Jazzblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 15
um á hljómleikunum hér. Fólkið var allt
hans megin. En ekki vil ég segja að
músikin sem hann lék hafi verið betri
en það, sem Konitz hafði fram að færa.
Sennilega er Konizt meiri jazzleikari.
— Eru nokkrir sérstakir jazzleikarar,
sem þér líkar ekki við? Ég á náttúrlega
við leik þeirra.
— Það getur nú varla talizt, nema ef
það væri trompetleikarinn Howard
McGee. Ég hef aldrei séð neitt við leik
hans. En þá má kannske bæta við, að
ég hef ef til vill ekki heyrt það, sem
hann hefur gert bezt.
— Hvenær fórstu fyrst að veita jazz-
inum athygli?
— Ég var í fyrsta bekk gagnfræða-
skólans. Eyþór Þorláksson var með mér.
Hann, ásamt Gunnari Ormslev og fleir-
um léku fyrir skóladansleikjum. Síðan
hefur Gunnar Ormslev verið uppáhalds-
jazzleikari minn úr hópi hinna hér-
lendu.
— Hvað finnst þér um liljómsveit-
irnar ?
— Það sem Gunnar Ormslev, Jón Sig.
trompet og Jón Sig. bassi gerðu, ásamt
Guðm. R. og Elfar, er það bezta, sem
hér hefur verið leikið. Hljómsveit með
aðeins þessum mönnum hefur reyndar
aldrei verið til. En þeir hafa komið fram
á jam-sessionum og að mig minnir á
hljómleikum líka. Eins var tríó þeirra
Gunnars, Guðmundar og Elfars mjög
gott.
— En hljómsveitirnar sjálfar, eins og
þær hafa verið skipaðar?
— Það er óþarfi að geta þess. Það
hefur engin hljómsveit komist nálægt
því að gera það sem hljómsveit Björns
R. Einarssonar hefur gert, þegar hún
var upp á sitt bezta. Upp á síðkastið
hafa þeir verið með fremur leiðinlegar
útsetningar, en það batnar sennilega.
Hin gamalkunna jazzsöngkona Mild-
red Bailey lézt á sjúkrahúsi í borginni
Poughkeepsie hinn 12. des. s. 1.
Banamein söngkonunnar, sem var orð-
in 48 ára, var hjartaslag. IJafði hún
verið veik nokkur undanfarin ár, en
öðru hvoru komið fram, m. a. síðastliðið
sumár og var þá talið að hún ætt fullan
bata í vændum.
Mildred Bailey hefur í mörg ár verið
ein vinsælasta söngkona jazzins. Kom
hún ung fram á sjónarsviðið og hefur
ætíð síðan notið mikilla vinsælda. Söng
hún m. a. í nokkur ár með hljómsveit
Red Norvo, en þau voru þá gift.
Jazzunnendum um heim allan er mikil
eftirsjá í þessari góðu söngkonu.
— Hvað segirðu um innlenda trompet-
leikara?
— Jón Sigurðsson er eini trompet-
leikarinn hér.
Af framanrituðu má sjá, að Ágúst
fylgist vel með innlendu sem erlendu
jazzlífi, og er óragur að láta í ljós álit
sitt á því, er hann telur máli skipta, og
er það eitt út af fyrir sig meira en hægt
er að segja um marga úr hópi jazzleik-
ara hér.
Ég efast ekki um, að Ágúst á eftir
að verða jazzinum hér mikil stoð, bæði
sem trompetleikari og jazzáhugamaður.
Var’la tel ég hægt að ljúka þessum lín-
um án þess að geta þess hver uppáhalds-
plata hans sé. Það er Israel leikið af —
auðvitað Miles Davis. Ágúst segist
hlusta á plötuna tíu sinnum á dag. Það
eru þá orðin ca. sex hundruð skipti, því
að mér er kunnugt um, að hann hefur
átt plötuna í tvo mánuði. Ég vona bara,
að hann noti góðar nálar. S. G.