Útvarpstíðindi - 09.01.1939, Side 3
TRÍÓ TÓNLISTARSKÓLANS
Hein.i Edehtein, Árni Kristjánsson, Hans Stepanek,
1 öllum útvarpsstöðvum heimsins
fyllir tónlistin mest af dagskrártím-
anum, enda er það n vistai eðlilegt.
Menningarst fnun ein,s og útvarpið,
hlýtur að rækja. skyldur sínar við list-
irnar, og sú list, sem, bezt er til þess
failin að túlka gegnum útvarp, það er
tónlistin — drottning allra lista.
Fólk, sem ekki hefir yndi af tpn-
li,st í einhverju formi, er fremur
sjaldgæft, því t'nlistin í sínum fjöl-
þætta breytileik, hefir eitthvað fyrir
alla,. Hún getur túlkað það, sem engin
orð fá lýst.
— Tónleikar Tónhstarskólans eru
einn meginþátturinn í hinni lifandi
t'nlist Ríkisútvarpsins, og þykir Út-
varpstíðindum því vel við eiga að
birta mynd af þeim starfskröftum
Tónlistarfélagsins, er oftast koma
þar fram, og kynna þá lítilsháttar
fyrir útvarpshluslendum.
— Trio (þríspil) Tónlistarfélagsins
skipa Árni Kristjánsson, Dr. Heinz
Edelstein og Hans Stepanek. — Árni
Kristjánsson er frá Akureyri og hefir
stundað nám í mörg ár í Kaupmanna-
höfn (hjá Rachlev) og í Berlin (hjá
Mayer-Mahr). Hann er löngu orðinn
land«kunnur fyrir hljómleika sína og
sem ])íam'ikennari við Tónlistarskól-
ann.
Dr. Heinz Edelstein er frá Frank-
furt am Main og lærði á celló hjá
Gustav Tholau,, sólócellista við óper-
una í Köln, en áður hafði hann lokið
námi við Tónlistaskólann í Freiborg.
Að loknu námi var hann cellókennari
í Freiborg og lék síðar í ýmsum hljóm-
sveilum. Meðal annars var hann eitt
ár cellisti í hinum ágæta Drucker-
strokkvartett.
Edelstein hefir verið celló-kennari
við Tónlistarskólann í Reykjavík síð-
an í janúar s. 1. ár, og kennir nú einn-
ig kammermúsik og nokkrum, flokk-
um barna og unglinga á blockflautu.
Hans Stepanek er frá Vínarborg
187