Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Page 6

Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Page 6
6 ÚTVARPSTÍÐINDI — Frá Svíþjóð hefir frétzt að út- varpið heyrðist mjög vel norður í landi en miður í Stokkhólmi og sunn- anlands. í Danmörku hefir útvarpið heyrst vel. í Bretlandi heyrist misjafn- lega. í Bandaríkjunum heyrist víða vel, en þó betur yfirleitt í Kanada. Þetta má yfirleítt telja góðan árangur, eink- um þegar tillit er til þess tekið að ekki er hægt að útvarpa með stefnuloftneti, en þá þyrfti fleiri^sendingar samstæð- ar. í fréttabréfi frá Vesturheimi, sem skrifað er í New Westminster 1. jan. síðastl. og birtist í Heimskringlu 3. jan. segir á þessa leið: „Fréttaútvarpið á íslenzku, beina leið frá Reykjavík, heyrðist hér all- vel vestur á Kyrrahafsströnd á nýárs- dag kl. 12 á hádegi. (Pacifie war- time). Ég ætla. ekki að fara að telja upp þær fróðlegu skýrslur og fréttir sem var útvarpað, því það munu aðrir mér færari gera. . Ég skal samt geta þess að stöðin sagðist útvarpa á sama tfma sunnu- daginn 7. jan. n. k. Það útvarp ætti að heyrast vel í Manitoba kl. 2 e. h. á 25 metra band- inu (24,52 m.). Eins vil ég geta þess að ^g hef ekki neinn sérstakan útbúnað fyrir móttöku stuttbylgju, hefi, bara gott 8 ljósa radio, sem hefur stuttbylgjuband áuk lang- bylgju. Móttökuvírinn, sem ég brúka er ekki í góðu Iagi og stefnir ekki í áttina til íslands, en ég mun hressa ppp á hann fyrir næsta sunnudag og býst þá við enn betri móttöku TFJ-stöðvarinnar. Ég álít að þeir sem eitthvað hafa átt við móttöku stuttbylgju, verði ekkí í neinum vandræðum með að heyra útvarpsstöð íslands". Höfundur bréfsins er Kristján ís- fjörð. Hann færir útvarpsstjóra og ætt- jörðinni beztu óskir og biður hana lengi lifa. — Hvert er útvarpsefnið ? — Fyrst um sinn er eingöngu út- varpað almennum fréttum. Ef tími vinst til er stundum drepið á helztu nýmæli, t. d. hefir hitaveitu Reykja- víkur verið talsvert ýtarlega getið. Lögð er áherzla á að birta sem mest- ar fréttir af því, sem ætla má að landar utanlands vilji helzt um fræð- ast, svo sem menningarmál, Iistir, bók- menntir, íþróttir og fleira. — Er ætlunin að auka starfsemina? — Um það verður ekkert sagt að svo stöddu, því að fyrst þarf að afla miklu víðtækari upplýsinga um hlust- endahópinn, áðúr en lagt verður í meiri kostnað. Það er og nauðsynlegt að fá samanburð á því, hversu margir heyra stuttbylgjuútvarpið, sem ekki heyra okkar gamla „Útvárp Reykja- vík“. Mér hefir dottið í hug að at- hugandi væri að útvarpa kvölddagskrá útvarpsins einu sinni á viku á stutt- bylgjum jafnframt, og mætti þá at- huga að hagræða henni með hliðsjón af útvarpi til útlanda. En þetta eru bollaleggingar einar enn sem komið er. — Starfa fleiri að þessu útvarpi? -— Það er nú tæplega hægt að segja. Ég hef að vísu fengið ágæta aðstoð og á von á meiri aðstoð, t. d. ætlar Helgi Hjörvar að gefa hlustendum stutta skýrslu um störf síðasta Alþingis á næstunni. En segja má að ég sé að öðru leyti „einn á báti“.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.