17. júní - 01.11.1923, Page 3

17. júní - 01.11.1923, Page 3
17. JUNI 75 hafa verið mjög misskilin á Islandi, en varla gefcur hjá því farið, að menn sjái einhvernfcíma, hversu mikla vík hann reri á Danastjórn, með því að fá til- boð um þær tilslakanir, sem fólgnar voru i frumvarpi hans. Valtýr braut ísinn á Hægri stjórninni, og það hefur auðvitað verið honum fagnaðarefni, þegar í stað hennar kom frjálslynd stjórn, sem veitti meira en hann fjekk framíkomið. — Dr. Valty'r fjell í Vest- mannaeyjum 1902 og safc því ekki á aukaþinginu það ár, en kjörbilið 1903 — 1907 var hann, ásamt Birni Kristjáns- syni, þingmaður Gullbi'ingu og Kjósar- sýslu; síðast var hann þingmaður Seyð- isfjarðar kaupstaðar 1911—13. Valtýr var jafnan hinn nýfcasfci þingmaður og ljet fjölda mála til sin taka; munu störf hans í opinberum málum verða taliu þung á metunum, þegar að því kemur, að menn líta á þau án misskilnings og hleypidóma. — Valtýr mun hafa tekið sjer nærri rangláta dóma og hatur, sem hann hefur orðið fyrir af ýmsum lönd- um sínum á síðari tímum. Vegna liinna miklu afskifta af pólitík, liafa vísindastörf Valtýs orðið minni en ella mundi, og menn gerðu sjer vonir um, eftir hinni ágætu byrjun. Bó hef- ur hann samið ýmsar rifcgerðir stærri og smærri, vísindalegs efnis. A árun- um 1895—1917 gaf hann úfc tímaritið »Eimreiðina«, er efiaust má telja með bestu íslensku timaritum á síðari ára- tugum. Um aldamófcin 1900 samdi hann bókina >Om Islands kulfcur ved aar- hundredskiftet 1900« og hefur hún hlot- ið einróma lof. Nú, síðan Valtýr liætti þingmensku, hefúr hann aífcur tekið til vísindastarfa, og í fyrra kom út eftir hann bók um málfræði íslenskrar tungu nú á dögum. Bók þessi gerir mjög ýtarlega grein fyrir beygingum og orð- myndum nútiðarmálsins, og hefur að geyma margar skarplegar athuganir. Nú nýlega he’fur V. Gf. þýfcfc á dönsku sögur Rannveigar eftir Einar H. Kvar- an. — Árið 1920 varð V. G. prófessor við Khafnarháskóla í íslensku máli og bók- mentum, hið fyrra embætti hans var lagt niður. V. G. kvæntist 1889 Önnu systur Jóhannesar, nú bæjarfógeta í Reykja- vík, hún andaðist 1903 eftir langfc heilsuleysi. Valtýr er góður lieim að sækja og gestrisinn að íslenskum sið. Vinum sínum er hann hinn besti og tryggasfci. og svo mun um marga, sem einusinni hafa verið vinir Valtýs, að þeim verð- ur ekki >sama um hann«, þótfc eitthvað slettist upp á vinskapinn. I umtali um mótstöðumeun sína er hann mjög rjefct- dæmur, enda er hann manna rólynd- astur, þótt hann standi í hörðum deil- um. Meðan Valtýr fjekst við pólitík, var það sögn manna í kjördæmum hans. að á þingmálafundum sæisfc ekkiannað en að honum væri alveg sama um árásir, sem hann varð fyrir, þótt ærið harðar væru. Prófessor Valtýr Guðmundsson verð- ur 64 ára 11. mars í vetur. Vjer ósk- um honum góðra og langra lifdaga. B.

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.