Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 83
SONUU SÓLAR
161
Þegai' prestar Amons náðu völdum á ný eyðilögðu þeir allar
skýrslur um „villutrúarkonunginn11, og þess vegna er mjög erf-
itt að gera sér fulla grein fyrir kerfi Atonismans. öldum saman
heyrðist nafn Atons ekki nefnt. Musterið með geislunum og
höndunum féll í rúst og huldist að lokum sandi eyðimerkur-
innar. En hitt þykjast fróðir menn þó vita, að Ekn-Aton hafi
verið mótfallinn viðhafnartrúarsiðum og hinu margþætta
prestaskipulagi. Hann tignaði Aton þegar liann reis, hina sýni-
legu sól, sem varpaði af sér skikkju myrkursins, tákn efnda hins
eilífa fyrirheits. Hann tilbað Aton við sólarlag, tákn Ijóssins
sem hvarf niður í dimmu jarðariimar. Til þess að koma til móts
við anda egypzkra trúarsiða, fórnaði konungur stundmn með
einföldum hætti blómum og ávöxtum. En hann var alltaf að
sýna hinum sínálaiga anda lotningu sína, en fjarvera hans var
óhugsandi. Annars var óþarfi að heita á hann, sem ávallt var
nálægur, því án eyrna heyrði Aton allt, án augna sá Hann allt,
og án vara hljómaði mál Hans. Orð Hans voru fegurð, samræmi
og líf.
Andi Atons liafði í för með sér mestu list Egypta. 1 fyrsta
sinn lifnaði höggmyndalist og málaralist. Menn hjuggu ekki
lengur eingöngu sfinxa með óskýranlegt augnaráð eða hátign-
arlegar og alvarlegar persónur i engu samræmi við lifið eða
umhverfið. Ekn-Aton hafði fundið hrynjandi og sti'eymi nátt-
úrunnar. Hann sá Aton á hreyfingu í vindunum beygja korn-
öxin á ökrunum. Hann sá pálmatrén sveigjast fyrir anda Atons.
Hann sá í hreyfingu allra hluta eitt sameiginlegt líf á sífelldri
hreyfingu. Þannig varð listin í fyrsta sinni tengd náttúrunni.
Eðlilega hafði skilningur Ekn-Atons ekki einungis áhrif á
tækni listarinnar heldur einnig efni það, sem tekið var til með-
ferðar. Aton vakti nýja virðingu fyrir fábrotnum lilutum.
Hann fann Guð í heimilinu og fjölskvldunni og í mönnum við
strit og störf. Honum fannst ekki viðeigandi að láta gera mikil-
fenglegar höggmyndir af konungum himnanna með veldis-
sprota hinna þriggja heima í hendi. Það má greina, að sögn,
djúpan trúaranda í listaverkum timabils hans. Alls staðar er
11