17. júní - 01.09.1924, Síða 2

17. júní - 01.09.1924, Síða 2
34 17. JUNÍ son yfirdómari og kona hans Kirstín, f. Knudsen. Sveinbjörn gekk í Latínu- skólann og útskifaðist þaðan 1866 og lauk guðfræðisnámi 1868. Ekki var Sveinbjörn nema 5 ára gam- all, er hann hafði lært að spila á Gui- tar, og nú byrjaði hann að læra að spila á „Piano" lijá frú Ástríði Melsteð. Bendir þetta á það, hve hugurinn hefur hneigst snemma að hljómlistinni, og að hann hefur ekki vantað hæfileika í þessa átt. En svo komu þroskaárin; námið við skólann tók nú upp allan tíma þessa unga manns, að eins kvöld og kvöld greip hann í hljóðfærið og naut nú ekki annarar kenslu í þessari grein, en hann gat aflað sjer sjálfur, og svo vitanlega kenslu söngkennara Latínuskólans, Pjeturs Gudjohnsens. Hjálparmeðul í lújómlist voru á þessum tíma hvorki mikil nje margbrotin á ís- landi, nokkur smá nótnahefti, helst danskra höfunda, svo að sá brunnur var fljólega tæmdur. Og svo námið í skólanum, það varð að ganga fyrir öllu, enda hafa líkurnarekki verið mikl- ar fyrir því þá, að hægt yrði að draga fram lífið á hjómlistinni einni, — að minsta kosti ekki á íslandi. Það leiðir af sjálfu sjer, að eins mu- sikelskan ungling og Sveinbjörn var, muni hafa tekið það sárt, að þurfa að leggja þetta nám á hylluna, og að liggja í þess stað í þurrum námsbók- um, lokaður inni á hörðum skólabekkj- um sex bestu tíma dagsins. Síðan, þegar heim kom, að taka aftur til við bækurnar, lesa undir námið næsta dag. Hefur þurft mikla sjálfsafneitun til þess að standast freistingar allar, „slaghörp- una“ og orgelið á gólfinu, og Guitar- inn á veggnum. Eftir að hafa lokið guðfræðisnámi, fór Sveinbjörn utan. Má geta því nærri, að það muni hafa verið honum gleði- efni. Ferðinni var heitið til Kaupmanna- hafnar, og eftir 32 daga harða útivist, með nokkra daga dvöl í Granton, hafn- aði hann í Kaupmannahöfn snemma í maímánuði 1869. Það var ætlun hans að komast á Konservatoriet, en honum var heldur ráðið til þess, að taka tíma- kenslu hjá V. C. Ravn. Segir Svein- björn í endurminningum sínum, sem á er minst annarsstaðar hjer í blaðinu, að hann hafi enga ástæðu til þess, að iðrast eftir þá ákvörðun, Ravn hafi verið góður kennari og sjer ráðhollur. Nú kyntist Sveinbjörn ýmsum þektum mönnum í heimi hljómlistarinnar, svo sem próf. G a d e o. fl. Honum tókst nú líka að komast í Musikforeningen’s söngkór, og hafði þelta mikla þýðingu fyrir þroska Sveinbjarnar. í Kaupmannahöfn dvaldi Sveinbjörn U/2 ár. Þaðan fór hann til Edinborg- ar, giftist þar og bjó þar 40—50 ár. Hjer þroskaðist hann, hjer starfaði hann, var eftirsóttur og velliðinn hljóm- listarkennari, og hjer hafa flest lög hans orðið til. Árið 1872 fór hann til Leip- zig og stundaði nám hjá þektum kenn- ara þar, próf. Carl Reinecke; eftir 8 mánaða dvöl í Leipzig fór Svein- björn aftur til Edinborgar. — Hjer verður hvorki sögð ítarlega æfisaga Sveinbjarnar nje talin öll verk hans, enda er mikið af þeim að eins í handriti ennþá. Hann hefur samið fjöldann allan af lögum, stórum og

x

17. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.