Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Síða 3

Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Síða 3
ÚTVARPSTÍÐINDI Framfíð Útvarpsfíðinda Um leið og við undirritaðir tökum við ritstjórn Útvarpstíðinda þykir okk- ur ekki úr vegi að ávarpa lesenduma nokkrum orðum. Okkur er báðum ljóst að mikil börf er fyrir rit eins og Útvarpstíðindi, en við teljum að því hafi verið til þessa skorinn of þröngur stakkur og einmitt með það fyrir augum höfum við tekið að okkur að veita ritinu forstöðu um skeið. Við teljum að nauðsyn sé að breyta ritinu allmikið svo að það geti fullnægt þeim þörfum sem eru fyrir það. Við viljum láta það færa út kví- arnar, birta fjölbreyttara efni en það hefur gert til þessa og að það geti , fengið betri búning að öðru Ieyti en það hefur haft hingað til. Nokkrar breytingar hafa verið gerð- ar þegar með þessu fyrsta hefti okkar, en þó aðeins örlítill hluti þeirray sem við höfum í hyggju. Við viljum leggja okkur fram um að birta fræðandi og fréttnæmar greinar um útvarp, sjónvarp og aðra þá tækni sem skyld er þessu. Við vilj- um segja frá heimskunnum útvarps- starfsmönnum og fræða lesendur okk- ar um rekstur og fyrirkomulag út- varpsstöðva víðs vegar um heiminn. Við viljum gefa listum og bókmennt- um allmikið rúm og við viljum hafa eins mikið af léttu og skemmtilegu efni og okkur er frekast kostur. Ennfremur viljum við að ritið geti orðið vettvang- ur fyrir útvarpshlustendur til umræðna um efnisval útvarpsins og annað er við- kemur rekstri þess. Þetta snertir efnisval ritsins. En við teljum ekki að hægt verði að búa ritið sómasamlega úr garðip nema að það fái annan ytri svip. Verður því Iögð áhersla á það að bæta útlit þess og þá fyrst og fremst að fá í það betri pappír. Með þessu hefti stækka Otvarpstíð- indi. Áætlun okkar er að ritið komi út tvisvar í mánuði, 24 .síður í hvert skifti, alla mánuði ársins, nema júní og júlí, þá 1 hefti á mánuði. En auk þess komi út stórt jólablað árlega. Með þessu er ætlunin að út komi til næstu áramóta 408 síður, eða 1 7 hefti. Þessi aukning krefst að sjálfsögðu aukins kostnaðar og hækkar ritið því í verði frá og með þessu hefti. Við munum leggja alla áherslu á það, að þær áætlanir, sem við höf- um gert um efni og útlit blaðsins kom- ist í framkvæmd, en því miður er ekki hægt að gera nauðsynlegar breyting- ar á ritinu allar í einu. Þá munum við og kappkosta af okkar hálfu að hafa sem besta samvinnu við útvarpshlust- endur, starfsmenn útvarpsins, útvarps- stjóra og útvarpsráð. Væntum við þess að í sameiningu takist okkur með öll- um þessum aðilum að gera Útvarpstíð- indi að ómissandi riti á hverju því heim ili sem hefur útvarp. Viljum við vinna að því marki að Útvarpstíðindi geti orðið samboðin mesta menningartæki nútímans, útvarpinu og að útvarp og Útvarpstíðindi komist inn á hvert ein- asta íslenzkt heimili. Reykjavík í apríl 1945. . Viíhjálmur S. Vilhjálmsson. Porsteinn Jósepsson.

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.