17. júní - 01.11.1923, Blaðsíða 9

17. júní - 01.11.1923, Blaðsíða 9
17. JUNI 81 Islenski söfnuðurinn í Khöfn og starfsemi hans. Til j>ess aö fá að hevra um starf- senii ísl. safnaðarins hjer í borg- inni, snerum vjer oss til manns. sem vel er kunnugur þeii ri starf- serni, og fer hjer á eftir grein hans. Ahugi er vaknaður meðal dönsku þjóðarinnar á þvi, að bæta andlegan hag landa sinna erlendis; þannig er dönsk kirkja t. d. í Hamborg, París, London, Ameriku og víðar. »Dönsk kirkja utanlands« heitir stór og öflugur fjelagsskapur, sem nýlega er myndaður, og kostar sá fjelagsskapur að öllu leyti prest og kirkju fyrir Dani í þeim lönd- um, sem þeir eru búsettir í. íslenska kirkjan hjer í Kaupmanna- liöfn er lík viðleitni til þess, að bæta andlegan hag Islendinga, sem eru bú- settir hjer, og hefir það sýnt sig, þessi 8 ár, sem söfnuÖurinn hefir starfað hjer, að enginn fjelagsskapur getur að sama skapi dregið að sjer allar stjettir manna, að engiiui fjelagsskapur snertir eins dýpstu og þjóðlegustu strengi hjartn- anna eins og kirkjan; liefði slíkur fje- lagsskapur átt að vera til lijer fjuúr löngu; íslenska þjóðkirkjan liefir skyld- ur að inna gagnvart því fólki, er fer af íslandi hingað til Hafnar, það er flest ungt fólk, sem svo er lijer heim- ilislaust, í framandi landi, í stórborg með mai’gvíslegum freistingum og snör- um. Mönnum telst svo til, að um 1000 íslendingar muni vera hjer, dreifðir um alla borgina. I?að er því ei'fitt að safna mönnum saman eða mynda með þeim fastan kirkjusöfnuð, og mai’gir ekki heldur mjög kirkjuræknir, og vist eru þeir mjög fáir, sem sækja danskar kirkjur, því þar finnst mönnum alt svo ókunnugt og öðruvísi en þeir eru vanir á íslandi. Pess vegna er þessi viðleitni með ísl. söfnuð hjer góð byrjun, og er vonandi að lienni verði haldið áfram og að við, sem erum búsettir hjer, get- um haft íslenskan prest og íslenskar guðsþjónustur. Síra Haukur Gísla- son hefir starfað að þessu undanfarin ár af mestu alúð og dugnaði og haft þá gleði, að sjá söfnuðinn færast í aukana og fleiri og fleiri sækja kirkjuna, og flestum mun finnast þessi starfsemi lians eðlilegur og sjálfsagður liður í nýlendu- lífinu hjer. Nikulásarkirkjan er vel valin til þess að vera kirkja íslendinga hjer, hún liggur í miðjum bænum, og hinn hái, frægi turn, sem Jacobsen bruggari ljet endurreisa, gnæfir hátt yfir boi’g- ina. Kirkjan er með þeim elstu hjer í boi’ginni, ef ekki sú elsta, og geymir margar merkar minjar. í norð- austurhorni kirkjunnar er þannig múr- uð inn í vegginn mynd af prestinum Hans Egede og konu hans. Kirkjan er vígð hinum helga Nikulási, sem sagt er að verndi þá, sem ferðast yfir haf- ið, og ætti því þessi kirkja að vera góð til áheita fyrir landa, sem liingað koma til þess að leita sjer fjár og frama. Kirkja þessi er nýlega endui'- reist af Departementchef Rentzmann, er gaf allar eigur sinar til þess að reisa liúsið úr rústum. Miðskipið, sem notað er til guðsþjónustunnar, tekur 3 — 400 manns, og er því rúmgott og þægilegt fyrir ísl. söfnuðinu; í kirkju

x

17. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.