Útvarpstíðindi - 26.05.1941, Síða 7
Sjómannadagurinn verður 8. júni.
Sjómannastéttin íslenzka hefur tvö síð-
astliðin úr helgað sér einn dag á' árinu
og gert að hátíðisdegi sínum. Hafa þá
verið haldnir útifundir og sjómenn geng-
ið skrúðgöngu um bæinn undir fánum og
með söng og hljóðfæraslætti. Einnig hafa
þeir efnt til róðra- og sundkeppni og á
margvísle'gan hátt sett svip sinn á bæinn.
Að þessu sinni verða hátíðahöldin
nokkuð með öðrum hætti, vegna styrjald-
arástandsins, en þó hafa forgöngumenn
sjómannadagsins von um, að þeir geti
efnt til útifundar á íþróttavellinum og
samsætis í Oddfellowhöllinni.
Á forsíðu blaðsins birtum vér mynd frá
fyrsta sjómannadeginum, 1939, frá úti-
fundi við Leifsstyttuna: Minnst látinna
sjómanna.
Henry Hálfdánarson, loftskeytamaður,
er einn af ötulustu forvígismönnum sjó-
mannadagsins.
Orðsending
Sumarútgáfa Útvarpstíðinda hófst með
síðasta liefti. Útgefendum er það gleðiefni,
að þessari stækkun blaðsins hefur verið
tekið sérlega vel; þannig fengum við t. d.
með síðasta austanpósti bréf úr þremur
byggðarlögum með áskriftum nýrra kaup-
enda. Svipuð bréf höfum við fengið hvað-
anæfa af landinu, svo að um 100 nýir
kaupendur hafa bætzt við, síðan breyting-
in var gerð. Menn hafa einnig boðizt til
að gerast útsölumenn. — Við erum mjög
þakklátir fyrir þennan stuðning, því að
kaupenda aukning og skilvisi er aðal
trygging fyrir því, að blaðið geti haldið í
hoi'finu. Við höfum ráðist í þessa stækk-
un á þeim timum, sem mörg blöð og rit
ýmist hœkka verð sitt eða draga saman
seglin, og sum hvorttveggja. Og ef svo
heldur áfram, sem nú er byrjað, í sam-
starfi við útsölumenn og kaupendur, er-
um við vongóðir um liið bezta í framtíð-
inni. —
Nú hefur verið lokið við að endurprenta
þau eintök af Útvarpstíðindum, sem upp-
seld voru, og fást nú allir árgangarnir
samstæðir, en þó aðeins nokkur eintök,
því einhversstaðar varð að hætta endur-
prentuninni. það hafa verið endurprentuð
5 hefti, og sá kostnaður verður auðvitað
að leggjast á gömlu árgangana. Ve(rð
þeirra höfum við því orðið að ákveða
sem hér segir: I. árg. 7.50 kr., II. árg. 7.50,
en III. árg fá nýir áskrifendur fyrir 5.00
kr. 4. hefti I. árg. og 11. og 12. hefti II.
árg. kaupum við háu verði. Ef eitthvað
kynni að liggja hjá útsölumönnum, af
þessum heftum, biðjum við þá að senda
okkur þau.
Takmark okJcar er: 1000 nýir
Jcaupendur blaðsins á þessu ári.
ÚTVARPSTÍÐINDI
443