Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Síða 10
Tímarit Tónlistarf élagsins
Maurice Ravel
1875 1937
Á síðastliðnu ári féllu tveir af höfðingjum franskrar
tónlistar í valinn. í september: Albert Roussel (f. 1869)
og rétt fyrir áramótin, (28. des.): Maurice Ravel.
Ég minnist tónleika, sem Ravel hélt fyir nokkrum
árum í Kaupmannahöfn. Hann kom þar fram sem hljóm-
sveitarstjóri, píanóleikari og tónskáld í senn. Lítill vexti,
hæruskotinn snyrtimannlegur, fágaður og látlaus í fram-
komu. Á efnisskránni voru, auk verka eftir hann sjálfan,
g moll Symfonía Mozarts, og minnist ég ekki betri túlk-
unar á henni, en hún fékk hjá Ravel: hnitmiðuð, fáguð,
lipur, og ilmandi. Og svo var sinnið sem skinnið. Hann
var ósvikinn talsmaður franskrar menningar í list sinni;
andríkur, kýminn, skarpskyggn, tilfinninganæmur, hófsam-
ur og smekkvís. Hann átti í ríkum mæli það, sem Frakkar
kalla „Esprit“. Hann var formsnillingur með afbrigöum,
slípaði og fágaði form verka sinna unz engu var ofaukiö,
allt var tært og dýrt. Leikur víða um verk hans svalur
blær heiðstefnunnar og er engin furða þótt hann hafi
stundum verið nefndur „Mozart Frakklands“. Hann er að
10