17. júní - 01.10.1924, Síða 12

17. júní - 01.10.1924, Síða 12
60 17. JUNI I lok átjándu aldar hafði ríkið Dan- mörk-Noregur ennþá ekki all-litla þýð- ingu í Norðurálfunni. Það var talið vel hervætt til lands og sjávar, einkum var floti þess álitinn einn af hinum bestu. Ríkin höfðu þá líka ágæt verslunar- skifti við önnur lönd og auðguðust stórum. Og þótt stjórnin væri einvöld konungsstjórn, átti hún framúrskarandi víðsýna ráðgjafa, sem stjórnuðu með dugnaði og fyrirhyggju bæði útávið og ekki síður innanlands. Þetta sýndu þeir einkum í því að ljetta ánauð bændastjettarinnar og byrja á öflugum ráðstöfunum til að bæta kjör hennar, bæði andlcga og efnalega. Af þessu leiddi, að Danmörk varð lítið vör við stjórnarbyltinguna miklu á Frakklandi, sem á næstu árum hrysti önnur þjóð- fjelög að meira eða minna leiti. En þessar frjálsu framfarir áttu sjer ekki langan aldur. Undir stjórn Friðriks konungs sjötta, sem liófst með svo miklum skörungsskap, lentu ríkin inn í hring-iðu Napoleons-styrjaldanna. Eítir allri afstöðu Danmerkur-Noregs hefði bandalag við Englendinga eflaust verið bæði eðlilegast og liagfeldast, en það tókst ekki, að mestu fyrir klaufaskap og styrfni ensku stjórnar- innar. Englendingar fóru þannig með málin, að Friðrik konungur var neyddur til að gerast bandamaður Napoleons og Frakka. — Einþykkur og stífur, en orðheldinn og einfaldur eins og Friðrik konungar var í lund, var það engin furða að hann hataði frændur sína í Englandi og hjeldi fast við Napoleon, jafnvel þó það hefði í för með sjer, að Danmörk kom út úr stríðinu skilin frá Noregi, einmana og fátæk, rænd og rupluð öllum sínum fyrri gæðum. Tvisvar heimsóttu Englendingar Kaupmannahöfn (1801 og 1807), brendu í seinna skiftið borgina víðsvegar og rændu herflota Dana og Norðmanna. Eftir þetta ólán voru bæði ríkin eigin- lega varnarlítil, og við friðarsamningana efter fall Napoleons voru þau, eins og kunnugt er, skilin hvert frá öðru; og nærri lá að menn þá gerðu enda á Danmörku sem þjóðernis-ríki: Það var talað um að Sjáland og nokkrar aðrar af dönsku eyjunum væru lagðar undir Svíaveldi, en að Friðrik konungur fengi nokkurn hluta Norður-þýskalands í staðinn. Ásamt Jótlandi átti það svo að vera ríki hans — Hamborg átti að vera höfuðborg þessa nýja samsteypu- ríkis. í byrjun 19. aldar var þjóðernið og þjóðarviljinn ekki í meiri metum hjá stjórnmálamönnum Evrópu, en að hrossakaup á þjóðum líkt þessu, voru alls ekki óhugsanleg. Ur þess uráðabruggi varð þó ekkert. En skilnaðurinn við Noreg var þó ærið sár fyrir marga. Ríkin og þjóð- irnar höfðu nú lifað svo lengi hver með annari, að í mörgum greinum, einkum í hinu æðra menningar og mentalífi þjóðanna, var eríitt að benda á það danska eða það norska sjerstak- lega. Menning og mentir voru dansk- norskar — nægilegur vottur þess eru norsku skáldin i Danmörku, einkum sá er frægastur hefir orðið frá því tímabili, er ríkin voru sameinuð, Ludvig Hol- berg — og hið sama má segja um menta- og embættismannastjettirnar í

x

17. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/706

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.