17. júní - 01.09.1924, Page 11

17. júní - 01.09.1924, Page 11
17. JUNI 43 að ætt og danskir þegnar. Við kosn- ingar í Danmörku til þjóðþingsins greiddu 7500 kjósendur þýsk atkvæði, sem svo er nefnt, þ. e. kusu þýskan mann til þjóðþingsins. Við líkar kosn- ningar í Suður-Slesvík, greiddu 4800 kjósendur dönsk atkvæði. Eflaust eiga fleiri danskir kjósendur heima í Suður-Slesvik, því að tæplega munu allir Danir, sem eru þýskir þegnar, vera svo staddir að þeir þori að gefa dönskum manni atkvæði sitt, enda hefir reynslan sýnt, að þeir eru oft ofsóttir, sem lesa danskar bækur og unna hinu danska þjóðerni sínu. En hvað sem segja má um kjósenda- tölur þessar þá sýna þær þó nokkuð, hve margir Danir eiga heima í þýska ríkinu fyrir sunnan landamæri Danmerk- ur og hve margir bjóðverjar búa fyrir norðan þau syðst í Danmörku. En ljóst dæmi upp á það hve drengilega Danir og Þjóðverjar taka tillit til þjóð- ernis minnihlutans, er það, að fyrir norðan landamærin eru 26 opinberir þýskir skólar og 5 þýskir skólar, sem einstakir menn eiga og fá styrk úr ríkissjóði Dana. í 4 kaupstöðum í Norður-Slesvík eru auk þess æðri skólar með þýskum deildum handa þýskuin nemendunr, er halda vilja áfram námi þá er barnaskólinn þrýtur og ganga á gangfræðaskóla eða verða stúdentar. Auk þess eru 20 þýskir farandkennarar, er geta kent þýsku svo mikið sem þeim sýnist. En handa þeim 4800 dönsku kjós- endum f Suður-Slesvík og fjölskyldum þeirra halda Þjóðverjar aðeins 1 — einn — barnaskóla. Skóli þessi erí Flensborg, þar greiddu 28 °/0 af íbúum borgarinn- ar dönsk atkvæði, en þar eru 18 þýskir skólar fyrir þýska bæjarmenn, en einungis einn þýskur barnaskóli, þar sem kenslan fer fram á dönsku, og í honum geta aðeins verið um 240 börn. Til þess að ráða bót á þessu hefir verið reistur skóli í Flensborg með styrk úr rikissjóði Dana, og heitir hann D u b o rgarskó 1 i, líka hefir danskt félag, Landamærafélagið, komið þar skóla á stofn, og er sá skóli kallaður T i v o 1 i- skólinn. Duborgarskólinn er rekinn fyrir fje úr ríkissjóði Dana, en Tivoli- skólann kostar Landamærafélagið. Ekki leyfa þó þýsk skólayfirvöld dönskum börnum frjálsan aðgang að skólum þessum, heldur halda þau inntöku próf og banna mörgum börnum inntöku í skólana eða foreldrum þeirra að láta þau ganga í þá. Þjóðverjar í Suður- Slesvík hafa fyrir nokkru hótað því að eyðileggja í vor Tivoliskólann, og nú eru þeir farnir til þess. Nú uin mánaða- mótin mars og apríl í vor komu til- kynningar um að 154 börn vildu komast í danskan skóla; var þá haldið próf yfir þeim og fengu aðeins 96 að fara í skólann, en hin voru feld frá skóla- upptöku að því er oss skilst fyrir það að þau kynnu ekki nógu vel dönsku til þess að ganga í danskan skóla! Skólaráð Lorentz í Flensborg var þó eigi ánægður með þetta, heldur lét hann halda nýtt próf yfir dönsku börnunum laugardaginn 5. apríl og gátu þá aðeins 23 staðist prófið. Að þetta er ofsókn af ásettu ráði gegn dönsku skólunum og danskri tungu

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.