Útvarpstíðindi - 11.08.1941, Síða 7
sýslu. — Vœri vol þegið uð fá meira af
orða skýringum.
Kaupendaauking Útvarpstíðinda hefur
okkur borist með seinustu póstum frá
Akureyri og Eyjafirði, Norðfirði og úr
Snæfellsnessýslu.
Raddir frá hlustendum eru alltaf kær-
komnar. því miður er rúmið svo lítið í
blaðinu í sumar, að færra kemst að cn
við vildum. Hlustandi í Dalasýslul Okkur
væri þökk á pistlum frá yður í vetur um
efni, sem þér skrifuðuð síðast, en þér,
og allir aðrir, sem ekki vilja láta nafns
getið opinberlega, þurfið að senda okkur
nafn yðar. Ritstj.
Útvarp kvöldsöngsins frá Kaþólsku
kirkjunni var liið ágaúasta og eitt það
bezta, sem komið liefur í útvarpinu af
kórverkum. það var og mátulega langt
til flutnings. Hátíðlegt og óvenjulega fag-
urt. Illjómsveit og kór naut sín vel. Ein-
söngvararnir voru og mjög prýðilegir.
Sopranrödd Divina Sigurðsson er bla'fög-
ur og veigamikil. Guðrún Sveinsdóttir
hefur ágætlega skólaða rödd, en ekki
mikla. En mcsta athygli vakti söngur
Bjargar Guðnadóttur, rödd, meðferð og
túlkun var með ágætum og mjög eftir-
minnilegur. Hefur vart fullkomnari alt-
rödd heyrst í útvarpinu. Doktor Urbant-
scliitscli á miklar þakkir skilið fyrir
kvöldsöng þenna, og væri æskilegt að
útvarpið hagnýtti sér enn meir krafta
þessa snjalla tónlistarmanns.
þökk fyi'ir kvöldið. P.
Um fréttir.
Hvað er það sem ræður mati frétta-
stofu eða fréttastjóra útvarpsins á efni
tímarita og blaða, sem getið er um í
fréttum? Fréttastofan virðist af nokkru
liandahófi geta um liöfunda og gengur
á snið við suma. þcssu til stuðnings mætti
nefna ótal dæmi úr fréttaflutningi út-
varpsins um þessi efni, en nefnt skal
eitt dæmi, sem sýnir liversu höndunum
er kastað til þessa verks. þegar „Barna-
dagurinn", blað „Sumargjafar", kom út
fyrir sumardaginn fyrsta í vor, var getið
um höfunda einstakra greina, þó ekki
alla. Eitt kvæði var í heftinu. En það
var hvorki getið um kvæðið né liöfund
þess; var kvæðið þó á frcmstu lesmáls-
síðu og ort í tilefni barnahátíðarinnai'.
Hvað veldui'? Hefur höfundur kvreðisins
vei'ið dæmdur af fréttamanni og léttvæg-
ur fundinn? Er það hlutverk fréttastof-
unnar að skýra frá mönnum og málefn-
um eða da'ma? Eftir fi'amangreindu og
möi'gu af svipuðu tagi vii'ðist dómgirnin
skipa þarna háan sess.
Sig. Helgason.
Takið undirl Hinn vinsæli þáttur Páls
ísólfssonar og þjóðkórsins vei’ður næst þ.
24. ágúst.
Afgreiddar frá kl. 9 til 11,30 og
15,30 til 18,30 alla virka daga.
Sunnudaga kl. 16,00 til 18,30, og
eigi á öðrum tírnum. Sími 1095.
ÚTVARPSTÍBINDI
<83