Bræðrabandið - 01.09.1935, Blaðsíða 8
48
BRÆÐRABANDIÐ
Seni dæmi um þær raunir,
sem kristniboðar mæta, skulum
við í sem stj'tzu máli skýra frá
eftirfarandi sorglega atburði, er
átti sér stað fyrir stuttu síðan.
Bróðir og systir Tranborg
starfa í Sierra Leone, Yestur-
Afríku. Á seinni árum hafa þau
starfað lengra inni í landinu.
Br. Tranborg fór fyrst einn
þangað úl, en síðan kom fjöl-
skyldan, str. Tranborg og tvö
börn, nokkru seinna, til að vera
hjá honum um tima. Einn dag
var litli, þriggja ára drengurinn
þcirra, Eiríkur, úti að leika sér.
Um kveldverðar-leytið kom
liann hlaupandi inn til mömmu
sinnar, liélt um magann og
sagði: „Mamma, mér er illt í
maganum".
Hann fékk lirátt liáan sótl-
hita, og með því að þau voru
útilokuð frá að geta fengið
skjóta læknishjálp, reyndu þau
að gera fyrir bann allt, sem
kringumstæðurnar f rekast
leyfðu. Um miðdagsleytið næsta
dag var litli sonur þcirra orðinn
svo veikur, að br. Tranborg sá
ekki að bann gæti annað gert
en að fara hina 80 km löngu
lcið eftir lækni og skilja konu
sína eftir eina hjá börnunum.
Einni stundu eftir að bróðir
okkar var lagður af stað i ferð-
ina, andaðist litli drengurinn.
Við getum varla gert okkur
fulla grein fvrir því, hve erfitt
þetta var fyrir Karen Tranborg,
einmana, sem hún var, að verða
að veita litla drengnum sínum
náhjargirnar þarna úti í villi-
kjarri Afríku langt burtu frá
vinum og ættingjum, eins og
það líka var mikil sorg fyrir
Ijr. Tranborg, er liann um
kvöldið kom aftur með læknir-
inn með sér, að komast að raun
um, að Eiríkur litli var ekki
lengur lifs. Þetta skeði 5. apríl
1935.
Daginn eftir urðu þau að
jarða hann. Br. Tranborg varð
sjálfur að smiða litlu kistuna,
sem litli sonur þeirra var lagð-
ur i í síðustu náttklæðunum
sínum, er str. Tranborg varð
sjálf að sauina handa honum.
Þctta befur sjálfsagt ekki verið
létt verk fyrir þessa kæru for-
eldra.
Við samhryggjumst br. og
str. Tranborg í sorg þeirra og
biðjum þess, að Guð megi vera
hjálpari þeirra, styrkur og
huggun. Við vitum, að þau fá að
mæta litla Eiriki sínum aftur
á morgni upprisunnar.
Minnumst kristniboða vorra
í bænum vorum.
P. fí. N.
Ritstj.: O. Frenning.
Ilerbertsprent, liankastræti 3.