Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Síða 5
ÚTVARPSTÍÐINDI
5
r
Island d stuttbylgjum
ViStal viSi Bjarna GuSmundsson,
blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar.
A nýársdag Kóf utanríkisráðuneytið
fréttasendingar um stuttbylgjustöð
Landssímans (TFJ, 24,52 m.). Er út-
varpað vikulega, á sunnudögum, helztu
fréttum hverrar viku í 30 mínútur.
Það er Bjarni Guðmundsson blaða-
fulltrúi sem annast þetta útvarp af
hálfu ráðuneytisins. Margir hlustenda
munu kannast við þessa útvarpssend-
ingu, sem jafnan hefst með laginu
,,ísland, farsælda frón“, sem leikið er
á tvo lúðra.
Útvarpstíðindi áttu tal við Bjama
Guðmundsson og spurðu hann um ým-
islegt viðvjkjandi útvarpi þessu, fyrst
og fremst hvernig það heyrðist utan-
lands.
— Áður en útvarpið hófst, segir
Bjarni, var öllum sendiráðum íslands
utanlands tilkynnt um tíma og öldu-
lengd og þau beðin að koma þeim
upplýsingum sem víðast meðal landa
unurn, kolunum, gúmmíinu og bómullinni,
Nú er tilætlunin að hann flytji erindafiokk
um helztu neyzluvörumar, segi frá fram-
leiðslu þeirra og framleiðslustöðum og
þýðingu þeirri, sem þau hefðu haft í at-
vinnulífi þjóðanna og heimsstjómmálunum.
Af innlendum söng má henda á einsöng
ungfrú Önnu Þórhallsdóttur þann 16. aprfl
og einsöng Einars Markans 23. apríl, en
þá syngur hann eingöngu lög eftir sjálfan
sig.
erlendis. Jafnframt var þess óskað, að
þeir, sem til stöðvarinnar heyrðu, létu
um það í té upplýsingar sendimönn-
um Islands, hver á sínum stað. Undir-
tektirnar voru ekki glæsilegar fyrst í
stað. Ekkert sendiráðanna hafði heyrt
sendinguna á venjuleg viðtæki. En
hlustunarstöðvar erlendra útvarps-
stöðva gátu heyrt sendinguna sæmi-
Iega. — Fyrstu sendingarnar fóru
fram kl. 6—6.30 e. h. eftir ísl. tíma.
Með því áo stuttbylgjusendingar heyr-
ast betur í dagsbirtu en í myrkri, var
breytt um útvarpstíma, og hefir síðan
verið útvarpað kl. 1 —1.30 (13.00
til 13.30) eftir íslenzkum meðaltíma
(14— 14.30 eftir ’ sumartímanum).
Brá nú svo við, að allir heyrðu betur
en áður, og berast að jafnaði fréttir
um sæmilega eða ágæta móttöku.
— Hvaðan hafa fregnir borizt?