17. júní - 01.10.1924, Page 3

17. júní - 01.10.1924, Page 3
17. JUNI 51 frjálslyndir, gáfaöir og göfuglyndir stjórnmálamenn að völdum í Dan- mörku, svo sem þeir ráðuneytisforseti C. Th. Zahle og J. C. Christensen, sem veittu orðum Boga Melsteðs áheyrn og breyttu eftir ráðum hans i mörgu. Höf. þessarar greinar liefur leitað upplýsinga um þessa starfsemi hans og fengið svör, meðal annars fiá hr. C. Th. Zahle, sem jeg hjer skal skrá úr lítinn kafla orðrjett á dönsku: „Vor förste Samtale efterfulgtes af flere, og eflerhaanden udvikledes et Samarbejde i gensidig aaben Tillid, gennem hvilket Hr. Bogi Th. Melsteðs indgaaende Kendskab til islandske For- hold og Personer og hans rolige Be- dommelse af disse kom mig til megen Nytte. Jeg skylder Hr. Bogi Th. Mel- steð varm Tak for et fleraarigt Sam- arbejde i en Sag, som var af Betyd- ning for det stolte Folk han tilhorer, og for hans skonne Fædreland." Sömuleiðis hefir fyrv. ráðaneytis- forseti J. C. Christensen farið þessum orðum um Boga Th. Melsteð í brjefi til höf. þessarar greinar: „Blandt de mange brave islandske Mænd, som jeg i Aarenes Lob er kom- met i Forbindelse med og med Ud- bytte har talt med om Island og Dan- mark, indtager Magister Bogi Th. Mel- steð en fremragende Plads. Hans store og uegennyttige Kærlighed til sit Fædreland, hans retsindige og ædle Karakter og hans sjældne historiske Viden har altid gjort vore Samtaler meget frugtbringende". Þessi vinsamlegu orð C. Zahle og J. C. Christensen sýna glögglega hversu mikla þýðingu hin pólitíska starfsemi Boga Melsteðs hefir haft þegar íslandi reið mest á. Auk stjórnmála hefir Bogi Th. Mel- steð unnið að ýmsum framförum á íslandi. Flestum er sjálfsagt kunnugt um, að hann var sá fyrsti sem barðist fyrir stofnun mjólkurbúa, og sendi skilvindur tii íslands og sömuleiðis skrifaði hann mikið um betri meðferð á íslensku saltkjöti, svo að það yrði arðsöm verslunarvara og nefnir Þorv. Thoroddsen í Lýsing íslands IV. bindi, bls. 391 og 402—3, Boga Melsteð sem helsta og fyrsta frömuð þessara nytsemdarmála, sem liafa aukið tekjur landsins svo miljónum króna skiftir á ári. Á mörgum öðrum framfaramálum hefir Bogi Melsteð fyrstur manna vakið athygli, svo sem brúa- og vegagerð, hafnarbygging, samvinnufjelögum, járn- brautarlagning, en einkum hefir hann altaf borið fyrir brjósti öll verslunar- og framtíðarmál íslands og liefur reynt að beina þeim í sem best horf. Aðallífsverk Boga Melsteðs er þó söguritun. Hann hefur skrifað meira og betur um sögu íslands en flestir íslendingar, er hafa gefið sig að því, þótt hans sje ekki minst meðal íslenskra sagnaritara í seinustu útgáftunni af Salmonsens Lexikon, en þetta hlýtur að stafa af ótrúlegri vangá hins ágæta rithöfunds, senr þessa grein hefur samið í Salmonsens Lexikon. Af bókum Boga Melsteðs má fyrst og fremst nefna: Ferðir og siglingar íslendinga i fornöld, einhver stærsta og merkasta ritgerðin í Safni til sögu ís- lands. Stult Kenslubók, sem komið

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.