17. júní - 01.10.1924, Síða 1
Bogi Th. Melsteð, cand. mag.
EIM sem tíminn þýðir glaumur,
þeim sem lifið sjálft er draumur,
eilíft líf er lýgi tóm, segir gamli
Grundtvig ein-
hversstaðar i ljóðum
sínum. Gagnstæður
þessara setninga
hljóta að vera: Þeim
sem tíminn þýðir
starf, þeim sem lífið
sjálft er alvara, er
hið eilífa líf veru-
leiki. Með þessum
fáu orðum má belur
einkenna líf, starf-
semi og hugsunar-
hátt Boga Th. Mel-
steðs en í langri
grein, því að hann
hefurflestumfremur,
með alvöru og ein-
beittum vilja, lifað
líf sitt í þeim til-
gangi, að koma
mörgu góðu til leið-
ar og í framkvæmd.
Hann hefur með liferni sínu og starf-
semi sýnt, hversu langt verður komist,
þótt eðlisgáfur sjeu ekki framúrskar-
andi eða ekki meiri en í meðallagi.
Eg vil taka dýpra i árinni og segja,
að Bogi Melsteð hefur nieð dæmafárri
viljafestu, vönduðu lunderni og ein-
beittu starfsþoli
áorkað meiru en
flestirsamtíðarmenn
hans og á ekki lít-
inn þátt í menningu
og andlegum og
verklegum framför-
um ættjarðar sinnar
á síðustu áratugum.
í baráttunni fyrir að
framkvæma hug-
sjónir sínar, hefur
hann hafið sjálfan
sig á langtum hærra
siðgæðisstig en al-
ment gerist, þvi
hann hefir með
ósjerplægni beitt
kröftuin sínum í al-
mennings þarfir,
altaf borið sæmd og
hagsemd íslensku
þjóðarinnar fyrir
brjósti og þannig á vissan hátt van-
rækt eigin hagsmuni, en þessi hvöt
hefur einmitt skapað viljaþrek hans og
þá sterku lífsskoðun, að lífið er náð-
Bogi Th. Melsteð.