17. júní - 01.10.1924, Qupperneq 10

17. júní - 01.10.1924, Qupperneq 10
58 17. JUNI bænda íyrir starfseminni, svo aö þeir liafa leyst vinnuna af hendi sjálfir, en fjelagið hefur stjórnað, gefið holl ráð og leiðbeint. Starfið er int af hendi „aí þjóðinni fyrir þjóðina". Fjelagið telur rúma 11000 meðlimi, sem greiða 5 kr. ársgjald hver, auk þess hefir það hækkandi styrk úr ríkissjóði. Það hefir í þjónustu sinni stóran hóp af launuðum skógfræð- ingum, vekfræðingum og búfræðiskandí- dötum, sem allir eiga að veita bænd- unum lið og semja fyrir þá starfs- og kostnaðar-áætlánir fyrir trjáplöntun, merglun, nýrækt á mýrum og engjum, áveitur og afræslur og lokræsun. Á þessum síðast nefndu sviðum liggur mikil vinna óunnin á íslandi. Hjer eru þúsundir h. a. jörð, sem hægt væri að gera fríska og frjórsama, og ef það yrði gert, gæti nautgripahaldið, sem nú er ekki meira en h. u. b. 25,000 höfuð og minna en á fyrri öldum, aukist að stórum mun og þannig aukið velmegun landsins. Þegar Friðrik konungur bauð alþing- ismönnum íslands heim og þeir vóru hjer í heimsókn árið 1906, var mjer það sönn ánægja að ferðast með þeim á Jótlandi, þar sem þeir fengu tækifæri til að sjá nokkra ávexti af starfsenii Heiðafélagsins, t. d. á Hesselvig Eng- gaard, þar sem stórum heiðarflákum hefir verið breytt í frjóvsamar engjar, með áveitum, og á Pontoppidans mýrartilraunastöð, þar sem mýramar nú afkasta ríkulegri uppskeru bæði korni, lieyi og rófum. Margir af alþingismönnunum ljetu i ljósi gleði sína yfir því, sem þeir sáu, og einatl flugu hugsanirnar til ísland, þar sem verksviðið er svo stórt. Það væri mjer hið mesta gleðietni, ef hægt væri að rækta upp hin stóru < engjaflæmi á íslandi — ef þau yrðu afræst og veitt á þau vatni eftir þörfum, svo hálfgrösin hyrfu fyrir góðu og kraftmiklu ræktuðu grasi. Þvílíka bún- aðar-sýningu þá væri hægt að halda við Þjórsárbrú eða við Ölfusá, og hversu íslenskir bændur þá gætu glatt sig við hugsunina um að þeir hefðu byggt land sitt af nýju! Óskandi væri að ísland fengi fje- lagsskap líkann Hinu danska heiða- félagi, — félagsskap, sem gæti gefið bændum leiðbeining og ráð og uppörvað þá til þess að byrja, því starfið verða bændurnir að leysa af hendi sjálfir. Þannig eða þessu líkt ætti eg að liafa talað við Þjórsárbrú. Eg vanrækti það — og nú kemur það að líkindum póstfestum, en svo mikið veit eg, að ísland á nóg landrími handa fleiri bændum á sínu viðáttumikla graslendi, langtum meira rúm en til er í Reykja- vík eða öðrum bæjum landsins. ísland er ekki eins fátækt og margir halda. J. C. Christensen. Gerist áskrifandi að 17. j ú n í Best allra blaða að frágangi.

x

17. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.