Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Qupperneq 4
Tímarit Tónlistarfélagsins
eins og viö erum“ segja þeir, sem malda í móinn. „Vér
njótum þess að hlýða á þá tegund tónlistar, sem oss fell-
ur í geð, án þess að spyrja að því, hvernig bygging hennar
sé háttað, vér öðlumst ánægjulegan stundarfjórðung og
vér óskum einkis fremur. Það er að vísu satt, að oss leið-
ast klassiskir höfundar, en oss skilst að til séu vissar teg-
undir tónlistar, sem valda yður jafn mikilla leiðinda og
virðist þar ekki hallast á.“ Eina svarið við þessu er að
túlka það á öðru máli. Ef raunverulega eru til þeir menn,
sem taka Tupper fram yfir Shakespeare, tréspíritus fram
yfir portvín, fólk, sem heldur vill fiskinn úldinn og jarðar-
berin lítil og óþroskuð, sem getur fullnægt fegurðarþörf
sinni með því að virða fyrir sér skrípamynd, og þykir
hundasúran fegursta blómið, ja — þá myndum vér vissu-
lega skerða frjálsræði hlutaðeiganda ef vér reyndum að
breyta viðhorfi þeirra. En ég trúi ekki að til sé slíkt fólk.
í allri list má greina milli góðs og ills. Hvar skilur á milli
er án efa óljóst, en mismunurinn kemur greinilega í ljós
til endanna. Einasta ástæðan til þess, að fólk virðist frem-
ur kjósa það, sem lélegt er, er sú, að það hefir ekki enn
skilið hve miklu meiri ánægju hið góða getur veitt þeim.
Það er gersamlega röng ályktun, að góð list sé ávalt ströng.
Væri það sannarlega skoplegur gagnrýnandi, sem fyndi
það ,,Falstaff“ til foráttu, að hann væri meinlætasamur.
Hin mótbáran, sem miklu fastar er haldið fram, er
sú, að ástundun tónlistar sé flókin og erfið, að hún krefjist
ekki einung^s sérstakra hæfileika, heldur einnig langrar
og strangar þjálfunar, sem sé allt annað en leikur.
„Vér myndum kjósa“, segja sumir, „að vita meira um
tónlist og vér vitum að vér myndum auðgast mikið við þá
þekkingu, en vér erum störfum hlaðið fólk, og gætum ekki
fundið tíma til þess, þótt vér værum vissir um hæfileika
vora.“ Svarið við þessu er á þá leið, að tónlist, tekin
sem bókmenntir, er engu erfiðari en hver önnur fræði-
grein. Örðugleikarnir vaxa flestum í augum, bæði af van-
þekkingu og vegna þess hve útlit margra kennslubóka er
fráfælandi. Vafalaust er það stritsamt að komast langt
sem tónskáld, söngvari eða hljóðfæraleikari, en það er
4