Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Page 9
ÚTVARPSTÍÐINDI
9
hverju Tóta æpti. Gunnar sparkaði
svona hrottalega í bakhlutann á henni.
Og við vorum sannfærðir um, að hann
hafði gert það viljandi.
Þegar farið var að skyggja lædd-
umst við að skúmum til að hlusta.
Tóta var þá búin að sýna Gunnari mar-
ið á rasskinninni og hann var að sann-
færa hana um, að hún ætti að klaga
þetta fyrir lögreglunni og heimta
skaðabætur; Jói hefði sparkað svona
óþyrmilega í hana og ætti að borga
fyrir það. Hún sagðist ekki vera vön
að hlaupa í lögregluna, en hann gat
þó sannfært hana og fengið hana til
þess með því móti, að hann færi með
henni. En hann sagðist vilja fá helm-
inginn fyrir. Og hún gekk að þeim
samningum.
Þetta komst nú í hámæli í hverfinu
á svipstundu og vildum við strákarnir
vitna á móti Gunnari, en fullorðna fólk-
ið sýndi okkur fram á, að við yrðum
ekki teknir gildir. En svo heppilega
vildi til, að tvær konur höfðu séð
þetta út um glugga á næsta húsi. Þær
tóku að sér að vitna.
Og Gunnar var dæmdur á staðnum
til að greiða Tótu fimm krónur í pen-
ingum í sársaukabætur.
Þegar Tóta var spurð að því eftir á,
hvort hún yndi ekki vel þessum mála-
lokum, þá svaraði hún:
,,Jú, eftir atvikum, eins og Iærðir
menn segja, en helvítið hann Gunnar
heimtaði helminginn, þegar við komum
heim, og samvizkunnar vegna varð ég
að borga það'\'-^
RÍKISÚTVARPIÐ
Takmarb Ríkisútvarpsins og ætlunarverk
er að ná til allra þegna landsins með hvers-
konar fræðslu og skemmtun, sem því er unnt
að veita.
AÐALSKRIFSTOFA ÚTYARPSINS
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborganir,
samningagerðir o. s. frv. — Útvarpsstjóri er
venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Sími skrif-
stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4990.
INNHEIMTU AFNOTAGJALDA
annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998.
ÚTV ARPSRÁÐIÐ
(Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjóm hinnar
menningarlegu starfsemi og velur útvarps-
efni. Skrifstofan er opin til viötals og af-
greiðslu frá kl. 2—4 síðd. Sími 4991.
FRÉTTASTOFAN
annast um fréttasöfnun innanlands og frá
útlöndum. — Fréttaritarar eru í hverju hér-
aði og kaupstað landsins. Sími fréttastofu
4994. Simi fréttastjóra 4845.
AUGLÝ SINGAR
Útvarpið flytur auglýsingar og tilbynningar
til landsmanna með skjótum og áhrifamikl-
um hætti. Þeir, sem reynt hafa, telja út-
varpsauglýsingar áhrifamestar allra auglýs-
inga. Auglýsingasími 1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS
hefur daglega umsjón méð útvarpsstöðinni,
magnarasal og viðgerðastofu. Sími verb-
fræðings 4992.
VIÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskonar viðgerðir og breýt-
ingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og
fræðslu um not og viðgerðir viðtækja. Sími
viðgerðarstofunnar 4995.
TAKMARKIÐ ER:
Útvarpið inn á hvert heimili! Allir lands-
menn þurfa að eiga kost á því, að hlusta á
æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins.
Bíkisútvarpið.