Jazzblaðið - 01.03.1952, Blaðsíða 18
ERLENT
J> TYREE GLENN — góð-
kunningi okkar frá hljómleik-
unum hér í desember — fékk
lokkandi tilboð, þegar hann
kom heim. Louis Armstrong
bauð honum sætið, sem losn-
aði í hljómsveit sinni, þegar
Teagarden hætti. Tyree tók
ekki þessu boði, þar sem hann
vildi ekki ferðast með hljóm-
sveitinni. Hann býr í New
York, þar sem hann hugsar
sér að leika eingöngu. Stóð til
að hann kæmi fram með eigið
tríó í sjónvarpsþætti.
J> SHORTY ROGERS trom-
petleikari og útsetjari. (Hann
útsetti m. a. mest fyrir Stan
Kenton í seinni tíð) hefur ný-
lega stofnað litla jazzhljóm-
sveit, sem mikils er vænzt af.
Art Pepper og Shelly Manne
leika með honum.
J> DON ELLIOT vibrafón-
leikari, sem var hjá George
Shearing er nú að œfa upp
stóra hljómsveit. Þeir Ralph
Burns og Gil Evans hafa út-
sett mestallt fyrir hljómsveit-
ina. Elliot, sem er mjög góður
vibrafónleikari leikur auk þess
á trompet og mellófón (eins
og trompet en talsvert stcerri).
J> GENE KRUPA hefur end-
urvakið hið gamla og góða
Gene Krupa tríó og leika hin-
ir sömu með honum og léku
í gamla tríóinu hans. Þ. e. a. s.
Charlie Ventura á tenór og
Teddy Napoleon á píanó.
/ SÆNSKIR GAGNRÝN-
ENDUR láta heldur lítið yfir
leik Lee Konitz, en hann lék
þar í des. siðastl. Stafar þetta
reyndar að mestu leyti af því,
að Konitz hélt því fram í
blaðaviðtölum, að það vœri
lítið um sjálfstœða sœnska
jazzleikara, þeir gerðu allt of
mikið að þvi að herma eftir
ameriskum jazzleikurum.
J* GÖSTA THESELIUS tenór-
saxófón- og píanóleikari og út-
setjari var kosinn jazzleikari
ársins í kosningum, sem
sænska blaðíð Estrad lét fara
fram. Næstur varð hinn efni-
legi píanisti Bengt Hallberg,
siðan Arne Domnerus, Ake
Persson, Lars Gullin og Rolf
Ericson. Allir nema Bengt eru
í sömu hljómsveitinni.
J> OSCAR PETTIFORD —
bassa (og cello) leikari — hef-
ur nýlega verið með „all-star“
jazzhljómsveit á ferðalagi
meðal bandariskra herflokka í
Kóreu.
J> JOE SULLIVAN hefur ný-
lega verið ráðinn i hljómsveit
Louis Armstrong og mun
sennilega verða þar áfram.
— Armstrong hefur hug á að
fara í hljóml.ferð til Evrópu
að sumri komandi.
J> NELSON WILLIAM trom-
petleikari, sem undanfarin ár
hefur leikið með Duke Elling-
ton, hefur leikið í Evrópu und-
anfarið og hvarvetna notið
mikilla vinscelda.
INNLENT
J* HILMAR SKAGFIELD fyr-
verandi formaður Jazzklúbbs-
ins hefur nýlega sent blaðinu
bréf frá Florida, þar sem hann
hefwr verið við nám á annað
ár. Biður hann blaðið að fœra
öllum kunningjum sínum hin-
ar beztu kveðjur. Jazzfréttir
getur hann litlar sagt frá
Florida, þvl að þar er „Cow-
boy“-músik alls ráðandi.
J> GRETTIR BJÖRNSSON
harmonikuleikari, sem undan-
farið hefur leikið í hljómsveit
Svavars Gests í Breiöfirðinga-
búð, er farinn til Kanada, þar
sem hann ætlar að setjast að
með fjölskyldu sína. Sjá nán-
ar grein um Grettir á öðrum
stað í blaðinu. Guðni Guðna-
son tók sæti Grettis í hljóm-
sveitinni.
J* EYÞÓR ÞORLÁKSSON
guitarleikari er nýlega kominn
heim aftur, en hann fór ásamt
Guðm. Steingrímssyni trommu
-leikara til Englands síðastl.
haust (Guðmundur kom í des-
ember). Eyþór dvaldi síðustu
mánuðina i Gautaborg í Sví-
þjóð. — Hlustaði hann á alla
helztu jazzleikara Svíþjóðar og
finnst heldur lítið til þeirra
koma. Styður hann að nokkru
leyti ummœli Lee Konitz, sem
birtast á öðrum stað í blaðinu.
Eyþór hefur nýlega tekið sœti
Ólafs Gauks í Hljómsveit Kr.
Kristjánssonar.
J> FÉLAG ÍSL. HLJÓÐ-
FÆRALEIKARA var 20 ára
gamalt 28. febrúar. Sökum
rúmleysis getur blaðið ekki
greint nánar frá þessu merkis-
afmæli að sinni, en færir fé-
laginu hamingjuóskir.
f VIÐGERÐARSTOFA fyrír
öll blásturshljóðfœri hefur ný-
lega verið opnuð að Bergstaða-
strœti 39B hér í bœ. Er þetta
til mikils hagrœðis fyrir hina
mörgu, er ekki hafa getað
fengið hljóðfœri sín viðgerð,
þar sem enginn hefur viljað
taka slíkt að sér. Hér er kunn-
áttumaður að verki, sem fram-
kvœmir hinar erfiðustu við-
gerðir á blásturshljóðfœrum.—
Ennfremur er hœgt að fá
hljóðfœrin húðuð á nýtt, og er
það verk einnig gert af hinnl
mestu vandvirkni samkvœmt
sýnishorni, er við höfum séð.
18 ^azzUaíií