Jazzblaðið - 01.03.1952, Page 14
„Miles Davis
skemmtilegasti
jazzleikarinn“
— segir liinn ungi
og efnilegi Irompet-
*
leikari, Agúst Elíasson
Nýir jazzleikarar koma allt of fáir
fram á sjónarsviðið hér á landi. Fyrir
því liggja margar ástæður, sem ekki
skulu taldar upp hér. Heldur skal vikið
að því að kynna hinn nýjasta í hópi hér-
lendra jazzleikara, þ. e. a. s. Ágúst Elías-
son, sem leikið hefur í hljómsveit Þór-
arins Óskarssonar í Listamannaskálan-
um og víðar frá því í nóvember.
Ágúst hefur haft mikinn áhuga fyrir
jazzmúsik í nokkur undanfarin ár og
á þeim grundvelli ræddi ég við hann.
Lagði ég fyrir hann nokkrar spurning-
ar viðvíkjandi jazzi og jazzleikurum og
hér kemur samtalið:
— Hver, eða öllu heldur hverjir liafa
verið u'p'pálialdstrompetleikarar þínir?
— Harry James var sá fyrsti. Hann
fannst mér áður, og finnst enn mjög
góður. Síðan kom Bunny Berigan, hann
var stórkostlegur. Þá tók Roy Eldridge
við. En mér finnst hann alltaf of líkur
sjálfum sér. Að hlusta á eina eða tvær
plötur með honum er nóg; þá hefur
maður kynnzt honum til hlýtar. Chai’lie
Shavers kom á eftir Roy. Hann er mjög
skemmtilegur. Síðan kemur Miles Davis,
sem mér finnst sá allra skemmtilegasti.
Og ekki má ég gleyma Louis Armstrong.
Það er eins með Miles og Armstrong;
þeir eru báðir einfaldir en hjartan-
legir.
— Heldurðu upp á Miles Davis vegna
þess að hann leilcur Moderne jazz frelcar
en þann gamla?
— Nei, ég dæmi hann sem trompet-
leikara, síðan kemur hitt hvers konar
jazz hann leikur. Ég hef aldrei tekið
einn stílinn fram yfir annan. Kannske
ekki heyrt nógu mikið af nýrri jazzinum
til að mynda mér skoðanir um hann.
Uppáhaldseinleikari minn hefur lengi
verið Bill Harris trombónleikari, sem
leikur stíl, sem er einskonar tengibrú
á milli hins gamla og nýja jazz. .
— Nokkrar liljómsveitir, sem. þú hef-
ur gaman af að hlusta á?
— Já, það er gaman að mörgu, sem
Duke Ellington hljómsveitin gerði áður
fyrr. Ég hef lítið heyrt nýtt með henni.
— Hvernig lílcaði þér við Lee Konitz
og Tyree Glenn?
— Mér fannst Tyree Glenn óneitanlega
skemmtilegri. Hann réði lögum og lof-
14