Útvarpstíðindi - 09.04.1945, Síða 11
ÚTVARPSTIÐINDI
11
f
Sinatra og vill láta mig skrifa til
Hannesar eða Víkverja um að heimta
hann í útvarpið. Hann syngur eins og
breima köttur og fólkið slæst um hann
í Ameríku. Það var sagt frá þessu
héma í blaði um daginn. Þið hlustið
náttúrulega allt af á Passíusálmana ?
— Ég skifti.
Já, ég vil þá heldur en hitt, en ég
Vil Iáta syngja þá. Þú getur bara alls
ekki ímyndað þér, hvað það myndi
breyta kotunum, ef fjórir menn mættu
í útvarpssalnum á kvöldin á föstunni
og syngju einn sálm. Ég er viss um að
tár myndu blika á mörgum hvarmi,
sérstaklega eldra fólksins, óg ég full-
yrði, að það myndi hafa þau. áhrif að
farið yrði aftur að syngja Passíusálm-
ana í baðstofunum, sérstaklega til
sveita. Þið eruð náttúrulega að spila
Bridge á kvöldin á föstunni eins og
önnur kvöld. — Ég skifti.
Já, eða að rífast í krökkunum, sem
vilja fara í bíó. Það er svo erfitt að
halda þessu gamla við hérna í borginni.
Það er allt sem dregur. Maður reynir
svo sem að hlusta á fræðandi erindi
og skemmtilegar sögúr. Útvarpið er
orðið að hálfgildings háskóla. Maður
getifr lært allskonar tungumál í því og
nú eru þeir farnir að kenni manni
efnafræði. — Hvað hefur þér eigin-
lega fundist bezt í útvarpinu í vetur?
— Ég skifti.
Það er ákaflega margt, sem mér
hefur líkað vel, en hinn sameiginlegi
dagur og vegur tókst ekki eins vel og\
ég bjóst við, þegar breytingin var boð-
uð. Tungumálin læri ég ekki. En segðu
mér, hvers vegna einn þeirra sem kenn-
ir er alltaf með kvef. Hann er búinn
að vera með það í 10 ár eða meir.
Þjóðkórinn hefur ekki komið nógu oft.
— Mér þótti búnaðarmálavikan góð.
Einn kom mér þó algerlega á óvart.
Hann sagði með spekingssvip: ,,Á eftir
apríl kemúr maí“. — Ég skifti.
Já, ég trúi því ^ð þú hafir orðið
hissa, en er hún eiginlega ekki svona
búnaðarfræðslan ykkar? Þú mannst
líka eftir því að útvarpsráð lýsti fyrir-
fram af sér allri ábyrgð á því sem sett
yrði í útvarpið á þessari viku. Það er
ekki svo blátt þetta útvarpsráð, þó að
það renni stundum blávatn út úr út-
varpinu. Annars er þetta nú of hart hjá
mér, því að útvarpinu er yfirleitt vel
stjórnað, svona í sambandi við, með
tilliti til og í framhaldi af öllu saman.
Þú heyrðir víst um daginn að Búnað-
arfélagið vill láta fara að nota mysu
til iðnaðar. Hvaða iðnaðar góði? —
Kannske þessa gamla og góða iðnaðar
okkar frá því í hitt eð fyrra? Þá held
ég að Björn Blöndal fengi í nógu að
snúast. Þú hefur þessa spíritussíseruðu
mysu þína tilbúna þegar ég kem í sum-
ar. Annars kalla ég þig upp eftir hálf-
an mánuð. Vertu blessaður. — Ég
skifti. Magnarinn.
Úfvarps-
AUGLÝSINGAR og !
TILKYNNINGAR
Afgreiddar frá kl. 9 til 11
og 16.00 til 18.00 alla virka
daga.
Sunnudaga og helgidaga
kl. 11.00—11.30 og 16—17,
eigi á öðmm tímuni.
Simi 1095.