÆÐRABANDIÐ 47 Tvær systur i Vestmannaeyjum — Margrét og Sigrún Guðmundsdætur — hafa arðið fyrir þeirri miklu sorg að missa sína dótturina hvor nú ný- lega. Margrét er gift Guðsteini Þor- björnssyni formanni, og Sigrún er gifl Guðmundi Guðmundssyni mál- ara. Bæði börnin fengu soghóstann og af afleiðingum hans létu þau líf- ið. Dóttir Guðsteins hét Svanhvít Kristrós og varð rúmlega 4 ára gömul. Dóttir Guðmundar, Hrefna Guðrún, var aðeins 5 vikna gömul. Þær voru báðar jarðaðar samtímis hinn 22. ágúst og fór athöfnin fram frá kirkju vorri þar, og fjöldi manna fylgdi þessum tveimur ungu börnum til síðasta hvílurúmsins þeirra hér niðri. En hið dýrðlega ljós frá Guðs orði birti okkur öll- um, sem viðstödd vorum, að innan skainms — á upprisudeginum — skuli þessar tvær mæður fá börn sín aftur í faðminn, og sá móður- fögnuður, er þær enn ekki hafa reynt, muni þá fylla lijörtu þeirra. O. Frenning. Raunir kristniboða vorra. Sennilega lnigsa sér of marg- ir líf kristniboðanna eins og fall- egt æfintýri. Menn halda kann- ske, að það að ferðast niður til hitabeltislandanna og til baka aftur liljóti að vera hreinasta skemmtiferð. Og þarna úti á starfssvæðinu lifa þeir, lmgsa menn sér, eins og á ódáinsakri, þar sem þeir geti etið bina inn- dælustu ávexti, bafi ávallt ynd- islega blýtt veður og geti ferðast um í frjósamri og fagurri náttúru. Satt er það, að þar eru góðir ávextir og fögur náttúra, og ferðirnar til og frá kristniboðs- svæðinu geta verið skemmtileg- ar, en þetta er aðeins aukaatriði í lífi krisniboðans. Þeim, sem hugsar sér, að það hljóti að vera óblandin skemmtun að lifa lífi kristniboðans, skjátlast stór- lega. Kæmum við út á kristni- boðssvæðin, niundum við kom- ast að raun um, að öll róman- líska og allur æfintýragljái byrfi fljótlega. Hlutskipti kristniboðanna er víst oftast allt annað en jjægilegt. Þeir eru i liættu staddir fyrir skæðum sjúkdómum og eitruð- um slöngum og mæta mörgum bættum. Þeir eru ofl aleinir úti á starfssvæðinu, margar, marg- ar mílur burtu frá ástvinum sin- um. Venjulega liða margar vik- ur milli þess að þeir fái bréf frá heimalandinu. Verði þeir veikir, fái tannpínu eða aðrar þrautir, verða þeir í einveru sinni að reyna að bjálpa sér sjálfir eftir því sem þeir geta. Læknir eða spítali er ef til vill bálfs mán- aðar til þriggja vikna leið í burtu frá þeim.

x

Bræðrabandið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.