Morgunn - 01.12.1988, Blaðsíða 15
morgunn
ÁTAKS ER l>ÖRF
og þar með líklegt til þess að eyða, ekki aðeins óvinum
þjóðarinnar, heldur siðmenningunni sjálfri.
Sannur spíritismi er andstæða alls þess sem smánar
mannlegt líf vegna þess að við vitum að anda mannsins, sem
er guð, er ekki hægt að tjá í gegnum auma, hungraða og
smánaða líkama. Við segjum að líkaminn sé helgur sem
musteri hins lifandi anda. Allt sem smánar þann líkama
smánar það musteri og smánar guð.
Þegar heimurinn hrópar á leiðsögn, þegar mannkynið,
þreytt á gamaldags kennisetningum, þreifar sig áfram i átt að
ljósi sannleikans, í þrá eftir þeirri þekkingu sem spíritisminn
getur veitt, þá líðum við áfram, aðgerðarlaus, kákandi við
vélar okkar, breytandi reglum okkar, hafandi áhyggjur af
lítilsverðum hlutum, í stað þess að einbeita okkur að því sem
mestu máli skiptir varðandi líf okkar og tilgang á jörðinni.
Ef við erum ekki tilbúin til þess að endurrekja spor okkar
og fylgja þeim stíg sem frumkvöðlarnir ruddu fyrir okkur, þá
mun spíritisminn enda, eins og öll liðin trúarbrögð — á
ruslahaugi heimsins.
Psychic News,
þýð. Guðjón Baldvinsson.
13